Feykir


Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 9

Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 9
Kveður í runni, kvakar í mó kvikur þrastasöngur. Eins mig fýsir alltaf þó aftur að fara í göngur. (Jónas Hallgrímsson) Göngur og réttir eru gildur þáttur íslenskrar þjóðmenningar og við sem höfum vanist því að búfé gangi frjálst á afréttum getum varla hugsað okkur annan hátt þar á og teljum raunar mörg hver að frjálsræðið sé skepnunum mikilvægt. Sauðfjárbændur hafa þannig komið fram með slagorðið Icelandic lamb; Roaming free since 874. (Íslenski dilkurinn; reikar um frjáls frá 874). Á árabilinu 1948 til 1953 kom út hjá bókaforlaginu Norðra á Akureyri safnritið Göngur og réttir í ritstjórn Braga Sigurjónssonar, var það gríðarmikið að vöxtum; fimm bindi og rétt tæpar 1800 blaðsíður samtals. Mest var þar eðlilega fjallað um fjárgöngur o.þ.h. um land allt en smölun stóðs og stóðréttir í framhjáhlaupi. Er hér um afskaplega fróðlegt rit að ræða og mikill fengur af að það skuli hafa verið tekið saman og gefið út. Í ritinu kemur fram, s.s. alkunna er, að hross og fé gengu saman í högum, jafnvel á heiðum uppi. Var misjafnt eftir því hvernig háttaði til hvort hrossum og fé var smalað saman eða í sitthvoru lagi eins og nú er nær alsiða. Stóðrekstur á heiðar upp er ekki lengur leyfður. Var bann það eðlilega mjög umdeilt á sínum tíma, sjá t.d. 4. tbl. 1. árg Eiðfaxa en beitarfræðin kveða á um að til bóta sé að ólíkar búfjártegundir gangi saman í högum og nærtækara sé því að grípa til ítölu sé hætta á ofnýtingu frekar en útilokunar. Þetta atriði verður ekki frekar rætt hér. Stóðréttir eru norðlenskt fyrirbrigði en áður fyrr var það raunar svo að bændur voru tregir að reka stóð á afdali og heiðar upp. Það var þjóðmálafrömuðurinn og garpurinn Skúli Magnússon landfógeti sem kom því til leiðar, þá er hann var sýslumaður hér í Skagafirði, að gerð var sýslusamþykkt árið 1739 um hrossa- hald í sýslunni. Í henni var m.a. gerð krafa um að reka skyldi hross á afrétt að sumrinu, til varnar ofbeit heimalanda. Ekki hef ég undir höndum neinar tölur um hrossafjölda í einstökum stóðréttum fyrr og nú en í mínu ungdæmi, fyrir um hálfri öld, heyrði ég jafnan að menn álitu Stafnsrétt í Svartárdal stærstu réttina, enda kom beitarpeningur þang- að af afar víðfeðmu svæði. Fóru menn í Stafns- rétt í áþekkum tilgangi og fólk fer nú í Lauf- skálarétt; að sækja í líf og fjör, sýna sig og sjá aðra og vitaskuld að kíkka á falleg hross. Hag- yrðingurinn prýðisgóði; Jón Sigurðsson í Skollagróf, orti svo um Laufskálarétt á sínum tíma: Lokið er fjallafrelsinu, fátt um spretti snjalla. Líður hausts að helsinu, hljóðnuð gleðibjalla. Nú í haust var birt opinberlega skrá yfir allar réttir haustsins, stóðréttir voru þar 17 talsins. Í V-Hún.; Miðfjarðarrétt, Víðidalstungurétt og Þverárrétt í Vesturhópi. Miðfjarðarrétt fór fram laugardaginn 8. september sl. og er hún fyrsta rétt haustsins en Víðidalstungurétt fer fram laugardaginn 6. október nk. og er hún ásamt fleiri réttum sem fram fara þann sama dag síðasta réttin þetta haustið. Í A-Hún. eru réttirnar þessar: Auðkúlurétt, Hlíðarrétt, Skrapatungurétt og Undirfellsrétt. Í Skagafirði eru stóðréttirnar eftirtaldar: Árhólarétt í Unadal, Deildardalsrétt, Flókadalsrétt í Fljót- um, Laufskálarétt, Selnesrétt á Skaga, Skarða- rétt í Gönguskörðum og Staðarrétt. Í Eyjafirði eru þrjár réttir og fara allar fram einn og sama daginn; laugardaginn kemur, 6. október. Í framfirðinum eru Þverárrétt og Melgerðis- melarétt og út í Svarfaðardal er Tungurétt. Yfirbragð þessara rétta er mjög misjafnt. Á sumum þeirra, Laufskálarétt og einhverjum fleiri jafnvel, úir og grúir af áhugasömum gestum en á öðrum fáeinir aðrir en einbeittir hrossaeigendur að draga stóð sitt í dilka og koma því að svo búnu í hausthagana, því að eins og í vísunni segir: Haustið strengir hélubönd, hleður snjó í fjöllin. Senn eru að baki sumarlönd sölna grös um völlinn . (Jón Sigurðsson í Skollagróf) HESTAR OG MENN Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins Stóðréttir Laufskálarétt árið 1986. Ljósmynd úr safni SÍH tekin af Sigurði Sigmundssyni. Evrópukeppni iðn- og verkgreina í Búdapest Kristinn Gísli með framúrskarandi árangur á EuroSkills Góður árangur náðist hjá íslensku ungmennunum í Evrópukeppni iðn- og verk- greina, EuroSkills í Búdapest, sem fram fór dagana 26. - 28. september. Ein silfurverðlaun náðust og þrjár viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur. Einn þeirra sem þær hlaut var Skagfirðingurinn Kristinn Gísli Jónsson. Ásbjörn Eðvaldsson krækti sér í silfurverðlaun í rafeindavirkj- un og hlaut 710 stig, Haraldur Örn Arnarson prentsmiður hlaut 704 stig og varð í 6. sæti af 14 keppendum, Jón Þór Einars- son rafvirki hlaut 700 stig og varð í 8. sæti af 15 keppendum og Skagfirðingurinn Kristinn Gísli Jónsson matreiðslumaður náði einnig í 700 stig og varð í 10. sæti af 24 keppendum. Til að hlotnast viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur, „Medal of Excellence“, þurfti viðkomandi að ná 700 stigum. Það hefur vakið athygli að tveir af átta keppendum eru frá Sauðárkróki en auk Kristins Gísla keppti Þröstur Kárason í trésmíði. Aðrir frá Íslandi voru Finnur Ingi Harrýsson í málm- suðu, Sigurður Borgar Ólafsson í framreiðslu og Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir í bakstri. „Það var mjög krefjandi að taka þátt í þessari keppni. Ég þurfti að skila af mér sjö verk- efnum á 14 klukkustundum,“ sagði Kristinn Gísli í samtali við Feyki. „Það sem var erfiðast við keppnina var síðasti dagur- inn þar sem við fengum tvær og hálfa klukkustund til að skila þriggja rétta máltíð.“ Kristinn Gísli segist nokkuð sáttur með árangurinn en hann endaði í 10. sæti af 24 kepp- endum. Hann telur þennan árangur og þátttökuna í keppn- inni vera góðan undirbúning fyrir komandi keppnir. Mikill undirbúningur var hjá honum fyrir keppnina undir eftirliti og leiðsögn þjálfara síns, Viktors Arnar Andréssonar, Bocuse d´Or kokki. Kristinn Gísli segist ánægð- ur með stuðninginn sem hann fékk en sérstaklega vildi hann þakka langömmu sinni á Hóla- veginum fyrir að hafa kveikt á kertum fyrir sig á meðan á keppni stóð. /PF Kristinn Gísli Jónsson keppandi Íslands í Evrópukeppni iðn- og verkgreina í Búdapest. MYNDIR AF FACEBOOK Einn af réttum Kristins Gísla í keppninni. 37/2018 9

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.