Feykir - 10.10.2018, Síða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
38
TBL
10. október 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Tvíburar frá Hofsósi fengu styrk
Hvatningarsjóður Kviku
Tvíburasystkinin Ester María
Eiríksdóttir og Jón Örn Eiríksson
frá Hofsósi, fengu á dögunum
styrk úr Hvatningarsjóði Kviku,
hvort um sig upp eina milljón
króna.
Ester María og Jón Örn eru í hópi tíu
einstaklinga, sex kvenna og fjögurra
karla, sem hlutu styrk úr Hvatn-
ingarsjóðnum að þessu sinni. Þrír
fengu eina milljón króna, tveir fengu
500 þúsund krónur og fimm fengu
200 þúsund krónur.
Ester María og Jón Örn eru 17
ára gömul og eru bæði á öðru ári í
framhaldsskóla. Ester nemur húsa-
smíði við Verkmenntaskólann á
Akureyri en stefnir á nám í
húsgagnasmíði í framhaldi af því.
Einnig hyggst hún klára stúdents-
prófið til viðbótar við iðnnámið. Jón
Örn stundar nám í rafvirkjun við
Raftækniskólann í Reykjavík og
setur stefnuna á Hljóðtækniskólann
í framhaldi af því þar sem hann
hugsar sér að læra hljóðvinnslu. Jón
Örn var ekki nema 14 ára gamall
þegar hann hannaði app fyrir
android spjaldtölvu sem er ætlað að
halda utan um reykköfun. Hann
seldi það til Mannvirkjastofnunar og
keypti sér skellinöðru og DJ-græjur
fyrir peningana að því er segir í frétt
á Vísi.is.
Auk systkinanna fékk Aðalheiður
Dögg Reynisdóttir eina milljón
króna í styrk en hún er 21 árs
Garðbæingur sem nú er í starfsnámi
hjá Michelin stjörnu veitinga-
staðnum Pollen Street Social í
London. /PF
18. maí 1947: 18. maí - Séra Jóni Benediktssyni
presti að Goðdölum var veittur Breiðabólstaður á
Skógarströnd
9. júlí: Séra Jón Hallsson fékk veitingu fyrir Goðdölum
20. júlí: Jóhann Jónsson bóndi á Hrauni í Unadal
hafði verið geðveikur um sinn og skaut sig í hugarvíli.
,,Vænn maður.“
18. ágúst: Séra Hinrik Hinriksson aðstoðarprestur að
Flugumýrarþingum fékk Bergsstaði í Svartárdal
11. september: Séra Stefán Árnason fékk Fell í
Sléttuhlíð. /PF
Skagfirskur annáll
Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947
Í gamla daga...
Skemmdir á viðlegukanti
Norðurgarður Hofsósi
Hafin er viðgerð á viðlegukanti á norðurgarði á Hofsósi.
Viðgerðin nær til um 15 til 20m kafla við löndunarkrana
á bryggjunni þar sem komin eru göt á steypta veggi og
efni hefur skolað undan bryggjunni.
Í fundargerð umhverfis- og samgöngunefndar kemur fram
að verkið sé unnið af Köfunarþjónustunni og áætlaður
kostnaður sé um 15 milljónir. Útgjöldum vegna verksins
verður mætt með auknum tekjum Hafnarsjóðs. /PF
Viðlegukantur illa farinn á bryggjunni á Hofsósi. MYND: FE
Höfnin dýpkuð
Hvammstangi
Um helgina var dýpkunarskipið Dísa að athafna sig í
Hvammstangahöfn en kominn var tími á smá hreinsun.
Á heimasíðu sveitarfélagsins segir að með tímanum
safnist sandur í botninn í innsiglingunni og við
norðurbryggjuna þar sem flutningaskipin leggja að og
voru skipstjórar farnir að finna fyrir því. Dýpkunarskipið
átti leið hjá og þótti skynsamlegt að nýta það til starfans.
Síðast var dýpkað árið 2013. /PF
Dísa við innsiglinguna á Hvammstangahöfn. MYND: HUNATHING.IS