Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 1
39
TBL
17. október 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 9
Höskuldur svarar Rabbinu
Draumakvöldverður
með Sir Alex, Sir
Bobby og Sir Matt
BLS. 10
Heimaslátrun í trássi við lög
Vilja láta reyna á
undanþáguákvæði
evrópsku matvæla-
löggjafarinnar
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir
svarar Bók-haldinu
Lætur Guðrúnu frá
Lundi passa upp á
hámarkshraðann
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Í gær var fimmtugasta og jafnframt
síðasta íbúðin afhent nýjum
eigendum sem Búhöldar, félag um
byggingu húsa fyrir eldri borgara á
Sauðárkróki, var með í smíðum. Þá
hafa risið alls 25 parhús á þess
vegum á 18 árum en fyrsta íbúðin
var afhent árið 2000.
Sex íbúðir Búhölda eru við Iðutún og eru
húsin sett saman úr steypueiningum frá
Akranesi. Þau koma frágengin að utan
og með öllum lögnum að innan, hiti í
gólfum og því engir ofnar á veggjum.
Hinir nýju eigendur íbúðarinnar sem
um ræðir eru þau Hulda Gísladóttir og
Halldór Hjálmarsson á Sauðárkróki. Þau
voru í sjöunda himni af þessu tilefni og
sögðu mikla breytingu til batnaðar. „Það
verður mikill munur að losna við
stigana,“ sagði Halldór og Hulda skaut
inn í: „Já, og hætta að detta í þeim.“
„Það er kominn tími til að stærri
fjölskylda fari að nota þessa stóru
fasteign,“ sagði Halldór og meinti gamla
húsið þeirra sem brátt fer á sölu.“
Aðspurð um af hverju þau hafi ákveðið
að fara í þetta kerfi segja þau að vel hafi
verið látið að því og ekki síður húsunum
sem séu vel smíðuð og frágangur til
fyrirmyndar.
Í tilefni dagsins var nýjum eigendum
gefin blóm sem og fráfarandi formanni
Búhölda, Þórði Eyjólfssyni, sem hefur
verið potturinn og pannan í uppbyggingu
húsanna allt frá upphafi.
Ný stjórn Búhölda hefur tekið við og
er skipuð þeim Gunnari Steingrímssyni
formanni, Maríu Grétu Ólafsdóttur,
Guðmundi Tómassyni, Unni Sigurðar-
dóttur og Bergljótu Bjarnadóttur. /PF
Búhöldar hafa byggt 25 parhús á 18 árum
Fimmtugasta íbúðin
afhent nýjum eigendum
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Við afhendingu 50. íbúðarinnar í gær. Frá vinstri: Helgi Þorleifsson smiður, Stefán Steingrímsson varastjórn, Þórður Eyjólfsson fráfarandi formaður Búhölda, Fjolmundur
Fjólmundsson varastjórn, Ragnar Guðmundsson varastjórn, Hulda Gísladóttir og Halldór Hjálmarsson íbúðareigendur og Gunnar Steingrímsson nýr formaður Búhölda.
MYND: PF
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur! ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS