Feykir


Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 6

Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 6
og útskrifaðist þaðan með tónmenntakennarapróf og síðar einsöngvarapróf og söngkennarapróf. Þaðan lá leiðin í óperudeild háskólans í Stuttgart í Þýskalandi og eftir tveggja ára nám var hún komin á samning við óperuna þar í borg. Þar var Helga fastráðin í átta ár og segist hafa tekist á við mjög fjölbreytt og skemmtileg en jafnframt krefjandi hlutverk. Síðan Helga flutti aftur á heimaslóðirnar í Skagafirði hefur hún fengist við píanó- og söngkennslu ásamt kórstjórn en hún stjórnaði Karlakórnum Heimi í tvö ár og er nú stjórnandi Kvennakórsins Sól- dísar og Skagfirska kammer- kórsins. Árið 2014 tókst Helga á við sitt fyrsta óperuhlutverk á Íslandi þegar hún söng hlutverk Elísabetar í Don Carlo eftir Verdi í Hörpu. Helga segir að Skagfirski kammerkórinn hafi í gegnum tíðina haft á efnisskrá sinni falleg íslensk og erlend lög, án undirleiks. „Svo var alltaf verið að ræða það að takast á við eitthvað meira og ég skellti á þau stuttri og fallegri messu eftir Stefán Arason, sem er án undirleiks, mjög fallegt verk en ekki langt þar sem reyndi virkilega á tónheyrnina. Þannig að ég hugsaði með Skagfirski kammerkórinnvar stofnaður á þrettánda degi jóla þann 6. janúar árið 2000 og var það að frum- kvæði Sveins Arnars Sæ- mundssonar, organista og kórstjóra, ásamt nokkrum félögum sem sungið höfðu hjá honum í kirkjukórum Miklabæjarprestakalls. Sig- ríður Sigurðardóttir, ein af stofnfélögum kórsins, segir að markmið kórsins frá upphafi hafi verið að auðga tónlistarvitund kórfélaga og annarra þeirra sem hefðu áhuga á að heyra fallega tónlist flutta við hin ýmsu tækifæri. Sveinn Arnar stýrði kórnum til ársins 2002, þá tók Páll Barna Szabó við til ársins 2004, Jóhanna Marín Óskarsdóttir var stjórnandi árin 2005 til 2012 og frá árinu 2013 hefur Helga Rós Indriðadóttir stýrt kórnum. Þó starfsaldur kórsins sé ekki lengri hefur hann haldið á annað hundrað tónleika á starfstíma sínum og sungið víða um landið ásamt því að syngja í Götukirkju og í Kirkjubæjarkirkju í Færeyjum, en það er eina utanlandsferðin sem kórinn hefur farið í. Fastir liðir í starfi kórsins eru jólatónleikar í Hóladómkirkju og vortónleikar sem haldnir hafa verið hér og hvar í Skagafirði. Þá hefur kórinn, frá árinu 2007, staðið fyrir dagskrá á Löngumýri á Degi íslenskrar tungu, ásamt 7. bekkingum í Varmahlíðarskóla, þar sem kynnt hafa verið hin ýmsu skáld, lesin upp ljóð og sögur og sungin lög við ljóð þeirra. Sönghópur eldri borgara hefur oft tekið þátt í þeirri dagskrá, sem hefur alltaf verið einstaklega vel heppnuð. Gullfallegt verk með sól og suðrænum takti Það hlýtur að teljast býsna metnaðarfullt verkefni hjá ekki stærri kór að ráðast í verkefni af þessari stærðargráðu. Feykir hitti Helgu Rós Indriðadóttur, stjórnanda kórsins, að máli og ræddi við hana um tónlistar- ferilinn, kórstarfið og tilurð þessa verkefnis. Helga Rós á að baki glæsilegan feril á tónlistar- brautinni. Hún er fædd og uppalin á Hvíteyrum í Lýtingsstaðahreppi hinum forna en hleypti ung heim- draganum. Eftir framhalds- skólanám á Akranesi, þar sem hún hóf sitt söngnám, stundaði hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík VIÐTÖL Fríða Eyjólfsdóttir Skagfirski kammerkórinn stendur í stórræðum þessa dagana en nú standa yfir hjá kórnum æfingar á verkinu Magnificat eftir breska tónskáldið John Rutter. Verkið er hluti af afmælisdagskrá sem fengið hefur heitið Í takt við tímann og er sett upp í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Dagskráin er tvískipt og er hinn hluti tónleikanna helgaður íslenska einsöngslaginu. Hefur kórinn fengið í lið með sér félaga úr Kammerkór Norðurlands, Kalman listfélag á Akranesi ásamt Sinfóníettu Vesturlands og Guðmund Óla Gunnarsson sem stjórnar hljómsveit og kór ásamt því að útsetja einsöngslögin sem flutt verða af tenórnum Kolbeini Jóni Ketilssyni og sópransöngkonunni Helgu Rós Indriðadóttur sem jafnframt er stjórnandi Kammerkórsins. Helga Rós Indriðadóttir. Myndin er tekin í Stefánsstofu í Miðgarði. MYND: FE Helga Rós Indriðadóttir og Skagfirski kammerkórinn Ráðast í metnaðar- fullt stórvirki mér að það mætti nú leggja þó nokkuð á þau og þau væru tilbúin í slaginn. En það er flókið að gera þetta, þegar þú ert að velja verk og ætlar að fá hljómsveit þá skiptir náttúrulega máli hvernig tónskáldið hefur samið, hvaða hljóðfærasamsetningu það hefur sett í verkið, því það er kannski ekki alveg á okkar færi að fá 40 manna hljómsveit til að spila svo verkefnavalið réðist svolítið af því líka. Auðvitað hefði okkur helst langað til að gera verk eins og til dæmis Requim eftir Mozart en þar er bara of mikið af málmblásurum og hljómsveitin of stór og mjög flókið að ætla að fara að útsetja fyrir minni hljómsveit,“ segir Helga. „Ég leitaði til okkar samstarfsaðila sem er Guð- mundur Óli Gunnarsson. Hann stakk upp á að ég skoðaði hvað John Rutter hefði verið að gera, breskt tónskáld sem er á lífi enn, rúmlega sjötugur. Rutter var svo skynsamur að hann útsetti verkin sín bæði fyrir stóra hljómsveit og einnig minni. Það er náttúrulega mjög sniðugt að gera það upp á að verkin séu flutt víðar og við aðrar aðstæður heldur en með stórri hljómsveit. Ég fór að hlusta á það sem hann hafði gert og þetta verk var með sóló fyrir sópran, ég þurfti nú auðvitað að koma mér að,“ segir Helga hlæjandi, „en án gríns þá er mikilvægt fyrir mig líka að takast á við krefjandi einsöngshlutverk en verkið er alveg gullfallegt og bara yfirleitt allt sem hann semur. Þetta eru mjög fallegar og grípandi laglínur og svo er mjög skemmtilegur taktur í sumum köflunum. Þetta er við lofsöng Maríu og þegar maður fer að kynna sér betur hvað höfundurinn hefði verið að hugsa þá er hann að spá í hvernig tónlistarhefðin er í löndunum þar sem kaþólska trúin er sterkust. Það eru auðvitað þessi spænskumælandi lönd eins og Spánn og Mexíkó og lönd í Suður-Ameríku svo við fáum að heyra mexíkanskan huapango danstakt eða eins og hann segir þá þarf næstum því að syngja þetta með smá mjaðmasveiflu. Hann segir líka einhvers staðar að honum fyndist alveg við hæfi að hann, þessi Norður- Evrópubúi sem er að semja í þoku og súld á Bretlandi, reyndi að taka svolítið af 6 37/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.