Feykir - 21.11.2018, Blaðsíða 3
Verum snjöll
verZlum
heima
Vissir þú...?
Að kaupa jólagjafir og annað til jólanna hér heima
er stuðningur við samfélagið okkar.
Við getum öll haft áhrif til betri jóla.
Margir frumkvöðlar og sjálfstætt starfandi bjóða handverk sitt til
jólagjafa og leggja sig fram eins og kostur er. Fyrirtækin eru til staðar
fyrir okkur öll, bæði um hátíðir og aðra daga. Gjafir, matur og drykkur
er allt fáanlegt heima hjá okkur.
Njótum þess besta og jólahátíðarinnar saman.
Þannig njótum við öll gleðilegra jóla.
N
ÝPR
EN
T EH
F / M
YN
D
: Ú
R
EIN
KASAFN
I
Fasteignasala Sauðárkróks • Sæmundargötu 1, Sauðárkróki
• Sími 453 5900 & 864 5889
Ágúst Guðmundsson löggiltur fasteignasali • Anna J. Hjartardóttir sölumaður
Til sölu er rekstur og húsnæði
Efnalaugar Sauðárkróks að
Borgarflöt 1, Sauðárkróki.
Húsið var byggt úr stálgrind
1979, alls 296,8 m² að stærð.
Nánari upplýsingar um vélakost
og fl. hjá fasteignasölunni.
Sjá þessa eign og aðrar á krokurinn.is
Fyrirtæki til sölu.
Vegamál á Vatnsnesi
Fundað með Sigurði Inga
Rúmlega 80 manns sóttu
íbúafund um vegamál á Vatns-
nesi sem haldinn var á Hótel
Hvítserk á miðvikudag í síð-
ustu viku. Til fundarins mætti
Sigurður Ingi Jóhannsson,
samgönguráðherra, og fór yfir
hugsanlega möguleika í stöð-
unni ásamt heimamönnum.
Framsöguerindi á fundinum
fluttu þau Ingveldur Ása Kon-
ráðsdóttir, formaður byggðar-
ráðs Húnaþings vestra, Guðrún
Ósk Steinbjörnsdóttir, fulltrúi
íbúa, og Sigurður Ingi Jóhanns-
son, samgönguráðherra. Fund-
arstjóri var Júlíus Guðni
Antonsson.
Fram kemur á heimasíðu
Húnaþings vestra að eftir að
hafa hlýtt á framsögu fulltrúa
sveitarstjórnar og heimamanna
hafi ráðherra farið yfir sam-
gönguáætlun og bent á að þar sé
að finna liði sem ekki eru
sundurliðaðir og hugsanlega
væri hægt að nota til fram-
kvæmda á Vatnsnesvegi, svo-
kallaðan tengivegapott.
Þótt skilningur og jákvæð
viðbrögð samgönguráðherra
hafi vissulega vakið nokkrar
vonir hjá heimamönnum um
einhverjar úrbætur sló fulltrúi
Vegagerðarinnar, sem tók til
máls í fundarlok, á þær vonir.
Hann „sagði að ekkert yrði af
því sem ráðherra talaði um,
vegagerðin væri búin að úthluta
tengivegapotti fyrir Norðurland
næstu þrjú árin og að kannski
væri hægt að nota einhverja
aura hjá okkur eftir það! Einnig
sagði hann að ekki sé hægt að
fara í framkvæmdir nema ýtr-
ustu öryggisstöðlum sé fullnægt
með fullri 7 metra vegbreidd og
það sé of kostnaðarsamt.
Er þá algjört öryggisleysi í 20
– 30 ár betra en að lagfæra veg-
inn í samræmi við það sem
þekkist í dreifbýli erlendis þ.e.
1½ vegbreidd og minni veg-
flái?“ segir á heimasíðu Húna-
þings vestra og jafnframt ályktað
að valkostirnir í stöðunni séu
annað hvort reiðgata eða hrað-
braut! /FE
Til fundarins mættu rúmlega 80 manns. MYND: HUNATHING.IS
Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra hefur undir-
ritað samninga við sex
landshlutasamtök sveitar-
félaga um níu verkefnastyrki
sem veittir eru á grundvelli
stefnumótandi byggða-
áætlunar fyrir árin 2018-
2024. M.a. fara 20 milljónir í
innviðauppbyggingu vegna
gagnavers á Blönduósi árið
2018 og 25 milljónir á ári
næstu þrjú ár á eftir.
Samtök sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra fá styrkinn
til að byggja upp innviði vegna
fyrirhugaðs gagnavers BDC við
Blönduós. Gera þarf götur og
lýsingu, leggja rafmagn, vatns-
og fráveitulagnir o.fl. Með
verkefninu skapast 20-30 störf í
fyrsta áfanga.
Á vef Stjórnarráðsins kemur
fram að 120 milljónum króna
hafi verið úthlutað að þessu
sinni fyrir árið 2018 til sértækra
verkefna á sóknaráætlunar-
svæðum. Alls bárust 26 um-
sóknir um styrki að fjárhæð
tæpar 441 m.kr.
„Það er okkur mikil ánægja
að unnt sé að styrkja mörg
áhugaverð og fjölbreytt verkefni
um land allt á grundvelli nýrrar
byggðaáætlunar. Ákveðið var að
veita styrki að fengnum um-
sóknum en þetta er í fyrsta sinn
sem framlög úr byggðaáætlun
eru sett í samkeppnispott með
þessum hætti. Fleiri samkeppnis-
pottar af þessu tagi verða
auglýstir jafnt og þétt,“ sagði
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráð-
herra við undirritun samning-
anna. /PF
Byggðir landsins efldar
120 milljónir í verkefnastyrki
Ráðherra úthlutar 120 milljónum krónum í verkefnastyrki til að efla byggðir landsins.
MYND: HUNATHING.IS
44/2018 3