Feykir - 14.11.2018, Blaðsíða 10
Hvernig nemandi varstu? Svörin við þessari
spurningu yrðu sennilega eilítið mismunandi eftir
því hver væri spurður. Ég held að ég hafi verið
fínn nemandi, stóð fastur á mínu og lífgaði upp
á þá skóla sem ég var í. Ég hugsa að eftirmælin
sem ég fengi frá fyrrverandi kennurunum mínum
í Akraskóla væru bara býsna góð. Hins vegar
er ég ekki viss um að Páll Dagbjartsson hefði
kvittað upp á að ég hefði alltaf verið alveg til
friðs í Varmahlíð. Við heilsumst samt alveg
kumpánlega í dag. Jón Hjartar hefði síðan
ábyggilega ekki skrifað upp á nein meðmæli
með mér þegar ég var í Fjölbraut á Króknum.
Það var samt allt í lagi, mér samdi ágætlega við
flesta aðra í starfsliðinu þar.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingar-
deginum? Þegar ég horfi til baka þá er það
sennilega hversu afleit jakkafötin voru og hversu
skelfilega klippingu ég hafði. Að öðru leyti var
þetta prýðilegur dagur.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Ég ætlaði alltaf að verða bóndi. Svo elti ég
konu, sem ekki hafði áhuga á búskap, suður til
Reykjavíkur og fór aldrei á Hvanneyri eins og ég
hafði ætlað. Ætli ég sé ekki bara ágætlega settur
í því sem ég er að gera í dag.
Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú
varst krakki? Ég dró á eftir mér gulan bangsa
hvert sem ég fór þegar ég var smákrakki. Hann
hét hinu virðulega nafni Guli bangsi, ekkert verið
að flækja hlutina þar.
Besti ilmurinn? Ilmurinn af konunni minni.
Lyktin af nýsleginni töðu. Og ilmurinn sem ég
finn á köldum haustmorgni í göngum, efst á
Seljárdal frammi á afrétt.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst
bílprófið? Alveg örugglega Iron Maiden, eins
og alltaf. Hef líka verið að hlusta á The Doors
og pottþétt Rage Against the Machine. Svo
væntanlega Pearl Jam, Soundgarden, Alice
in Chains og Foo Fighters. Ábyggilega líka The
Prodigy. Af íslensku geri ég ráð fyrir að hafa verið
að hlusta á Botnleðju og Maus á þessum tíma.
Hvernig slakarðu á? Ég slaka langbest á vestur
í Bolungarvík en þar á tengdafjölskyldan mín
hús. Allt gerist á helmingi minni hraða þar. Ég
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Freyr Rögnvaldsson.
ÁRGANGUR: Hinn goðsagnakenndi ’78 árgangur.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Er giftur Snærós Sindradóttur Bachmann, stjörnu-blaðamanni,
verkefnastýru RÚV núll og yfirburða konu. Við búum svo með ómegðinni minni,
Freyju Sigrúnu 13 ára, Erling Kára 9 ára, Urði Völu 4 ára og Tíbrá Myrru sem er hálfs
árs.
BÚSETA: Bý í Vesturbæ Reykjavíkur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Ég er sonur Rögnvaldar Ólafssonar og Sigrúnar
Hrannar Þorsteinsdóttur, bænda í Flugumýrarhvammi í Blönduhlíð. Pabbi er fæddur
og uppalinn í Flugumýrarhvammi, sonur Deddu, sem er þaðan líka, og Óla frá Ríp.
Mamma er norðan af Akureyri, dóttir Steina og Tótu. Amma Tóta er frá Bústöðum í
Austurdal en afi Steini er frá Gásum í Kræklingahlíð í Eyjafirði. Ég ólst upp á Akureyri
til 9 ára aldurs en þá tóku pabbi og mamma við búi í Flugumýrarhvammi. Ég á svo
fjögur systkini, öll yngri. Steinunn systir býr í Reykjavík, Sindri bróðir býr til osta í
samlaginu, Þórunn systir er kominn inn í búreksturinn í Hvammi og Jórunn systir er
í námi í Reykjavík.
STARF/NÁM: Síðasta rúman áratug hef ég starfað við blaðamennsku á ýmsum miðlum,
þar á meðal 24 stundum, Bændablaðinu og Eyjunni. Í dag er ég blaðamaður á
Stundinni. Ég er menntaður stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands en tók
stúdentinn á Króknum. Þar reifst ég við Jón Hjartar í þrjú ár, drakk bjór með Birni
Magnússyni, reykti með Geirlaugi heitnum og hló að Kela.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Aðallega jólin bara. Eftir því sem börnunum fjölgar verð ég alltaf
meira og meira jólabarn og hlakka því óskaplega til þess þegar það varðar ekki
lengur félagslegri útskúfun að fara að skreyta. Ætli það verði ekki svona um miðjan
nóvember.
Freyr Rögnvalds
slaka hins vegar ekki mikið á þegar ég er norður
í Skagafirði, hjá pabba og mömmu, því þá finnst
mér ég alltaf þurfa að vera að gera eitthvað.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu?
Urður Vala dóttir mín sér til þess að við missum
ekki af teiknimyndunum um Letibjörn og
læmingjana. Við horfum alltaf saman á þær.
Besta bíómyndin? The Doors. Töffaraskapurinn
í Jim Morrison, frábærlega leiknum af Val Kilmer,
var alveg ægilegt aðdráttarafl fyrir unglinginn á
sínum tíma.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á?
Aroni Einari Gunnarssyni. Svo Axel Kárasyni.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu
heimili? Bý til kjötsúpu. Kjötsúpan mín er
fullkomlega frábær.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?
Fyrrnefnd kjötsúpa. Annars er ég helvíti lúnkinn
kokkur yfirleitt. Snærós mín sér hins vegar að
mestu leyti um baksturinn, þó ég kunni svo sem
ýmislegt fyrir mér þar.
Hættulegasta helgarnammið? Bjór.
Hvernig er eggið best? Spælt. Síðan linsoðið.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu?
Þegar ég dett í neikvæðnina.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Rasismi, þröngsýni, kvenfyrirlitning og
karlagrobb. Og óstundvísi, hún fer alveg agalega
fyrir brjóstið á mér.
Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Þetta fer
allt einhvern veginn, og aldrei verr en illa.
Hver er elsta minningin sem þú átt? Ég held
að það sé þegar við pabbi fórum upp í fjall
heima, ég var svona þriggja ára, til að ná í tvo
tamda hesta þaðan sem mér finnst eins og hafi
átt að fara að járna fyrir göngur. Af einhverjum
undarlegum ástæðum tók pabbi ekki með neina
múla eða beisli heldur bara poka með brauði
sem hann taldi að myndi duga til að koma
þeim heim. Það gekk hins vegar alveg afleitlega
og endaði að mig minnir með að pabbi batt
vasaklútinn sinn upp í annan klárinn og þannig
komum við þeim á endanum heim því hinn elti.
Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar
manneskju og þarft að dúsa þar einn dag.
Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu
gera? Che Guevara, 7. október 1967. Ég myndi
koma mér burt af Yuro svæðinu í Bólivíu þar sem
hann var tekinn höndum morguninn eftir, sem
leiddi til að hann var drepinn 9. október.
Hver er uppáhalds bókin þín og rithöfundur?
Ætli það sé ekki Býr Íslendingur hér?, ævisaga
Leifs Muller sem Garðar Sverrisson skráði.
Uppáhalds skáldin eru svo líklega Sigurður
Pálsson, Sigfús Daðason, Kristján frá Djúpa-
læk, Jón úr Vör og Steinn Steinarr.
Orð eða frasi sem þú notar of mikið? Eins og
þar stendur.
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í
draumakvöldverð? Beyonce, Jay-Z og Snærós
konunni minni, til að gleðja hana.
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert
færirðu? Ég myndi fara aftur til áttunda
áratugsins, til Bandaríkjanna, og fá að upplifa
hippatímann þar.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Það er
löngu ákveðið að hann verður Slagsmál, fyllerí,
ríðingar.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert
hún færi, þá færirðu... til Balí held ég bara.
Bucket list spurningin: Nefndu eitthvað þrennt
sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú
gefur upp öndina: Fara í stóru Suður-Ameríku-
ferðina með konunni minni, fara og sjá Leeds
spila á Elland Road og koma börnunum mínum
vel og fallega á legg og út í lífið.
Freyr. MYND: SNÆRÓS SINDRADÓTTIR
Afmælishátíð fullveldis-
ins í Varmahlíðarskóla
Fullveldi –
frelsi – lýðræði –
hvað er nú það?
Í tilefni af 100 ára afmæli
fullveldis Íslands verður efnt til
afmælishátíðar í Varma-
hlíðarskóla á morgun,
fimmtudaginn 15. nóvember,
milli kl. 13:00 og 15:30 undir
yfirskriftinni Fullveldi –
frelsi – lýðræði – hvað er nú
það? Þar munu nemendur
Varmahlíðarskóla og
Grunnskólans austan Vatna
á Hofsósi leitast við í stuttum
leikþáttum að skyggnast aftur
í tímann en einnig verður horft
til fram-tíðar með hugtökin
fullveldi, frelsi og lýðræði að
leiðarljósi.
Hluti dagskrárinnar er mál-
þing en þar flytja fulltrúar
hugleiðingar um ofangreind
hugtök og velta einnig fyrir sér
framtíðarhorfum.
Húsið opnar kl. 13:00 og þá
geta gestir komið og gengið um
skólann, séð verk af ýmsum
toga, hlýtt á málþing kl. 13:30 -
14:10 og fengið sér hressingu.
Þátttakendur hátíðarinnar
eru Varmahlíðarskóli, Grunn-
skólinn austan Vatna, eldri
borgarar og góðir gestir. Allir
eru velkomnir á hátíðina. /FE
Ræsing Húnaþinga
Samkeppni
um viðskipta-
hugmyndir
Verkefninu Ræsing
Húnaþinga hefur nú verið
hleypt af stokkunum með
því að Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, í samvinnu við
sveitarfélögin í Húnaþingum,
efndu til samkeppni um
góðar viðskiptahugmyndir
í Húnaþingum og var
einstaklingum, hópum og
fyrirtækjum boðið að sækja
um þátttöku í verkefninu.
Fyrirkomulag samkeppn-
innar er á þá leið að þátttakendur
fá tólf vikur til að vinna
viðskiptaáætlun fyrir verkefnin
sín. Á þeim tíma fá aðstand-
endur verkefnanna fræðslu og
mikinn stuðning verkefnisstjóra
Nýsköpunarmiðstöðvar og fleiri
við gerð viðskiptaáætlunarinnar
og hugsanlega við vöruþróun og
frumgerðasmíði. /FE
10 43/2018