Feykir - 10.10.2018, Side 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Gríma.
Feykir spyr...
Hvernig spáir
þú gengi
meistaraflokka
Tindastóls í
körfunni?
Spurt á Facabook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Fyrsta sætið hjá körlunum
og neðri hluti deildarinnar hjá
konunum þar sem við erum
með nýtt lið þar.“
Unnur Rún Sigurpálsdóttir
„Hef fulla trú að þetta verði árið
okkar í karla körfunni og við
löndum þeim stóra í vor.
Kvenna liðið er að fara að
berjast um 3-4 sætið.“
Elvar Örn Birgisson
„Ég spái þeim massa góðu
gengi. Þá er sérstaklega gaman
að sjá þá valta yfir KR, þó ég búi
nú í Vesturbænum.“
Margrét Gísladóttir
„Meistarar loksins! Axel Kára,
drullaðu þér á næstu æfingu.“
Auðunn Blöndal
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Við verðum að kenna börnum okkar að leysa ágreiningsefni
sín með orðum, ekki vopnum. – Bill Clinton
Su
do
ku
EFTIRRÉTTUR
Eplakaka
með marengs
Botn:
150 g smjör
3½ dl hveiti
1 msk vatn
Aðferð: Hnoðið létt saman. Þrýstið í
eldfast mót og upp með hliðunum.
Pikkið botninn með gaffli og bakið í
10 mínútur við 200°C.
Fylling:
4 stór epli, afhýdd og steinhreinsuð
og skorin í bita
2 dl sykur
2 tsk kanill
Aðferð: Sjóðið allt saman í u.þ.b. 8 til
10 mínútur. Setjið allt saman yfir
deigið í bakkanum.
Marengs:
3 eggjahvítur
1½ dl sykur
Aðferð: Stífþeytið hvíturnar og
blandið sykrinum smátt og smátt út í.
Þekið eplin með marengsinum og
bakið í 150° heitum ofni í 25 mínútur.
Best með vanilluís eða rjóma.
Verði ykkur að góðu!
Við skorum á Lindu Björk
Ævarsdóttur og Kristján Steinar
Kristjánsson að koma með upp-
skriftir næst.
Matgæðingar þessarar viku heita Ósk Jóhannesdóttir og Guðmann
Valdimarsson sem hafa verið búsett á Blönduósi sl. þrjú ár en
Guðmann er Blönduósingur að upplagi og Ósk er fædd og uppalin á
Akureyri. Guðmann vinnur hjá Rafmagsverkstæðinu Átak en Ósk
er heimavinnandi ásamt því að vinna með fötluðum. Þau eiga tvö
börn, Valdimar Loga, 8 ára, og Stefaníu Björgu, 9 ára.
Ósk og Guðmann ætla að gefa lesendum uppskrift að
kúrekapottrétti sem þau segja að sé mjög vinsæll hjá börnunum á
heimilinu og oft pantaður. Uppskriftina að réttinum segist Ósk hafa
fengið hjá systur sinni ásamt eftirréttinum sem þau bjóða upp á.
„Það er eplakaka með marengs sem smakkast guðdómlega og að
sjálfsögðu þarf að vera ís með honum,“ segir Ósk.
AÐALRÉTTUR
Kúrekapottréttur
(Chili con carne)
u.þ.b. 500 g folaldagúllas
2 laukar, saxaðir
½ -1 hvítlaukur, saxaður
1 dós tómatpúrra, 170 g
1-2 nautateningar
chilipipar
svartur pipar, grófmalaður
smávegis af salti
u.þ.b. 2 msk paprikuduft
u.þ.b. ½ l vatn
1 dós bakaðar baunir (mega vera 2
dósir ef þið viljið)
100-200 g beikon, skorið í bita
Aðferð: Gúllas og beikon brúnað.
Tekið af pönnunni og geymt meðan
grænmetið er glærað í smá smjöri og
olíu. Þá er gúllasinu hrært út í og
kryddað með paprikuduftinu,
teningum og chiliduftinu. Mallað í
u.þ.b. ½ -1 mínútu. Þá er vatni og
púrru hrært út í og látið malla, allt
upp í þrjár klukkustundir en að
minnsta kosti eina, þannig að mesta
vatnið hafi gufað upp og bara þykk
sósa eftir. Smakkið til með salti og
pipar. Í lokin, rétt áður en borið er
fram þá er bökuðu baununum bætt
út í og bara látið hitna en ekki sjóða.
Flott með hrísgrjónum og góðu
brauði með smjöri.
Vinsæll
kúrekapottréttur
og eplakaka með
marengs
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Guðmann og Ósk á Blönduósi matreiða
Guðmann og Ósk. MYND ÚR EINKASAFNI
38/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Fólk sem stundar BDSM kynlíf gæti verið heilbrigðara en fólk sem
stundar hefðbundnara kynlíf, samkvæmt rannsókn sem birt var
í tímaritinu „The journal of sexual medicine“. Vísindamenn sem
stóðu að rannsókninni fundu út að fólk sem stundar BDSM kynlíf
– bindingar, sadisma, dómínerandi og masókisma – komu betur
út á sálfræðiprófi en þeir sem stunduðu ekki afbrigðilegt kynlíf.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá slasa sig um 11.000 Bandaríkjamenn á
ári við að stunda óhefðbundið kynlíf.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Ég er þjófi búningsbót.
Bók um þjóðleg fræði.
Fágætt nafn á fríðri snót.
Færi kyrrð og næði.
FEYKIFÍN AFÞREYING