Feykir


Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 10

Feykir - 17.10.2018, Blaðsíða 10
Ingunn Ásdís Sigurðardóttir, sem titlar sig sem sérkennara á eftirlaunum, móður, ömmu, vinkonu og margt fleira, hefur lengi verið búsett á Sauðárkróki og starfað sem sérkennari við Árskóla. Ingunn segir lestrarvenjur sínar hafa tekið talsverðum breytingum í tímans rás og listinn yfir lesefni hennar er afar fjölbreytilegur enda segist hún eiga þó nokkur hundruð bóka í bókahillum heimilisins. Hvers konar bækur lestu helst? Lestrarvenjur mínar hafa tekið breytingum í gegn um tíðina. Ég hef lesið heilmikið af fræðibókum í tengslum við starfið, kennslufræði og kenningar um líðan barna, birtingarmyndir og einkenni ýmiss konar vanda, kenningar greiningar og gagnleg úrræði. Listinn gæti orðið langur! Á álagstímum og þörf fyrir eitthvað „róandi“ að lesa fyrir svefninn var ég áður sólgin í að lesa leynilögreglu- og glæpasögur! Það gat reyndar stytt svefntímann ef þær voru mjög spennandi, en lesturinn hvíldi samt hugann sem annars var sífellt upptekinn við vinnutengdar lausnaleitir. Nú hef ég betri tíma og nýt þess að lesa margs konar reynslusögur og ferðabækur, þó að notalegt „léttmeti“ sé alla jafna á náttborðinu líka. Ég las nýlega bókina Villt, eftir Sheryl Strayed, sem Elísa Jóhannsdóttir þýddi. Mæli með henni. Nú er ég líka heilluð af bókum Jenny Colgan í þýðingu Ingunnar Snædal, um Litlu bókabúðina í Hálöndunum og bækurnar um Bakaríið við Strandgötu. Mér þykir gott að hlusta á hljóðbækur í bílnum. Góði dátinn Sveijk var lengi ferðafélagi minn og ég saknaði hans þegar bókin var búin. Nú eru sögurnar hennar Guðrúnar frá Lundi alltaf með í lengri ferðum. Hæg framvinda sögu- þráða þeirra tryggir að ég keyri ekki yfir hámarkshraða á meðan ég hlusta og lifi mig inn í gamla tímann, sem hún lýsir svo notalega. Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá þér þegar þú varst barn? Sem barn og unglingur gleypti ég í mig allar hefðbundnu barna- og unglingabækurnar sem bárust inn á heimilið og þóttu „strákabækurnar“ ekki lakara lesefni en þær sem voru kyrfilega merktar stelpum. Af „nýrri“ unglingabókum vil ég nefna perlurnar Benjamín Dúfu, eftir Friðgeir Erlingsson og bækur Guðrúnar Helga- dóttur. Bækur Ole Lund Kirke- gaard um Gúmmí Tarsan, Fúsa froskagleypi, Virgil litla o.fl. standa líka alltaf fyrir sínu. Bókaskápurinn hans afa Þorbjörns, á bernskuheimili mínu, geymdi margt forvitni- legt. Afi hafði stundum þann sið að strika undir það sem honum þótti athyglisvert og grípandi í bókunum og skrifa athugasemdir á spássíurnar. Halla og Heiðarbýlið eftir Jón Trausta og sögur Þorgils gjallanda báru allar þessi merki og ég las þær af innlifun sem barn. Svo hafði ég líka dálæti á Þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. Hver er þinn uppáhaldsrit- höfundur og hvers vegna? Ég Ingunn Ásdís Sigurðardóttir. MYND ÚR EINKASAFNI Uppáhaldsbækur Ingunnar: Blómálfabókin sem hún eignaðist þegar hún var á öðru ári og Ævisögubrot hennar sjálfrar sem hún fékk þegar hún varð sextug. MYND ÚR EINKASAFNI ( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is Lætur Guðrúnu frá Lundi passa upp á hámarkshraðann Ingunn Ásdís Sigurðardóttir / Sauðárkróki vel að nefna hér Guðrúnu Helgadóttur. Hún hefur gefið okkur dýrmætan bókmennta- arf, sem við þurfum að hlúa að og meta að verðleikum. Hvaða bækur eru á náttborðinu hjá þér þessa dagana? Þar kennir nú ýmissa grasa: Málkrókar eftir Mörð Árna- son, Allar smásögur Tolstoys í þýðingu Gunnars Dal, Svar Soffíu, þýdd af Ingibjörgu Elsu Björnsdóttur, Vitu og Benedikt S. Lafleur, Harry Potter og fanginn frá Azkaban eftir J.K. Rowling, Árið sem tvær sekúndur bættust við tímann í þýðingu Ingunnar Snædal, Konan í blokkinni eftir Jónínu Leósdóttur og Húnavaka 2018 halda mér félagsskap núna. Ertu fastagestur á einhverju bókasafni? Við hjónin notum Héraðsbókasafn Skagfirðinga mjög mikið. Áttu þér uppáhaldsbókabúð? Það er alltaf nærandi fyrir sálina að koma í „alvöru“ bókabúðir með notalegu and- rúmslofti. Bókastaflar á borð- um stórverslana sem alla jafna selja matvöru o.þ.h. freista mín hins vegar ekki. Hvað kaupirðu eða eignast að jafnaði margar nýjar bækur yfir árið? Vegna plássleysis er ég hætt að „safna“ bókum, en nýti mér bókasöfn og skiptibóka- markaði í staðinn. Eignast samt 3-4 á ári. Hefur einhver bók sérstakt gildi fyrir þig? Nefni hér tvær bæk- ur sem eru mér hjartfólgnar: Fyrstu bókina sem ég eignaðist „sjálf “ fékk ég frá afa á Hofi er ég var á öðru ári. Hún heitir Blómálfabókin og var þýdd af Freysteini Gunnarssyni. Marg- lesin og skoðuð en ber aldurinn vel. Hina bókina gáfu synir mínir og fjölskyldur þeirra mér er ég varð sextug. Hún ber nafn mitt og undir- titilinn Ævisögubrot. Mjög persónuleg bók og stútfull af dýrmætum minningum. Ef þú ættir að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um bók, hvaða bók yrði þá fyrir valinu? Það færi algerlega eftir persónunni. Ástarljóð Páls Ólafssonar kæmu til greina, eða Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna, sem Silja Aðalsteins- dóttir valdi. Markviss 30 ára Fagnar með byssu- sýningu á Blönduósi Afmælissýning Skotfél- agsins Markviss verður haldið næsta laugardag 20. Október í Félagsheimilinu á Blönduósi. Þar verður dregið fram í dagsljósið það helsta úr eigu félagsmanna og segir í tilkynningu að fjölbreyti- leikinn sé í fyrirrúmi, her- rifflar, skammbyssur, veiði- byssur, keppnisbyssur, byssur smíðaðar af Jóni Þorsteinssyni og Jóni Björnssyni o.fl. Byssusýning er í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Daginn eftir verður efnt til Rjúpnafjörs 2018 sem er árlegt gleði og grínmót Markviss og sagt er óhefð- bundnasta skotmót ársins hérlendis, ef ekki í gjörvallri Norður-Evrópu. „Nánari uppsetning og útfærsla er algert trúnaðar- mál en skýrist upp að vissu marki á mótsdegi. Hvetjum alla sem vettlingum, húfum og öðru lauslegu geta valdið (t.d. haglabyssum) til að taka þátt í þessu bráð- skemmtilega móti,“ segir á Facebooksíðu félagsins. /PF SSNV Hefurðu áhuga á að virkja lækinn þinn? Smávirkjanasjóður SSNV auglýsir eftir umsóknum í Skref 1 sem er frummat smávirkjana. Tilgangur sjóðsins er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum á Norðurlandi vestra sem eru undir 10 MW að stærð. Miðað er við fyrirliggj- andi yfirlit á mögulegum rennslisvirkjunum sem upp eru taldir í skýrslu Mannvits 2018: Frumúttekt á smá- virkjanakostum á Norður- landi vestra. Þó er heimilt að bæta við fleiri virkjunar- kostum með samþykki SSNV. Sjá nánar á ssnv.is /PF 10 39/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.