Feykir - 10.10.2018, Blaðsíða 1
38
TBL
10. október 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–8
BLS. 8
Bændamarkaður á Hofsósi
Almenn ánægja
með hvernig
til tókst
BLS. 10
Björn Björnsson fagnaði 75
árunum um liðna helgi og er nú
í opnuviðtali Feykis
Árin tvö urðu að
hálfri öld
Mjólkursöfnun í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslum
Ámundakinn
opnar nýtt hús á
Blönduósi
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Það er alþekkt að sauðfjárbændur
þurfa að hafa allar klær úti til að reka
bú sín og fjármagna tækjakaup. Einn
slíkur hefur útbúið dagatal sem er í
senn fallegt, skemmtilegt og
fróðlegt og afraksturinn fer upp í
dráttarvélarkaup.
Bóndinn, sem kallar sig Karólínu í
Hvammshlíð, er þýskur að uppruna og
keypti eyðijörð sem keyrt er að þar sem
Þverárfjallsvegur liggur sem hæst.
Karólína segir að dagatalið ætti að
falla vel að öllum sem hafa gaman af
kindum, hestum og hundum en það er
skreytt myndum úr hversdagslífinu í
Hvammshlíð.
Í kynningarmyndbandi sem hún setti
á Facebooksíðu sína segir að Bragi, besti
nágranni í heimi, hafi dáið í júní en hann
var alltaf til staðar með dráttarvélina sína
og aðstoðaði Karólínu. Hún segist ekki
geta verið án vélar í búskapnum en hún
heldur 50 kindur og fjögur hross auk
þess sem tveir hundar eru á bænum.
Dagatalið verður fáanlegt eftir 25.
október og segir hún söluna hafa gengið
vonum framar. „Ég er eiginlega alsæl,
peningurinn fyrir vélina sjálfa er þegar
kominn inn. Það er Zetor 7245, árgerð
1990,“ segir hún en þá á eftir að koma
tækjum á gripinn.
„Vélin er komin á Krókinn, búin að
finna notuð tæki á hana og þar sem ég er
svo heppin að eiga góða vini hérna á
svæðinu, sem lánuðu mér til að kaupa
notaða skóflu og rúllugreip, verður
traktorinn fljótlega nothæfur. Vantar þá
bara gaddakeðjur svo allt verði klárt fyrir
veturinn. Ég vona að salan gangi vel
áfram þannig að ég geti borgað vinum
mínum sem fyrst til baka,“ segir hún í
samtali við Feyki. Karólína bendir á að
dagatalið bjóði ekki bara upp á hinar
algengu upplýsingar, vikudaga, tunglið
og rauðu dagana heldur er hægt að finna
gömlu mánuðina á borð haustmánuð
sem nú er eða gormánuð sem hefst fyrsta
vetrardag. Þá eru helstu merkisdagar og
ekki síst gömlu vikutölurnar sem koma
oft fram í gömlum bókum einnig í
dagatalinu og eru enn í dag notaðar af
eldri kynslóðinni. Nú er til dæmis 41.
vika ársins. Þeir sem hafa áhuga á að
eignast dagatalið geta haft samband við
Karólínu í síma 8658107, í skilaboðum á
Facebook eða sent henni póst á
14carom@web.de. /PF
Nýstárleg vélafjármögnun hjá sauðfjárbónda
Selur dagatöl til að
fjármagna dráttarvélarkaup
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Það vetraði snemma í Hvammshlíð enda liggur jörðin hátt. Hér er hægt að kíkja út um gluggann hjá Karólínu gegn um litla rifu MYND: KARÓLÍNA Í HVAMMSHLÍÐ
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur! ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS