Feykir


Feykir - 07.11.2018, Blaðsíða 4

Feykir - 07.11.2018, Blaðsíða 4
16. apríl 1847: Árið1845 réðst Jón Bjarnason í Eyhildar- holti í að kaupa þilskip frá Borgundarhólmi ásamt Pétri bróður sínum bónda á Reykjum á Reykjaströnd. Skipið hét Vigo; var jafnan kallað Eyhildarholtsduggan eða -jagtin. Kaupverðið var 1500 dalir, stórfé; talið var, að annað eins hefði gengið til útgerðarinnar. Sama árið og þeir bræður keyptu þilskipið eða ári síðar, lét Jón reisa sjóbúð mikla úti á Gönguskarðsáreyri, sem kölluð var Holtsbúð. Hún var ,,með torfveggjum og timburstöfnum og svefnlofti fyrir sjómennina; hún var falleg og lík Borgarkirkju hinni gömlu.“ Jón bóndi í Eyhildarholti sendi Jón, son sinn, á stýrimannaskóla til Danmerkur. Lauk hann þar prófi með ágætis vitnisburði. Fyrir skipinu hafði Jón bóndi danskan skipstjóra syni sínum til halds og trausts og með honum var bróðir hans ungur. Vorið 1846 héldu þeir bræður skipi sínu til veiða. Afli var fremur tregur. Seint á slætti var duggan sett upp í Gönguskarðsárós, svo sem títt hafði verið forðum. Vel fór um skipið af veturinn. En hinn 6. október fyrrnefnt ár gerði stórviðri. ,,Var brimrót ógurlegt, tók út í nokkrum stöðum, því sjór gekk langt á land og víða upp fyrir háa bakka.“ Brimið hafði hlaðið geysimikinn malarkamb fyrir framan skipið í haustgarðinum og horfði uggvænlega að ná því út, er þess var freistað snemma um vorið 1847. Þeir bræður söfnuðu að sér mönnum, og tókst loks að rjúfa malargarðinn fyrir framan skipið. Var haldið til veiða síðla í marz, því að veður voru óvenju blíð. Hinn 15. apríl lá Eyhildarholtsjagtin á Höfðalegu. Voru þá tveir skipverja ólmir að komast í land, því þeir voru kvaldir af sjóveiki. Skipstjóri meinaði þeim landgöngu, þar eð hann óttaðist, að þeir mundu strjúka af skipinu. Aðfaranótt hins 16. apríl var aftur haldið til veiða. Skall þá skyndilega á útnorðanrok með snjókomu. Áhöfn verzlunarduggu, sem var að koma frá Kaupmannahöfn og stefndi inn Húnaflóa um viku sjávar frá Strandarhorni, sá Eyhildarholtsjagtina. Urðu þeir þess varir, að bugspjót brotnaði á skipinu, segl rifnuðu og menn tók út. Sást það síðast til þess, að tveir menn voru að höggva sigluna. Týndist skipið, og rak ekkert úr því. Verzlunarskútan ,,komst sem nauðuglegast inn á Skagastrandarhöfn.“ Með Eyhildarholtsjagt fórust auk Dananna og Jóns stýrimanns, Jón Jónsson frá Kimbastöðum, Skúli Skúlason frá Ög- mundarstöðum, Gísli Hallgrímsson ,,læknis“ Jónssonar, allir ungir efnismenn, og Jóhann Schram gullsmiður frá Höfða á Höfðaströnd. Hann átti konu og börn ung. /PF Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847–1947 Í gamla daga... Varstu fyrst með víxlað skeið – vandséð folatetur. En eftir því sem lengra leið líkaði mér þú betur. (Eiríkur Einarsson) Því sem svo hnyttilega er lýst í vísunni hér að ofan er jú inntak tamningar og þjálfunar hrossa, þ.e. að þeim fari fram jafnt og þétt og henti að tamningunni lokinni í þau verkefni sem þeim eru ætluð. Kynbætur hafa hliðstætt inntak, að rækta gripi sem taka vel tamningu og hafa til að bera stærð, fegurð og myndarskap auk eðlisgróinna kosta. Ekki er nokkur vafi á að ræktuninni hefur fleygt svo fram síðustu áratugina að líkja má við byltingu en mikilvægi tamningarinnar er þó alltaf samt. Ekki er þó ætlunin í þessum pistli að rita um kynbótastarfsemi eða tamningar sem slíkar, heldur datt mér í hug að bera lítilega saman frumtamningar fyrr og nú. Í hinu gagnmerka riti Ásgeirs Jónssonar frá Gottorp, Horfnum góðhestum, er í inngangi kaflans um Skagafjarðarsýslu, sem er í fyrra bindi ritsins, fjallað um skagfirska hestamenn. Þar er kaflinn um Bjarna Jóhannesson frá Reykjum í Hjaltadal (Hesta- Bjarna) eðlilega drýgstur en margir fleiri góðir koma þar við sögu og rétt eins og raunin er enn í dag, hvort sem um hesta eða menn er að ræða, vegast á styrkleikar og veikleikar. Sumir eru bestir í þessu en aðrir í hinu. Einn þessara manna hét Stefán Stefánsson og bjó hann lengi á Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi og talið er að hann hafi komist yfir að temja flesta hesta af öllum tamningamönnum sem uppi voru í Skaga- fjarðarsýslu á síðari helmingi 19. aldar, að Bjarna Jóhannessyni einum undanskildum. Um tamningar Stefáns segir Ásgeir eftirfarandi: „Á löngu tímabili tók Stefán oftast 12 – 15 tamningahesta á vori hverju og tókst oftast að skila þeim vel tömdum um og laust fyrir réttir. Slíkt má telja undraverða elju af búandi manni um hábjargræðistímann og vanrækja þó ekki bú sitt og bjargræðisvegi. En þetta ber ljósast vitni um hve maðurinn hefur verið þessu starfi samgróinn og haft mikla lífsnautn af því.“ Jafnframt greinir Ásgeir frá því að Stefán hafi haft í þjónustu sinni hesthneigða pilta, 12 til 17 ára gamla, og átti einnig ágætan og vel vaninn hund. Ennfremur segir Ásgeir: „Það var um það talað að þegar Stefán var kominn til ferðar með fola- og strákakássuna hvað hann hefði þá verið lífsglaður og ánægður. Þarna var þó ekki fyrir fjárvon eða háum launum að gangast. Hann tók fjórar krónur fyrir tamninguna á hverjum fola. Það voru venjuleg tamningalaun í Skagafirði á þeim árum,“ Og ennfremur: „Þegar allt var komið á skrið áttu strákarnir stundum erfitt með að stjórna folunum á meðan þeir voru lítið sem ekkert tamdir. Lentu þeir þá oft utan vegar á misjöfnum og torsóttum vegi. Þá kallaði Stefán: „Sitjið þið strákar, sitjið þið fastir í hnökkunum og látið vaða á súðum. En haldið þið laust við, haldið þið laust við strákar, því megið þið aldrei gleyma.“ – Þetta voru aðal lífsreglurnar sem Stefán setti sínum ungu riddurum.“ Ögn aftar í kaflanum kemur Ásgeir svo eftirfarandi heildarályktun um tamningaaðferðir Stefáns: „Það sem einkum einkenndi tamningar Stefáns, var hans framúrskarandi natni við höfuðburðinn að fá hann sem bestan og fegurstan ásamt mýkt og léttleika í taumum. Sem frumskilyrði fyrir þessari þjálfun forðaðist hann að folarnir særðust eða fengju of mikinn klemming undan keðju eða við teymingu.“ Berum við nú saman það sem segir í þessum skrifum Ásgeirs við það sem gerist nú til dags sjáum við miklar breytingar. Tamningarnar fóru þá fram yfir sumarið, nú heyrir til algerra undantekninga að menn stundi frumtamningar yfir sumarið, fyrir áratugum síðan færðust þær yfir á veturinn og þá ekki hvað síst við tilkomu tamningastöðvanna sem margar hverjar voru reknar af hestamannafélögunum. Nú seinni áratugina eru frumtamningarnar orðnar að hefðbundnum haustverkum, varð sú breyting raunar vonum seinna. Því sú breyting að farið var að sinna hrossum að hausti og fyrrihluta vetrar hér á landi varð ótrúlega seint. Réðist það líklegast af þrennu; heysparnaðarstefnu í fyrsta lagi, í öðru lagi því að hestamenn snéru sér margir að öðrum verkum á haustin og í þriðja lagi sú trú að hross væru í slíkum dvala á haustin að við þau væri vart hægt að eiga. Annað sem kemur fram í tilvitnuðum texta er áherslan sem Stefán á Skíðastöðum lagði á mýkt og léttleika í taumum og þess vegna forðaðist hann að folarnir særðust eða klemmdust undan keðjunni eða við teymingar. Á þessum tíma var stangabeislið nefnilega ríkjandi sem tamningabeisli. Fráleitt þykir það í dag, eins magnaður búnaður og góðar stangir eru uppi í mótuðum hesti, en á þessum tíma datt mönnum vart í hug að hætta sér á bak tamningafola öðruvísi en með stangir uppi í þeim, voru enda særindi og margháttuð beislisvandamál yfirþyrm- andi. Kristinn Hugason HESTAR OG MENN Kristinn Hugason forstöðumaður Söguseturs íslenska hestsins Frumtamningar Tamningar í Torfgarði árið 1965. Friðrik Stefánsson í Glæsibæ og Sigurjón Jónasson á Syðra-Skörðugili eru að frumtemja á vegum Stíganda. LJÓSMYND ÚR SAFNI SÍH/EEG Jón Bjarnason. MYND: SKAGFIRZKUR ANNÁLL Geysis-bikarinn í körfubolta karla og kvenna Dregið í 16 liða úrslit Fyrsta umferðin í Geysis-bikarnum í körfuknattleik kláraðist í fyrrakvöld en þá hafði meistaraflokkur karla hjá Tindastóli tryggt sig í 16 liða úrslit með sigri á Reyni Sandgerði. Í hádeginu í gær var síðan dregið í 16 liða úrslit keppninnar og drógust Maltbikarmeistarar Tindastóls gegn 1. deildar liði Fjölnis og fengu heimaleik að auki. Þá var einnig dregið í 16 liða úrslitum hjá konunum og fengu Stólastúlkur það verkefni að taka á móti Dominos- deildar liði Breiðabliks í Síkinu. Leikið verður í Geysis-bikarnum dagana 15. - 17. desember en þegar Feykir fór í prentun var ekki búið að raða niður á leikdaga. /PF 4 42/2018

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.