Feykir


Feykir - 10.10.2018, Qupperneq 1

Feykir - 10.10.2018, Qupperneq 1
38 TBL 10. október 2018 38. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 6–8 BLS. 8 Bændamarkaður á Hofsósi Almenn ánægja með hvernig til tókst BLS. 10 Björn Björnsson fagnaði 75 árunum um liðna helgi og er nú í opnuviðtali Feykis Árin tvö urðu að hálfri öld Mjólkursöfnun í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum Ámundakinn opnar nýtt hús á Blönduósi Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is Það er alþekkt að sauðfjárbændur þurfa að hafa allar klær úti til að reka bú sín og fjármagna tækjakaup. Einn slíkur hefur útbúið dagatal sem er í senn fallegt, skemmtilegt og fróðlegt og afraksturinn fer upp í dráttarvélarkaup. Bóndinn, sem kallar sig Karólínu í Hvammshlíð, er þýskur að uppruna og keypti eyðijörð sem keyrt er að þar sem Þverárfjallsvegur liggur sem hæst. Karólína segir að dagatalið ætti að falla vel að öllum sem hafa gaman af kindum, hestum og hundum en það er skreytt myndum úr hversdagslífinu í Hvammshlíð. Í kynningarmyndbandi sem hún setti á Facebooksíðu sína segir að Bragi, besti nágranni í heimi, hafi dáið í júní en hann var alltaf til staðar með dráttarvélina sína og aðstoðaði Karólínu. Hún segist ekki geta verið án vélar í búskapnum en hún heldur 50 kindur og fjögur hross auk þess sem tveir hundar eru á bænum. Dagatalið verður fáanlegt eftir 25. október og segir hún söluna hafa gengið vonum framar. „Ég er eiginlega alsæl, peningurinn fyrir vélina sjálfa er þegar kominn inn. Það er Zetor 7245, árgerð 1990,“ segir hún en þá á eftir að koma tækjum á gripinn. „Vélin er komin á Krókinn, búin að finna notuð tæki á hana og þar sem ég er svo heppin að eiga góða vini hérna á svæðinu, sem lánuðu mér til að kaupa notaða skóflu og rúllugreip, verður traktorinn fljótlega nothæfur. Vantar þá bara gaddakeðjur svo allt verði klárt fyrir veturinn. Ég vona að salan gangi vel áfram þannig að ég geti borgað vinum mínum sem fyrst til baka,“ segir hún í samtali við Feyki. Karólína bendir á að dagatalið bjóði ekki bara upp á hinar algengu upplýsingar, vikudaga, tunglið og rauðu dagana heldur er hægt að finna gömlu mánuðina á borð haustmánuð sem nú er eða gormánuð sem hefst fyrsta vetrardag. Þá eru helstu merkisdagar og ekki síst gömlu vikutölurnar sem koma oft fram í gömlum bókum einnig í dagatalinu og eru enn í dag notaðar af eldri kynslóðinni. Nú er til dæmis 41. vika ársins. Þeir sem hafa áhuga á að eignast dagatalið geta haft samband við Karólínu í síma 8658107, í skilaboðum á Facebook eða sent henni póst á 14carom@web.de. /PF Nýstárleg vélafjármögnun hjá sauðfjárbónda Selur dagatöl til að fjármagna dráttarvélarkaup Holræsa- og stífluþjónusta Bjóðum alhliða lagnahreinsun og lagnamyndun Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is Það vetraði snemma í Hvammshlíð enda liggur jörðin hátt. Hér er hægt að kíkja út um gluggann hjá Karólínu gegn um litla rifu MYND: KARÓLÍNA Í HVAMMSHLÍÐ Hér er laust pláss! Hafðu samband í síma 455 7171 og tryggðu þér frábæran stað til að minna á þig eða fyrirtækið þitt – Feykir er sprækur sem lækur! ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.