Feykir - 05.09.2018, Qupperneq 2
Ég er hugsi yfir því, og leiður, að allt í einu varð ég að vera
á varðbergi fyrir þjófum og óþjóðalýð sem gera sig
heimakomna hjá fólki og spyrja um gistingu. Aumingja
túrhestarnir sem hafa eitthvað
misskilið upplýsingar fá nátt-
úrulega bara bros frá fólki sem
benda þeim á næsta gistihús. En
þessir bíræfnu ferðamenn eru
alls ekki að leita að gistingu
heldur verðmætum fólks.
Það hefur nefnilega víða
tíðkast í sveitum og minni
stöðum á landsbyggðinni að fólk
læsi ekki húsum sínum því ekki
hefur verið talin þörf á því enda
flestir sem eiga trygga og trúa
nágranna. Þessu hafa þeir komist að, feðgarnir sem voru
gripnir um daginn. Höfðu þeir farið inn í hús hjá fólki þar
sem ólæst var og ef einhver var heima báðu þeir um gistingu.
Ef enginn var heima var snuðrað eftir verðmætum.
Einu sinni voru flestir bílar ólæstir á Sauðárkróki og
jafnvel með lyklum í kveikilás. En það er liðin tíð. Það kom
nefnilega fyrir að aðkomukónar þurftu að bregða sér
bæjarleið og tóku fararskjóta traustataki.
Nú eru breyttir tímar, atvinnuþjófar fara um héruð og
ræna verðmætum, peningum og skarti en ef ekkert slíkt er í
boði ræna þeir sakleysi hjá hrekklausu fólki. Bara það að vita
af ókunnugum snuðrandi um húsið, ofan í skúffum og
skápum, setur hroll að fólki. Enginn vill lenda í því.
Við verðum líklega að sætta okkur við það að einhverjir
af þeim fjölda ferðamanna sem sækir landið heim hagi sér
ekki eins og við helst kjósum.
Ég veit ekki hvort það er hægt að kenna einhverjum um
en þjófahyskið sem náðist við iðju sína um daginn var sett í
farbann og sleppt lausum tímabundið. Hvað gerðist? Þeir,
sem hér um ræðir, stigu upp í bíl sinn, fluttu sig um set og
héldu áfram að „leita að gistingu“. Hefði betur farið að setja
viðkomandi í steininn og klára málið þar.
Ég er farinn að læsa mínu og mér líður ekkert vel með
það því ég hefði viljað sakleysið áfram.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Þegar sakleysinu var rænt
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
45 bátar lögðu upp á Skagaströnd í síðustu
viku og var samanlagður afli þeirra rúm 263
tonn.
Á Sauðárkróki var rúmum 447 tonnum
landað af tólf skipum og bátum og fjórir
bátar lönduðu rúmum fjórum tonnum á
Hofsósi. Heildarafli vikunnar var 714.652
kíló. /FE
Aflatölur 26. ágúst – 1. september 2018 á Norðurlandi vestra
Málmey með 148 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Lína 7.000
Arndís HU 42 Handfæri 237
Auður HU 94 Handfæri 2.238
Auður HU 94 Landbeitt lína 736
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 622
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.730
Blíðfari HU 52 Handfæri 960
Blær HU 77 Landbeitt lína 1.210
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.686
Bragi Magg HU 70 Handfæri 292
Daðey GK 777 Lína 22.904
Dísa HU 91 Handfæri 1.620
Dóra ST 225 Handfæri 1.682
Dúddi Gísla GK 48 Handfæri 1.996
Dúddi Gísla GK 48 Lína 14.680
Elín ÞH 82 Handfæri 265
Garpur HU 58 Handfæri 2.077
Geiri HU 69 Handfæri 2.540
Greifinn SK 19 Handfæri 774
Guðbjörg GK 666 Lína 33.509
Guðmundur á Hópi HU 203Lína 8.676
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 853
Gyðjan HU 44 Handfæri 1.313
Hafdís HU 85 Handfæri 314
Hafrún HU 12 Dragnót 25.843
Hulda GK 17 Landbeitt lína 2.565
Hulda GK 17 Lína 1.486
Húni HU 62 Handfæri 2.121
Jenný HU 40 Handfæri 1.079
Kambur HU 24 Handfæri 2.095
Katrín GK 266 Landbeitt lína 7.340
Kári SH 78 Handfæri 4.147
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 27.652
Loftur HU 717 Handfæri 927
Loftur HU 717 Landbeitt lína 621
Lukka EA 777 Handfæri 592
Magnús HU 23 Landbeitt lína 8.065
Már HU 545 Handfæri 232
Onni HU 36 Dragnót 15.889
Ólafur Magnússon HU 54 Handfæri 1.220
Smári HU 7 Handfæri 1.316
Steinunn SF 10 Botnvarpa 48.120
Svalur HU 124 Handfæri 536
Sæunn HU 30 Handfæri 946
Víðir EA 423 Handfæri 681
Alls á Skagaströnd 263.387
SAUÐÁRKRÓKUR
Bryndís SK 8 Handfæri 618
Drangey SK 2 Botnvarpa 134.076
Fannar SK 11 Handfæri 1.611
Kaldi SK 121 Þorskfiskinet 985
Kristín GK 457 Lína 64.028
Maró SK 33 Handfæri 1.617
Málmey SK 1 Botnvarpa 147.854
Már SK 90 Handfæri 3.739
Sighvatur GK 357 Lína 67.298
Sigurborg SH 12 Rækjuvarpa 22.682
Vinur SK 22 Handfæri 1.397
Ösp SK 135 Handfæri 1.245
Alls á Sauðárkróki 447.150
HOFSÓS
Geisli SK 66 Línutrekt 1.286
Skáley SK 32 Handfæri 860
Skotta SK 138 Handfæri 685
Þorgrímur SK 27 Lína 1.284
Alls á Hofsósi 4.115
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Þróa nýja matvælabraut við FNV
Fjölbrautaskóli Norðurlands
vestra mætir þörfum atvinnu-
lífsins í samstarfi við Samtök
sveitarfélaga á Norðurlandi
vestra og Sóknaráætlun
landshluta sem hafa gert með
sér samning um stuðning
SSNV við þróun nýrrar
matvælabrautar við skólann.
Verkefnið er áhersluverkefni
sóknaráætlunar fyrir árið 2018.
Á heimasíðu skólans kemur
fram að á síðustu árum hefur
FNV lagt kapp á að bregðast við
þörfum atvinnulífsins fyrir
menntað starfsfólk. Skólinn stóð
fyrir gerð námsbrautar fyrir
slátrara og farið var af stað með
kennslu á þeirri braut vorið
2016. Þá hefur skólinn boðið
upp á nám í fisktækni um
nokkurra ára skeið.
Komið hafa fram óskir um
nám fyrir fólk sem starfar við
mjólkuriðnað. Hugmyndin
með námsbrautinni er að þar
geti starfsmenn fyrirtækja í
mjólkuriðnaði fengið kennslu í
raun- og tæknigreinum sem
nýtist í þeirra störfum
Allt nám á matvælasviði
inniheldur ákveðinn sameigin-
legan grunn og því mun skólinn
þróa grunnnám fyrir framan-
greindar greinar og síðan
framhaldsnám fyrir fólk í
mjólkuriðnaði. Fyrirtæki í
mjólkuriðnaði hafa lýst yfir vilja
til að koma að samvinnu um
gerð námsbrautar á þessu sviði.
Anna Hlín Jónsdóttir hefur
verið ráðin verkefnisstjóri
verkefnisins hjá FNV. Hennar
hlutverk verður að halda utan
um og stýra samstarfi fagaðila
sem að náminu koma. Jafnframt
mun hún vinna skipulag náms-
brautarinnar og ritun brautar-
og áfangalýsinga í námskrár-
grunn.
Unnur Valborg Hilmars-
dóttir framkvæmdastjóri SSNV
segir starf FNV ákaflega mikil-
vægt fyrir Norðurland vestra í
heild og mikilvægt að þar verði
áfram rými til þróunar náms-
brauta sem henta atvinnulífinu
hverju sinni. „Það er ánægjulegt
að geta með þessum hætti stutt
við áframhaldandi nýsköpun
innan skólans um leið og
stuðlað er að eflingu atvinnu-
lífsins á svæðinu,“ er haft eftir
Unni á fnv.is. /PF
Frá vinstri: Þorkell skólameistari, Unnur Valborg framkvæmdastjóri SSNV og Anna Hlín
verkefnisstjóri. MYND: FNV.IS
Eldislax í Vatnsdalsá?
Stangveiði
Líkur eru taldar á að eldislax
hafi veiðst í Hnausastreng í
Vatnsdalsá sl. föstudag. Greint
er frá þessu á mbl.is á laugardag
og rætt við Björn K. Rúnarsson,
leigutaka og staðarhaldara í
Vatnsdalsá.
Laxinn sem um ræðir er 70 sm
hrygna og segir Björn að ummerki
á laxinum bendi til þess að
augljóslega sé um eldislax að
ræða. „Þessi fiskur er ugga-
skemmdur. Bakugginn er ónýtur,
eyruggarnir eru skemmdir og
sporðurinn snjáður. Snoppan er
líka skemmd á honum. Ekki neitt
illa en þetta er alveg greinilega
eldislax,“ segir Björn.
Nánar má lesa um málið í
frétt á Feykir.is. /FE
2 33/2018