Feykir - 14.11.2018, Blaðsíða 1
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Skagfirðingar hafa óneitanlega orðið
varir við aukna flugumferð á Alex-
andersflugvelli á Sauðárkróki undan-
farna daga þar sem litlar flugvélar taka
á loft og lenda í sífellu. Þarna er um
kennsluvélar að ræða frá Flugskól-
anum Keili en verið er að kanna
aðstæður með hugsanlega útstöð
skólans í Skagafirði í framtíðinni.
Arnbjörn Ólason, markaðsstjóri
Keilis, segir að 14 kennsluvélar séu í
notkun hjá skólanum og gríðarlegur
áhugi á atvinnuflugmannsnámi bæði
meðal Íslendinga og erlendra nemenda
en á sama tíma eru þrengingar á
Keflavíkurflugvelli vegna aukins
millilandaflugs. „Þannig að við erum að
skoða ýmsa möguleika í framhaldinu
fyrir okkur til þess að geta flogið ennþá
meira og erum því að skoða það að setja
útstöð á Sauðárkróki. Til að byrja með er
þetta tilraunaverkefni en sjáum fyrir
okkur að næsta vor og sumar gætum við
farið að fljúga dag og nótt og þá verið
með nokkrar vélar meðan viðrar vel til
flugs.“
Arnbjörn segir að töluverður flug-
áhugi sé fyrir norðan og þá sérstaklega á
Akureyri þar sem boðið er upp á
einkaflugmannsnám. „Þar sem þetta er
atvinnuflug þá getum við boðið fólki að
taka tímana sína til atvinnuflugs nær
heimahögum. Þetta er mótel sem við
erum að skoða og prófa. Við byrjuðum á
Selfossi í sumar, reyndist mjög vel að vera
með útstöð þar, en Sauðárkrókur er sem
sagt næsti staður sem við prófum og
vonandi til frambúðar,“ segir Arnbjörn
en nú verður prófað í tvær vikur og málin
skoðuð í kjölfarið. „Þetta lítur vel út og
nemendur ánægðir og alltaf gaman að
fljúga yfir firðinum fagra,“ segir
brottflutti Króksarinn, Arnbjörn Ólason.
Samvinna við FNV
Hugmyndin er að Keilir og Fjöl-
brautaskóli Norðurlands vestra vinni að
þessu verkefni í samvinnu og segir
Þorkell V. Þorsteinsson, skólameistari
FNV, að skólinn muni m.a. koma að því
að hýsa nemendur og kennara ef þetta
verður ofan á.
„Það er samt ekki búið að semja um
neitt slíkt ennþá en alveg möguleiki á
frekara samstarfi,“ segir Þorkell, og ef
þetta festir rætur gæti fólk hugsanlega
komið og tekið flugtímana í FNV. „Það
veit enginn hvernig niðurstaðan verður á
endanum en það eru tækifæri sem menn
koma auga á með frekara samstarf og
hver veit nema hluti af annarri kennslu
varðandi flugnámið verði hérna líka.
Þetta er opin bók eins og er en það er
bara verið að stíga fyrstu skrefin og prófa
sig áfram. Þetta er virkilega spennandi
tækifæri til þess að hleypa lífi í flugvöllinn
alla vega og ég tala ekki um ef þetta
auðveldar einhverjum á Norðurlandinu
að að stunda flugnám,“ segir Þorkell. /PF
Diamond DA40 kennsluflugvél Keilis hefur sig á loft sl. sunnudag. Hún er búin fullkomnum blindflugsbúnaði, þ.á.m. stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum.
MYND: PF
ÁTAKSVERKEFNI KRABBAMEINFÉLAGSINS
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!
43
TBL
14. nóvember 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–8
BLS. 8
Rætt við Helgu Harðardóttur
kennsluráðgjafa og
verkefnastjóra
Markmiðið að auka
gæði skólastarfs
BLS. 5
Síðari hluti ferðasögu Sigtryggs
Jóns Björnssonar frá Framnesi
Færeyjaferð
Félags eldri borgara
í Skagafirði
Sigurður Guðjón Jónsson segir
frá liðinu sínu sem er Liverpool
„Munaði minnstu
að ég yrði
atvinnumaður í
knattspyrnu“
Nýprent ehf. Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Borgaröt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
Stórprent í toppgæðum
Við prentum strigamyndir, auglýsingaskilti og
plaggöt í hinum ýmsu stærðum og gerðum
Flugakademía Keilis flýgur um fjörðinn fagra
Skoða Alexandersflugvöll sem
mögulega útstöð flugkennslu