Feykir - 07.11.2018, Síða 8
Ég er alin upp á Melstað í
Skagafirði, og var mikið hjá
ömmu minni Dísu og afa Lofti.
Frelsið að fá að vafra um sveitina
og leika sér, baka með ömmu,
vinna í fjósinu og leika við dýr. Ég
man ekki eftir mörgum reglum,
en ég man eftir tveimur. Númer
eitt var að klifra ekki í trjám, þá
skemmirðu þau eða dettur og
meiðir þig. Oft heyrði maður köllin
frá ömmu: „Niður úr trénu!“.
Önnur regla var að fara ekki í
lækinn, þá myndi ég drukkna. Ég
veit ekki hve oft ég braut þessar
reglur en það var mjög oft. Ég
elskaði sveitina og geri enn. Alltaf
þegar ég kem þá finn ég hvernig ég
er komin heim.
Ég hef tekið eftir því hvað munurinn
á fólki sem, til dæmis er alið upp
í Reykjavík og svo þeim sem eru
aldir upp á sveitabæ, er mikill. Ekki
endilega á slæman hátt heldur
meira svona skemmtilegan. Ég
bjó í Reykjavík í tvö ár og náði
aldrei almennilegri andlegri ró,
því stressið var svo mikið. En aftur
á móti leiðist þeim sem eru úr
borginni þegar komið er í sveitina.
Alltof hljótt, ekkert að gera. Mín
kenning er sú að þau elska stressið
og hraðann á öllu, því það er það
sem þau ólust upp við.
Ég bý núna á Stokkseyri, og
elska það, því það er svo lítill og
krúttlegur bær með einni sjoppu og
kyrrð og ró, og það besta sem ég
veit er að drekka kaffi og spjalla,
prjóna og horfa á sjónvarpið, labba
með hundinn niður í fjöru og dást
að umhverfinu.
Sveitin mótaði mig þannig að ég
vil hafa rólegt og kósý. Og ég gæti
ekki hugsað mér að hafa það
öðruvísi.
- - - - -
Ég skora á Ingu Hrönn að
koma með pistil.
ÁSKORENDAPENNINN
Ólöf Rún Ólafsdóttir brottfluttur Skagfirðingur
Að alast upp í sveit
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Ólöf Rún Ólafsdóttir. MYND AÐSEND
Hesteyri 2 . 550 Sauðárkrókur . Sími 455-4570
ERU HÁGÆÐA VETRARDEKK
WINTRAC ICE WINTRAC XTREME S
SNOTRAC 5 COMTRAC
LEITIÐ TILBOÐA HJÁ SÖLUFÓLKI OKKAR
Karlakór Hreppamanna,
undir stjórn Guðmundar
Óla Gunnarssonar, heldur
tónleika í Menningarhúsinu
Miðgarði á föstudaginn
kemur, 9. nóv. kl 20.00.
Með kórnum kemur fram
söngkonan Kristjana
Stefánsdóttir auk þriggja
manna hljómsveitar sem
skipuð er einvala liði
hljóðfæraleikara, þeim Vigni
Þór Stefánssyni píanóleikara,
Jóni Rafnssyni bassaleikara
og Erik Qvick trommuleikara.
Efnisskrá tónleikanna
samanstendur af þekktum
lögum úr íslenskum kvik-
myndum og er tónlistin af
ýmsum toga. Til að gefa hug-
mynd um það sem í vændum
er segir Guðmundur Óli að
nefna megi Sveitina milli
Karlakór Hreppamanna í Miðgarði
Hlakka til að gleðja Skagfirðinga með söng
sanda, Vegir liggja til allra
átta, Stella í orlofi og Með allt
á hreinu.
„Okkur þykir svo gaman að
koma norður. Við syngjum í
Miðgarði á föstudagskvöldið
og verðum svo í Bergi á
Dalvík á laugardag. En ég
stjórnaði lengi vel Karlakór
Dalvíkur. Ég hef líka kynnst
Heimismönnum, nokkrum
sinnum unnið með þeim og
þeir ætla að taka á móti okkur.
Karlakór Hreppamanna varð
20 ára í fyrra en auk þeirra
tímamóta ákvað kórstjórinn
að segja gott og ég var ráðinn
í staðinn. Hreppamenn
eru þakklátir Karlakórnum
Heimi fyrir að taka á móti
sínum sunnlensku kollegum
og hlakka til að gleðja
Skagfirðinga með söng í
þeirra ágæta tónleikahúsi,
Miðgarði,“ segir Guðmundur
Óli. /PF
Glaðhlakkalegur Karlakór Hreppamanna. AÐSEND MYND
8 42/2018