Feykir


Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 1

Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 1
39 TBL 17. október 2018 38. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BLS. 6–7 BLS. 9 Höskuldur svarar Rabbinu Draumakvöldverður með Sir Alex, Sir Bobby og Sir Matt BLS. 10 Heimaslátrun í trássi við lög Vilja láta reyna á undanþáguákvæði evrópsku matvæla- löggjafarinnar Ingunn Ásdís Sigurðardóttir svarar Bók-haldinu Lætur Guðrúnu frá Lundi passa upp á hámarkshraðann Við þjónustum bílinn þinn! Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570 Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða- menn með áralanga reynslu. Nýttu þér netverslun Skoðaðu vöruúrvalið á lya.is Í gær var fimmtugasta og jafnframt síðasta íbúðin afhent nýjum eigendum sem Búhöldar, félag um byggingu húsa fyrir eldri borgara á Sauðárkróki, var með í smíðum. Þá hafa risið alls 25 parhús á þess vegum á 18 árum en fyrsta íbúðin var afhent árið 2000. Sex íbúðir Búhölda eru við Iðutún og eru húsin sett saman úr steypueiningum frá Akranesi. Þau koma frágengin að utan og með öllum lögnum að innan, hiti í gólfum og því engir ofnar á veggjum. Hinir nýju eigendur íbúðarinnar sem um ræðir eru þau Hulda Gísladóttir og Halldór Hjálmarsson á Sauðárkróki. Þau voru í sjöunda himni af þessu tilefni og sögðu mikla breytingu til batnaðar. „Það verður mikill munur að losna við stigana,“ sagði Halldór og Hulda skaut inn í: „Já, og hætta að detta í þeim.“ „Það er kominn tími til að stærri fjölskylda fari að nota þessa stóru fasteign,“ sagði Halldór og meinti gamla húsið þeirra sem brátt fer á sölu.“ Aðspurð um af hverju þau hafi ákveðið að fara í þetta kerfi segja þau að vel hafi verið látið að því og ekki síður húsunum sem séu vel smíðuð og frágangur til fyrirmyndar. Í tilefni dagsins var nýjum eigendum gefin blóm sem og fráfarandi formanni Búhölda, Þórði Eyjólfssyni, sem hefur verið potturinn og pannan í uppbyggingu húsanna allt frá upphafi. Ný stjórn Búhölda hefur tekið við og er skipuð þeim Gunnari Steingrímssyni formanni, Maríu Grétu Ólafsdóttur, Guðmundi Tómassyni, Unni Sigurðar- dóttur og Bergljótu Bjarnadóttur. /PF Búhöldar hafa byggt 25 parhús á 18 árum Fimmtugasta íbúðin afhent nýjum eigendum Holræsa- og stífluþjónusta Bjóðum alhliða lagnahreinsun og lagnamyndun Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958. Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is Við afhendingu 50. íbúðarinnar í gær. Frá vinstri: Helgi Þorleifsson smiður, Stefán Steingrímsson varastjórn, Þórður Eyjólfsson fráfarandi formaður Búhölda, Fjolmundur Fjólmundsson varastjórn, Ragnar Guðmundsson varastjórn, Hulda Gísladóttir og Halldór Hjálmarsson íbúðareigendur og Gunnar Steingrímsson nýr formaður Búhölda. MYND: PF Hér er laust pláss! Hafðu samband í síma 455 7171 og tryggðu þér frábæran stað til að minna á þig eða fyrirtækið þitt – Feykir er sprækur sem lækur! ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.