Feykir - 05.09.2018, Blaðsíða 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Mörk.
Feykir spyr...
Hvað stendur upp
úr frá sumrinu?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Að vera viðstaddur þegar
Ísland gerði jafntefli við
Argentínu og svo Þjóðhátíð
í Eyjum.“
Jón Grétar Guðmundsson
„Fríið með fjölskyldunni.“
Díana Dögg Hreinsdóttir
„Vígsla á nýju gervigrasi sem
mun bæta uppbyggingu
yngri flokka í knattspyrnu,
algjör snilld.“
Konráð Freyr Sigurðsson (t.v.)
„Sumarið fór að mestu í
vinnu en í gegnum vinnuna
hitti ég fjöldann allan af
skemmtilegu og áhugaverðu
fólki. Ég fór einnig á nokkra
frábæra tónleika og horfði
mikið á fótbolta. Ætla svo að
enda sumarið á því að skella
mér til Kaupmannahafnar á
morgun [fimmtudag].“
Lee Ann Maginnis
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Lífið er leikur og sönn ást eru aðal verðlaunin.
– Rufus Wainwright
Su
do
ku
Léttsteikið bringurnar og saltið og
piprið. Setjið þær í eldfast mót, soðið
brokkolí ofan á og hellið sósunni yfir.
Ritzkexi, osti og bræddu smjöri
hrært saman og sett ofan á.
Sett inn í ofn við 200° C í 30
mínútur. Gott er að hafa hrísgrjón og
hvítlauksbrauð með.
EFTIRRÉTTUR
Marsterta
4 eggjahvítur
1 dl flórsykur
1 dl púðursykur
2 bollar Rice krispies
Aðferð: Eggjahvítur, flórsykur og
púðursykur þeytt vel saman og Rice
krispies bætt út í á eftir.
Sett í tvö form og bakað í 40
mínútur við u.þ.b. 150° C.
Krem:
2 Mars
60 g smjör
4 eggjarauður
3 matskeiðar flórsykur
Mars og smjör brætt saman og látið
kólna. Eggjarauður og flórsykur þeytt
saman. Súkkulaðinu blandað saman
við.
Einn peli þeyttur rjómi settur á
milli og kremið ofan á. Sett í frost og
tekin út hálftíma áður en hún skal
borðuð.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Huldu Björg Jónsdótt-
ur og Konráð Leó Konráðsson að
vera næstu matgæðingar.
Matgæðingar þessarar viku eru þau Anna Birgisdóttir og Elvar
Hólm Hjartarson sem búa á Sauðárkróki ásamt tveimur dætrum
sínum. Elvar vinnur hjá Vörumiðlun en Anna í eldhúsinu á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.
Anna segir að Elvar sé ekki gefinn fyrir að elda en verji frekar
tíma í hestamennsku sem dæturnar stunda með honum. Sjálf segist
hún hafa gaman af að elda og prufa eitthvað nýtt og er m.a. í
matarklúbbi sem hefur fengið að prófa réttinn sem hún gefur okkur
uppskriftina að og vakti hann góða lukku. „Ekki er Marskakan
síðri, hún er sælgæti,“ segir Anna.
FORRÉTTUR
Salat með rækjum
og fetaosti
(fyrir 6)
2 hausar lambhagasalat eða u.þ.b.
⅓ haus jöklasalat (ísberg)
1 stk. rauðlaukur
½ agúrka
½ græn paprika
1 krukka fetaostur í kryddlegi
1 dl furuhnetur
2 dl brauðteningar
300 g risarækjur
salatsósa að eigin vali
Aðferð: Skolið og rífið salatið, skerið
laukinn í þunnar sneiðar og agúrku
og papriku í bita. Hellið krydd-
leginum af fetaostinum og blandið
honum saman við grænmetið og
rækjurnar í stórri skál. Stráið
brauðteningunum yfir um leið og
salatið er borið fram með salat-
sósunni.
AÐALRÉTTUR
Kjúklingaréttur
(fyrir 6)
4 kjúklingabringur
1 dós Cambell sveppasúpa
1 haus brokkolí
1 dós sýrður rjómi
2 tsk sítrónusafi
2 tsk karrý
3 msk smjör
u.þ.b. ½ pakki Ritzkex
rifinn ostur
Aðferð: Hrærið saman súpunni,
sýrða rjómanum, karrý og sítrónu-
safa.
Rækjur í forrétt,
kjúklingaréttur og
Marskaka í eftirrétt
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Anna og Elvar á Sauðárkróki matreiða
Elvar og Anna. MYND ÚR EINKASAFNI
33/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Þegar John Lennon var ungur greindist hann með ADHD
(athyglisbrest). Neituðu kennarar oft að hafa hann sem
nemenda því þeim fannst hann trufla oft í tíma og kölluðu
kennararnir hann því tossa. Fyrri kona hans var Cynthia Powell
en sú síðari heitir Yoko Ono og er Íslendingum vel kunnug.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá hét fyrsta kærasta Lennon
Thelma Pickles.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Ungbörn eru mæld í mér.
Magna föður tengd ég er.
Ráðum miklu í réttunum.
Rauðagull með Þjóðverjum.
FEYKIFÍN AFÞREYING