Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 4
Leikfélag Sauðárkróks
Ævintýrabókin á
fjalirnar í Bifröst
Leikfélag Sauðárkróks
frumsýnir á sunnudaginn
kemur leikritið Ævintýra-
bókina eftir Pétur Eggerz með
tónlist eftir Guðna Franzson.
Leikstjóri verksins er Ingrid
Jónsdóttir og alls eru 28
hlutverk í sýningunni sem
leikin eru af 25 leikurum.
Leikstjórinn, Ingrid Jónsdóttir,
á að baki langan og farsælan
feril sem leikstjóri en hún hefur
sett upp í kringum 30 sýningar,
vítt og breitt um landið. Þetta er
þriðja verkið sem Ingrid setur
upp hjá Leikfélagi Sauðárkróks
en áður hefur hún sett upp
Sæluvikustykkin Tvo tvöfalda
vorið 2012 og Einn koss enn og
ég segi ekki orð við Jónatan á
síðasta vori.
Ingrid segir að Ævintýra-
bókin sé skemmtilegt verk sem
allir aldurshópar ættu að geta
skemmt sér yfir, „það eru alveg
fullorðinsbrandarar í þessu líka
og ærsl og léttleiki, góð lög og
góðir söngvarar en Skagfirð-
ingar eru náttúrulega þekktir
fyrir að vera góðir söngvarar,“
segir Ingrid.
„Leikritið fjallar um stelp-
una Dóru sem er að fara að sofa
og flettir Ævintýrabókinni
sinni til að velja sér ævintýri til
að lesa fyrir svefninn. Fyrir
valinu verður ævintýrið um
Rauðhettu og úlfinn en það
finnst Dóru skemmtilegasta
ævintýrið. Þegar hún byrjar að
lesa birtast persónurnar úr
sögunni og úlfurinn ákveður
að stinga af úr Rauðhettu og
fara í einhver önnur ævintýri af
því að honum er farið að leiðast
svo þarna. Dóra og veiðimað-
urinn fara svo að leita að
honum og þau koma við í
hinum ýmsu ævintýrum eins
og Stígvélaða kettinum, Ösku-
busku, Mjallhvíti og fleiri. Allt
fer svo vel að lokum“ segir
Ingrid.
Formaður leikfélagsins er
Sigurlaug Dóra Ingimundar-
dóttir. Hún segir hafa gengið
vel að manna þessi mörgu
hlutverk sem hafi gert æfinga-
tímabilið mjög auðvelt. Í
verkinu eru þrjú burðarhlutverk
sem leikin eru af þeim Birgittu
Pétursdóttur sem leikur Dóru,
Guðbrandi Guðbrandssyni
sem leikur veiðimanninn og
Hauki Skúlasyni sem fer með
hlutverk úlfsins. „Það eru
margir nýir að koma inn sem
við gleðjumst alltaf mjög mikið
yfir. Við erum með hóp af
dvergum, dvergana sjö, sem
eru að mestu krakkar úr
grunnskóla en annars er þetta
mjög breiður hópur, eiginlega
allur aldur, vanir og óvanir, og
hefur gengið mjög vel að koma
þessu öllu fyrir í ekki stærra
rými en Bifröst er.“
Ævintýrabókin verður frum-
sýnd á sunnudaginn kemur, 7.
október, klukkan 16:00. Sýn-
ingar verða átta talsins og
dreifast á næstu tíu daga.
Sigurlaug segist að lokum vilja
hvetja fólk til að drífa sig strax í
leikhús og missa ekki af þessari
skemmtilegu sýningu.
Leikhópurinn ásamt leikstjóra. MYND: PF
Hvernig nemandi varstu? Mig
langar að segja slæmur en ég vil
frekar vísa því til skólakerfisins. Ég
var uppfinningasamur, lífsglaður
og hafði litla getu til að sitja kyrr
og stunda páfagaukanám.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Ætli það sé
ekki seðlabunkinn.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Vísindamaður er
það sem ég man eftir að fólk
sagði að ég yrði, en ég er ekki
viss um að ég hafi haft einhver
sérstök plön.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Ætli
það hafi ekki verið skjalataska
sem var full af rafmagnsdóti.
Besti ilmurinn? Stafasúpa.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Það hefur
pottþétt verið útvarpsstöðin Mono
sem hefur verið í gangi í bílnum.
Hvernig slakarðu á? Horfi á
þætti, bíómyndir, dúlla mér í
tölvu, fikta í alls konar dóti eða
ligg í sólbaði.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Ég horfi ekki
á sjónvarp í línulegri dagskrá
nema að ég sé í heimsókn hjá
einhverjum, þannig að ég missi
alltaf af öllu í sjónvarpinu.
Besta bíómyndin? Fear and
Loathing in Las Vegas, vegna
þess að hún er algerlega sturluð.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Ég er með
ofnæmi fyrir íþróttum.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Skil tæki
og tækni mjög vel.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Lambahryggur með
stökkri puru.
Hættulegasta helgarnammið?
Ég myndi ekki segja að lakkrís
sé helgarnammi heldur hluti af
lífsstíl mínum, annars borða ég
mjög lítið af nammi.
Hvernig er eggið best? Í
pönnuköku.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Hvað ég er ótrúlega
gleyminn á suma hluti.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Smjatt, öndunar-
hljóð og hrotur geta gert mig
geðveikan.
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Rúnar Björn Herrera Þorkelsson.
ÁRGANGUR: 1982.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð.
BÚSETA: Fossvogsdalur í Reykjavík.
HVAR ERTU UPP ALINN: Ég er uppalinn á Akureyri mín fyrstu 14 ár
fyrir utan eitt ár á Króknum þegar ég var 5 ára og svo flutti ég
til Sauðárkróks 14 ára til 21.
STARF / NÁM: Mín aðalstörf eru í formennsku minni hja NPA
miðstöðinni og sem formaður málefnahóps ÖBÍ um sjálf-
stætt líf. Einnig er ég formaður Pírata í Reykjavík og Tölvu-
miðstöðvar fatlaðra. Samhliða því er ég svo í stjórn ÖBÍ,
SEM, H-SEM, Örtækni og í framkvæmdaráði ÖBÍ. Ég er með
stúdentspróf og hef lokið bóklegu námi í garðyrkjufræði og
fór í grunnnám í rafmagnsfræði á uglingsaldri.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Ekkert um okkur án
okkar.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Af mér standandi uppi á
stofuborði á meðan afi minn var
að skreyta jólatré.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Ég er greini-
lega ekki nógu frægur en ég held
ég myndi ekki vilja vera einhver
annar.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Ég hef
gaman af bókum eftir Sven
Hassel og held líka mikið upp á
Ender’s Game.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Ég lít á mig sem frekar
jákvæðan einstakling og held
mikið upp á frasann „skítur
skeður“ sem ég nota nokkurn
veginn á þann hátt „höldum
áfram“.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég
hugsa að ég myndi ferðast svona
hundrað milljónir ára aftur í tím-
ann til að sjá heiminn í þeirri
mynd sem hann var þá með
þeim dýrum sem uppi voru á
því tímabili. Annars hefði ég líka
gaman að ferðast um alheiminn
og skoða hann svona fyrst að við
erum að tala um erfiðar ferðir í
tíma og rúmi
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Ævintýri Rúnars.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu… til Tælands, þar er gott
að slaka á í sólinni.
Nefndu eitthvað þrennt sem
þér finnst þú mega til að gera
áður en þú gefur upp öndina:
Fallhlífastökk er eitthvað sem mig
hefur langað að gera í fjöldamörg
ár.
Rúnar Björn Herrera. MYND ÚR EINKASAFNI
Rúnar Björn
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
Smellt'á okkur einum...
Feykir.is
4 37/2018