Feykir - 21.11.2018, Page 4
TORSKILIN BÆJARNÖFN palli@feykir.is
Rannsóknir og leiðréttingar Margeirs Jónssonar
Bústaðir í
Lýtingsstaðahreppi
Bústaðir hafa að líkindum heitið
Bútsstaðir, því að þannig er
nafnið ritað í Sigurðarregistri
árið 1525 (Dipl, Isl. lX,, bls. 302).
Merkilegt er, að þá eru ýmsar
jarðir í eyði, sem nú eru taldar
með kostajörðum, t.d. Húsey,
Bútsstaðír, Skatastaðir o.fl.
Nú er bærinn ætíð nefndur
Bústaðir og jarðabækurnar hafa
það eins (Johnsens Jarðatal,
bls. 261. Sjá Safn lV. b., bls.
439).
Ekki hefi jeg getað fundið eldri
heimildir fyrir nafninu og má þó
telja víst, að nafnið sje gamalt.
Dr. Finnur Jónsson hefir bent á,
að Bústaðir í Gullbringusýslu
hafi upphaflega heitið Bútsstaðir,
samkvæmt rithætti í Biskupa-
sögum I. b. Líklegast er því, að
báðir bæirnir sjeu kendir við
mannsnafnið Bútur, því að
langflest bæjaheiti, er enda á
-staðir, eru af mannsnafni
dregin, eða auknefni þeirra.
Sturlunga getur um Bút
Þórðarson, heimamann Órækju,
svo að nafnið hefir þekst á
Sturlungaöld (Sturlunga II. b.,
bls. 219 og víðar).
Það er auðskilið, að þegar
nafnið Bútur gleymdist, breyttist
heitið í Bústaði, því að t hlaut að
falla burt í framburði. Rjetta
nafnið mun því vera Bútsstaðir
og ætti að rita það þannig.
Bútsstaðir eða Bústaðir. MYND: BYGGÐASAGA SKAGAFJARÐAR
100 ára afmæli fullveldisins
Vel heppnuð afmælishátíð í Varmahlíðarskóla
Nemendur Varmahlíðarskóla
og Grunnskólans austan
Vatna buðu til hátíðar
í Varmahlíðarskóla sl.
fimmtudag þar sem tilefnið
var að fagna 100 ára afmæli
fullveldis Íslands. Bar hátíðin
yfirskriftina Fullveldi – frelsi
– lýðræði – hvað er nú það?
Dagskráin samanstóð af
málþingi og stuttum, frum-
sömdum leikþáttum þar sem
fyrrgreindum hugtökum voru
gerð skil í fortíð, nútíð og
framtíð. Á veggjum skólans
var einnig að finna ýmislegt
sem tengdist viðfangsefninu,
s.s. tímalínu og ýmis vegg-
spjöld. Í einni skólastofunni
gat að líta á sjónvarpsskjá
viðtöl við nokkra eldri borgara
í Skagafirði og í annarri mátti
sjá brot af sýndarveru-
leikasýningu Árna Gunnars-
sonar, Tímagöng, þar sem
horfið er aftur í tímann, m.a. í
baðstofuna í Glaumbæ.
Á málþinginu fluttu sjö
nemendur úr 9. og 10. bekk
stórskemmtileg erindi sem
varða lýðræði og fullveldi og
veltu einnig fyrir sér hvað
framtíðin komi til með að
bera í skauti sér. Gunnar Bragi
Sveinsson, þingmaður, var
gestur á málþinginu og ræddi
hann um dagleg störf þing-
manna. Annar gestur, Árni
Bjarnason á Uppsölum, titl-
aður bjartsýnismaður, velti
því fyrir sér á gamansaman
hátt hvað hann myndi gera ef
hann væri 15 ára í dag.
Hátíðin var ágætlega sótt
og óhætt að segja að
afmælisveislan hafi tekist
ljómandi vel. /FE
www.skagafjordur.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
/
1
12
01
8
Auglýsing
um skipulagsmál
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Víðimelur Suðurtún 1
– Lýsing fyrir gerð deiliskipulagstillögu.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt lýsingu fyrir gerð deiliskipulags
fyrir lóðina Víðimelur Suðurtún 1 í Sveitarfélaginu Skagafirði samkvæmt 3. mgr 40. greinar
skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er lóðin Víðimelur Suðurtún 1 sem liggur sunnan
gatnamóta þjóðvegar 1 og Skagafjarðarvegar 752. Stærð lóðarinnar 7.380 ferm. Skipulagssvæðið
er í dag ræktað tún, fyrirhugað er að á lóðinni verð starfrækt sjálfsafgreiðslustöð fyrir eldsneyti.
Helgustaðir í Unadal
– Lýsing fyrir gerð deiliskipulagstillögu.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir
landið Helgustaði í Unadal í Sveitarfélaginu Skagafirði samkvæmt 3.mgr 40. greinar skipulagslaga
nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er landið Helgustaðir í Unadal um 4,9 ha að stærð. Á landinu er
frístundarhús og er markmið deiliskipulagsins að skilgreina nýja byggingarreiti fyrir fleiri hús.
Ofangreindar skipulagslýsingar liggja frammi til kynningar hjá skipulags- og byggingarfulltrúa
og í afgreiðslu Ráðhúss Sveitarfélagsins Skagafjarðar að Skagfirðingabraut 17-21 á Sauðárkróki.
Að auki er hægt að nálgast skipulagslýsingarnar á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.
is/is/thjonusta/umhverfis-og-skipulagsmal/byggingafulltrui/auglysingar-um-skipulagsmal
frá 16. nóvember til 16. desember 2018.
Ábendingar við efni skipulagslýsingarinnar skulu berast skriflega til skipulags- og byggingarfull-
trúa eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is fyrir mánudaginn 17. desember 2018.
Sauðárkróki 15. nóvember 2018
Jón Örn Berndsen,
skipulags- og byggingarfulltrúi
Leikþáttur Varmahlíðarskóla, 17. júní hátíðarstund á Austurvelli.
MYNDIR: FE
Árni Bjarnason, bjartsýnismaður, talaði á málþingi. Skyggnst aftur í tímann með sýndarveruleikagleraugum.
Fiskveiðilögsagan og kóngsi, leikþáttur frá Grunnskólanum austan
Vatna.
4 44/2018
Feykir.isMeira sport á...