Feykir - 10.10.2018, Page 10
Mjólkursöfnun í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum
Ámundakinn opnar
nýtt hús á Blönduósi
Laugardaginn 6. október,
var nýtt þjónustuhús fyrir
mjólkursöfnun í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslum
tekið formlega í notkun
að Hnjúkabyggð 34. Jón
Gíslason flutti tölu fyrir hönd
stjórnar Ámundakinnar og fór
yfir starfsemi fyrirtækisins
en hlutverk og markmið
þess er m.a. að byggja og
leigja út atvinnuhúsnæði til
atvinnustarfsemi á svæðinu.
Ámundakinn á húsnæði á
Skagaströnd, Blönduósi,
Hvammstanga og Sauðár-
króki.
Næst tók Jóhannes Torfason
framkvæmdastjóri Ámunda-
kinnar við og fór yfir ferlið frá
upphafi. Um miðjan febrúar
2017 undirrituðu fulltrúar
Ámundakinnar, Auðhumlu,
KS og MS viljayfirlýsingu um
byggingu á nýju þjónustuhúsi
og leigu til langs tíma. Markmið
byggingarinnar var að bæta
vinnuaðstöðu bílstjóra og
aðstöðuna fyrir bílanna sjálfa.
Fullyrða má að þessi ákvörðun
sé hluti af þeirri samfélagsstefnu
sem er og á að vera mikilvægur
þáttur í starfi þessara aðila.
Stjórnendur Ámundakinnar
hófust þegar handa um hönnun
og að tryggja peninga til
framkvæmda. Samið var við
Verkfræðistofuna Stoð á Sauð-
árkróki um hönnun að undan-
skyldu rafmagni og loftræsingu,
einnig um eftirlit. Magnús
Ingvarsson er aðalhönnuður.
Þá var samið við Faxatorg á
Sauðárkróki um bygginga-
stjórn. Að undangengnu útboði
var samið við Landsbankann á
Sauðárkróki um 100% fjár-
mögnun á öllum framkvæmd-
um
Húsið er 561 fermetri að
grunnfleti, með rúmlega 5
metra lofthæð. Í húsinu má
finna tvö rúmgóð búnings-
herbergi með baði, kaffistofu,
skrifstofu og tvö hvíldarher-
bergi með baði. Framkvæmda-
kostnaður var um 190 mkr.
Nokkrar tafir urðu á
afhendingu lóðar m.a. vegna
þess að lóð sem fyrst var
úthlutað hentaði ekki og einnig
vegna óska Ámundakinnar um
staðsetningu hússins á lóð-
inni. Fyrsta skóflustungan var
tekin 23. júní 2017.
Samið var við Trésmiðjuna
Stíganda sem aðalverktaka og
hefur Guðmundur Sigurjóns-
son verið byggingameistari.
Það eru um og yfir eitt-
hundrað manns sem hafa
komið að þessari framkvæmd
með einhverjum hætti
Öllu þessu fólki var þakkað
fyrir góð samskipti og gott
handverk og var ánægjulegt að
heyra umsagnir utanaðkom-
andi aðila, sem bera lof á
frágang allan. Fram kom í máli
Jóhannesar að stundum hafi
verið næðingur og kuldi í vetur
meðan húsið var að rísa.
Að lokum þakkaði Jóhannes
fyrir að engin alvarleg slys urðu
á fólki á byggingartímanum,
því mörg verk sem þar voru
unnin voru ekki hættulaus.
Magnús Guðmundsson og
Ari Edwald tóku svo við lykl-
unum frá Jóhannesi. Í máli Ara
kom fram að hagræðing væri
fólgin í þessu nýja fyrirkomu-
lagi og að mjólkurflutningar KS
hefðu verið felldir undir MS.
Að lokum var samsöngur
um Bjössa á mjólkurbílnum,
staðfærð að bílstjórum MS og
boðið var upp á veitingar.
Tónlistaratriði voru í hönd-
um Skarphéðins H. Einarssonar
og Benedikts Blöndal Lárus-
sonar.
Frá opnuninn. MYNDIR: LAM
TEXTI OG MYNDIR
Lee Ann Maginnis
Krabbameinsfélag Hvammstangalæknishéraðs
Heldur sláturbasar til
styrktar starfi félagsins
Sláturbasar Krabba-
meinsfélags Hvammstanga-
læknishéraðs verður
haldinn næstkomandi
laugardag, þann 13.
október. Basarinn verður
haldinn í Félagsheimilinu
á Hvammstanga og hefst
hann klukkan 13:00.
Krabbameinsfélagið í hér-
aðinu hefur, allt frá árinu
1991, staðið fyrir sláturgerð
og sláturbasar til styrktar
starfi félagsins og er hug-
myndin komin frá fyrrverandi
formanni félagsins, Sigríði
Karlsdóttur.
Sláturgerðin sjálf fer fram í
dag, miðvikudag, en þá mæta
sjálfboðaliðar til starfa í
félagsheimilinu á tilteknum
tíma og leggja sitt af mörkum
við sláturgerðina. Auglýst er
eftir fólki með fyrirvara en
stjórn félagsins sendir frétta-
bréf á öll heimili á starfs-
svæðinu og tilkynnir hvenær
sláturgerðin og basarinn eru
og býður þannig fólki að taka
þátt og leggja til á basarinn.
Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga og sláturhús KVH styrkja
félagið með því að gefa allt
hráefni til sláturgerðarinnar
og einnig styrkir Félagsheim-
ilið á Hvammstanga félagið
með því að heimila endur-
gjaldslaus afnot af félags-
heimilinu.
Soffía Anna Steinarsdóttir,
formaður félagsins, segir að
sláturgerðin og basarinn hafi
notið mikilla vinsælda. Slátur-
basarinn er haldinn annað
hvert ár en hitt árið selur fél-
agið ýmsa smávöru til fjár-
öflunar, s.s. málbönd, penna
og fleira. Auk slátursins fær
félagið ýmislegt annað á bas-
arinn, t.d. kaffibrauð, kökur,
sultur, harðfisk og fleira þess
háttar og einnig ýmiss konar
handavinnu. Allt þetta er
gefið af einstaklingum á
starfssvæði Krabbameins-
félagsins og segir Soffía Anna
að félagið njóti einstaks
velvilja.
Í ár er félagið 50 ára og svo
skemmtilega vill til að basar-
inn verður einmitt haldinn á
afmælisdaginn, 13. október.
Er því stefnt að því að hafa
basarinn sem veglegastan að
þessu sinni. /FE
Helga Hreiðarsdóttir, ljósmóðir á heilsugæslunni á Hvammstanga, kann greinilega
handtökin við sláturgerðina.
Margar hendur vinna létt verk. Saumað fyrir keppnina. MYNDIR AÐSENDAR
10 38/2018