Feykir


Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 10

Feykir - 03.10.2018, Blaðsíða 10
Laufskálarétt í Hjaltadal Gleði og gaman í kulda og trekki Laufskálaréttir voru um síðustu helgi og fóru vel fram. Fjöldi ríðandi manna fór í Kolbeinsdalinn til að sækja stóðið sem gengið hefur á afréttinni í sumar og rak yfir í Hjaltadal þar sem Laufskálaréttin stendur. Fólk lét ekki slæma veðurspá né kulda stoppa sig í að taka þátt í gleðinni því múgur og margmenni var komið til að fylgjast með réttarstörfum. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við fólk né skepnur en þó betra en spár höfðu gert ráð fyrir. Úrkoman varð aldrei nein að ráði og kuldann er einfalt að klæða af sér. Að sögn lögreglunnar á Saruðárkróki var helgin tiltölulega róleg þó einhver mál hefðu komið til kasta hennar og sagt er frá annars staðar í blaðinu. Meðfylgjandi myndir voru teknar á réttardaginn og fanga stemninguna sem ávallt fylgir þessum skemmtilega degi. MYNDIR: FE & PF 10 37/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.