Feykir - 07.11.2018, Síða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
U15 í fótbolta
Þrír krakkar úr Húnaþingi
vestra á úrtaksæfingu
Á heimasíðu Grunnskóla
Húnþings vestra er sagt
frá því að þau Ásdís Aþena
Magnúsdóttir, Hilmir Rafn
Mikaelsson og Sveinn Atli
Pétursson, sem öll eru
nemendur í 9. bekk skólans,
hafi farið á úrtaksæfingu fyrir
U15 landslið í fótbolta helgina
27. og 28. október.
Var ein æfing haldin hvorn
daginn þar sem þjálfarar
fylgdust með þeim. Æfingarnar
voru kynjaskiptar og sóttu þær
18 ungmenni af hvoru kyni.
Valið verður í landsliðið í lok
janúar og er spennandi að sjá
hvort krakkarnir komist áfram.
Þeim Sveini og Hilmi var boðið
að fara með Fjölni til Spánar á
fótboltamót í maí sl. og var
ánægja hjá Fjölni með frammi-
stöðu drengjanna á mótinu og
þeim boðið að ganga til liðs við
liðið sem þeir gerðu. Á vef
skólans segjast strákarnir vera
spenntir yfir þessu mikla og
góða tækifæri sem þeir fá þó
það hafi verið dálítið erfitt gagn-
vart vinum þeirra og tilfinn-
ingum gagnvart Kormáki. /FE
Það var hart barist þegar KR og Tindastóll
mættust í DHL-höllinni sl. föstudagskvöld.
Stólarnir voru eina taplausa liðið í Dominos-
deildinni en Íslandsmeistararnir komu
ákveðnir til leiks og ætluðu augljóslega ekki
að láta Stólana komast upp með einhverja
sirkustakta í sínu húsi. Það reyndist
Tindastólsmönnum þungt í skauti að Urald
King og Viðar voru snöggir að koma sér í
villuvandræði. Ekki hjálpaði til að hinn
háaldraði Jón Arnór Stefánsson gaf árunum
og slitnum löppum langt nef og hreinlega
vann leikinn fyrir Vesturbæinga. Lokatölur
voru 93-86 eftir spennandi lokamínútur.
Leikurinn fór skarplega af stað og skiptust
liðin á um að hafa forystuna. Fyrstu stigin
gerði Urald og var þar að sjálfsögðu um
hollíhú körfu að ræða. Eftir þetta voru Pétur
og Brynjar mesta ógnin í sókn Stólanna en
KR-ingar hófu strax að spila ógnarsterka vörn
á Urald King. Heimamenn voru yfir, 22-20,
eftir fyrsta leikhluta og þeir hófu annan
leikhluta vel, komust í 29-22, en þá tók Pétur
sig til og gerði átta stig í röð og kom Stólunum
yfir, 29-30. Síðustu þrjár mínútur fyrri hálf-
leiks gerðu heimamenn ellefu stig í röð og
voru yfir í hálfleik 48-40.
Þessi skorpa KR-inga reyndist dýrkeypt
Stólunum og ekki batnaði ástandið þegar
Urald fékk dæmdar á sig tvær sóknarvillur á
fyrstu mínútum síðari hálfleiks og var settur á
bekkinn. Helgi Viggós kom inn með feykigóða
baráttu en lið KR var enn með átta stiga
forystu þegar fjórði leikhluti hófst, 71-63.
Vesturbæingum tókst aldrei að hrista lið
Tindastóls af sér í lokafjórðungnum og fór svo
að Stólarnir voru aðeins hársbreidd frá því að
jafna leikinn. Tvö víti fóru forgörðum hjá Pétri
á ögurstundu en Stólarnir náðu muninum
mest niður í þrjú stig þegar um 40 sekúndur
voru eftir. Stjarna kvöldsins, Jón Arnór
Stefánsson, sá til þess að nær kæmust gestirnir
ekki.
Sem fyrr segir átti Jón Arnór geggjaðan
leik. Hann gerði 29 stig, tók sjö fráköst, fiskaði
tíu villur og var hreinlega til vandræða fyrir
Stólana út um allan völl. Á meðan hann var
inn á vann KR leikinn með 19 stigum.
Í liði Tindastóls var Pétur stigahæstur með
21 stig, Brynjar Þór var með 19, Danero 17 og
Urald King 16 og 12 fráköst en hann spilaði
aðeins 25 mínútur vegna villuvandræða. Þá
skilaði Helgi Viggós sterkum 10 stigum.
Næsti leikur Tindastóls er gegn Grindvík-
ingum í Síkinu fimmtudaginn 8. nóvember og
hefst kl. 19:15. /ÓAB
Jón Arnór á skilið mynd af sér í Feyki eftir glæsitakta í síðasta
leik. Það er bara þannig. MYND: HJALTI ÁRNA
Dominos-deildin : KR – Tindastóll 93-86
Lengi lifir í gömlum glæðum
Ásdís, Hilmir og Sveinn. MYND: GRUNNSKOLI.HUNATHING.IS
Nýr leikmaður Tindastóls
Alawoya leysir King af
Urald King, leikmaður
meistaraflokks Tindastóls í
körfubolta, hefur óskað eftir
því að fá frí frá æfingum og
keppni til að vera viðstaddur
fæðingu barns síns.
King mun halda til Banda-
ríkjanna innan tíðar og kemur
aftur til liðsins eftir jól. Körfu-
knattleiksdeildin hefur gengið
frá samningum við P.J. Alawyoa
um að leika með liðinu á meðan
King er í leyfi.
„Stjórn körfuknattleiks-
deildar Tindastóls hefur sam-
þykkt þessa ósk Urald King
enda er fjölskyldan ávallt í
fyrirrúmi,“ segir Ingólfur Jón
Geirsson, formaður deildar-
innar. „Alawoya þekkir íslensku
deildina vel en hann spilaði með
KR árið 2017, lék 19 leiki, var
með 15 stig að meðaltali í leik og
átta fráköst. Stjórn Kkd Tinda-
stóls býður Alawoya velkominn
til félagsins og hlökkum til að sjá
King aftur á vellinum eftir ára-
mót,“ segir Ingólfur Jón. /PF
P.J. Alawoya. MYND AF NETINU
1. deild kvenna : Njarðvík – Tindastóll 88-70
Lið Njarðvíkur lagði Stólastúlkur
Kvennalið Tindastóls spilaði við lið
Njarðvíkur fyrir sunnan sl. laugardag. Þetta
var fjórði leikur Stólastúlkna í 1. deildinni en
síðast lögðu þær ÍR í Síkinu. Þær byrjuðu
leikinn vel en heimastúlkur náðu yfirhönd-
inni fljótlega og náðu síðan upp góðu for-
skoti í þriðja leikhluta. Það náðu stelpurnar
ekki að brúa og lokatölur 88-70.
Því miður vill það bregða við að enga
tölfræði sé að hafa úr leikjum í 1. deild kvenna
en samkvæmt frétt á Karfan.is þá byrjuðu
Stólastúlkur betur en Njarðvíkurliðið var ekki
lengi að koma sér inn í leikinn og taka forystu.
Staðan eftir fyrsta leikhluta 24 – 21. og sjö
heimastúlkur voru þegar komnar á blað en
aðeins þrjár í liði Tindastóls. Heimastúlkur
byrjuðu annan leikhluta vel og komust mest
níu stigum yfir en staðan í hálfleik var 43 – 36.
Lið Njarðvíkur kom svo geysi grimmt til
leiks í síðari hálfleik og náðu til að mynda 10-0
kafla þannig að lið Tindastóls átti lítinn séns
eftir það. Stelpurnar gáfust þó ekki upp og
gerðu atlögu að forystu heimastúlkna í fjórða
leikhluta en það dugði ekki til að þessu sinni.
Í viðtali við þjálfara Tindastóls, Arnoldas
Kuncaitis, þá fannst honum munurinn á
liðunum einna helst vera meiri ákveðni í liði
Njarðvíkur og að þær hafi verið líkamlega
sterkari. Byrjunin hjá Stólastúlkum hafi verið
góð en það hafi skort á skynsemina þegar leið
á leikinn og þá sérstaklega í þriðja leikhluta.
Lið Njarðvíkur hirti miklu fleiri fráköst í
leiknum en lið Tindastóls og það gefur
sjaldnast góða raun.
Næsti leikur Tindastóls er 13. nóvember en
þá spila stelpurnar við lið Þórs á Akureyri. /ÓAB
Þóranna Ósk verst í leiknum gegn Njarðvík. MYND AF KARFAN.IS
Geysis-bikarinn í körfubolta
Reynismenn lítil fyrirstaða
Lið Tindastóls fór örugglega
áfram í Geysisbikarnum sl.
laugardag þegar þeir mættu
liði Reynis í Sandgerði sem
spilar í vetur í 2. deildinni.
Leikið var í hádeginu á
laugardag eftir svekkelsistapið
gegn KR og mættu Tindastóls-
menn einbeittir til leiks með það
að markmiði að sýna leiknum
og andstæðingnum fulla virð-
ingu með því leggja sig alla
fram. Lokatölur voru 26-100
fyrir Tindastól en allir leikmenn
liðsins skiluðu sínu. /ÓAB
42/2018 5