Feykir - 07.11.2018, Síða 6
Færeyingar og Íslendingar eru vina– og
frændþjóðir, sem lengi hafa haft margháttað
samstarf. Um og eftir miðja síðustu öld
voru færeyskir sjómenn á íslenskum
vertíðarbátum og reyndust duglegir og
vaskir og enn stunda Færeyingar fiskveiðar
við Íslandsstrendur en nú á eigin skipum
samkvæmt samningi þar um.
Nokkrir Færeyingar hafa stundað búnaðarnám á
Íslandi. Gunnleggur Djurhuus f. 3. mars 1922 að Sandi,
Sandey. Lauk námi 1947 og Jens Henrik Djurhuus f.
27. desember 1923 að Sjógv, Kollafirði. Lauk námi
1947. Báðir nemendur Bændaskólans á Hólum.1 Á
Hvanneyri: Hans Jögvansson f. 3. nóvember 1917,
lauk námi 1944, bóndi í Hvalvík í Færeyjum, Danjal
Danielsen, Búðum, f. 2. desember 1919, lauk námi
1946, landbúnaðar– og kennslumálaráðherra í
Færeyjum, Sören Qiudo Hansen, Nes, Austurey, f.
12. september 1927, var við nám 1949 en lauk ekki
námi, Jens Meinhard Berg, f. 1. október 1925, lauk
námi 1954, Sverrir Patursson, f. 27. maí 1937, lauk
námi 1960, járnsmiður og bóndi á Kirkjubæ, Jógvan
Magnússon Joensen, f. 15. júlí 1957, lauk námi 1977.2
Arnfrid Vestergaard var nemandi veturinn 1982 og
Þórður Patursson á Kirkjubæ var nemandi 1991 og
1992. Hans faðir var Sverrir Patursson.3
Margir Íslendingar hafa tekið sér búsetu í Færeyjum
og fest þar ráð sitt. Má t.d. nefna að um 1810 flutti
Jón nokkur Guðmundsson til Færeyja. Hann var
fæddur í Örfirisey 1784. Faðir hans var Guðmundur
Jónsson bóndi í Skildinganesi og síðar á Lágafelli. Jón
var foringi lífvarðar Jörundar hundadagakonungs en
þegar valdatíma Jörundar lauk flutti Jón til Þórshafnar
í Færeyjum og gerðist þar vel metinn kennari. Jón
tók sér eftirnafnið Effersöe, giftist færeyskri konu og
eignaðist með henni sjö börn. Er mikil ætt og merk frá
Jóni Effersöe kominn í Færeyjum. Meðal afkomenda
Guðmundar, föður Jóns, eru Bjarni Jónsson (1881–
1965) vígslubiskup og Bjarni Benediktsson (1908–
1970) forsætisráðherra.
Kona Joannesar Paturssonar (1866–1946) í
Kirkjubæ var Guðný Eiríksdóttir frá Karlskála í
Reyðarfirði.4 Meðal barna þeirra voru kóngsbónd-
inn og rithöfundurinn Páll Patursson (1894–1967)
og stjórnmálamaðurinn Erlendur Patursson (1913–
1986).5
Þá er rétt að geta hér Eiríks Ólafs Þorvaldssonar
(1947–2012) frá Nýjabæ á Höfn á Hornafirði. Hann
lauk prófi frá Dalum Mejeriskole á Fjóni 1970. Er
heim kom hvarf hann til starfa í mjólkursamlaginu
á Höfn og tók við starfi mjólkurbússtjóra árið 1973
og gegndi því til hausts 1978. Þá réðst hann til
Færeyja til að stýra þar nýju mjólkurbúi færeyskra
bænda, sem þá var enn ófullgert. Þar vann hann
brautryðjandastarf í færeyskum mjólkuriðnaði sem
framkvæmdastjóri Mjólkarvirki Búnaðarmanna.
Eiríkur starfaði við samlagið til æviloka en hann lést
12. nóvember 2012 og hafði þá starfað í Færeyjum
í 33 ár. Eiríkur kvæntist Rannvá Didriksen þann
31. desember 1968. Hún fæddist í Vestmanna í
Færeyjum 12. september 1946.6
Það er því ljóst af framanrituðu að tengsl Íslend-
inga og Færeyinga hafa verið margvísleg og full
ástæða er til að styrkja þau og efla og það má gera m.a.
með því að heimsækja þessa frændur okkar.
Miðvikudagur 29. ágúst 2018
Og þá er rétt að víkja að ferðinni. Hún var skipulögð
af ferðaskrifstofunni Tanna Travel. Farið var frá
Sauðárkróki kl. 8:00 og frá Varmahlíð kl. 8:30 með
langferðabíl frá Tanna Travel. Áður en farið var frá
Varmahlíð dreifði Helga Sigurbjörnsdóttir, farar-
stjóri, nafnalista og ferðaáætlun dagsins. Þegar komið
var í Bakkaselsbrekkuna var dreift lista um vistun
fólksins í skipinu Norrænu.
Þegar niður í Öxnadalinn kom ræddi fólk um jarðir
Jóns Jónassonar (1855–1936) afa míns og Ingibjargar
Jónasdóttur (1859–1905) konu hans, sem jörðuð er
á Bakka. Björn Bjarnason (f. 1937) minntist þess að
Stefán Valgeirsson (1918–1998), bóndi í Auðbrekku
og þingmaður, hefði verið um tíma leigubílstjóri í
Keflavík.
Komið var á Glerártorg og dvalið þar frá kl.
10:00 til 10:45. Fólk fékk sér kaffi og spjallaði um
hin aðskiljanlegustu mál. Í Nettó hitti ég Ármann
Gunnarsson (f. 1937) dýralækni og rifjuðum við
upp átökin í bekk búfræðinga í Menntaskólanum á
Akureyri en hann var þá í skólanum. Þegar við fórum
frá Akureyri var komið hið besta veður, sólskin og
logn. Skemmtiferðaskip sigldi inn Eyjafjörðinn, þegar
við ókum út Svalbarðsströnd í sól og sumaryl en hvítir
voru fjallatoppar. Fólk sá staðinn, þar sem Vaðla-
heiðargöng opnast, þegar ekið var yfir Fnjóskárbrú.
Borðuð var súpa í Selinu við Mývatn í boði Tanna
Travel. Þar hitti ég Ingva Ragnar Kristjánsson ( f. 1970)
hótelstjóra en hann er sonur Sigrúnar Jóhannsdóttur
(f. 1950) frá Kúskerpi. Hann lét vel af rekstri hótelsins.
Ferðasaga rituð af Sigtryggi Jóni Björnssyni frá Framnesi :: FYRRI HLUTI
Færeyjaferð Félags
eldri borgara í Skagafirði
Miðvikudaginn 29. ágúst til og með þriðjudeginum 4. september 2018
Vestmanna í Færeyjum.
MYNDIR: SIGTRYGGUR JÓN BJÖRNSSON
6 42/2018