Feykir - 21.11.2018, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Knattspyrnudeild Tindastóls
Yngvi Magnús þjálfar meistaraflokk karla
Tindastóll hefur ráðið Yngva Magnús Borgþórs-
son sem þjálfara meistaraflokks karla. Yngvi
þjálfaði Skallagrím sl. sumar og kom liðinu upp
úr 4. deildinni á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari
liðsins. Áður hafði Yngvi þjálfað lið Einherja
í 3. deild.
Á heimasíðu Tindastóls segir að sem leikmaður
hafi Yngvi spilað lengst með ÍBV og á meðal annars
vel á sjöunda tug leikja í efstu deild. „En þess má
reyndar geta að í heildina á hann um 260 leiki í
meistaraflokki, nokkra tugi leikja í öllum deildum
Íslandsmótsins. Óhætt er því að segja að Yngvi
þekki íslenskan fótbolta frá öllum hliðum,“ segir á
Tindastóll.is
Yngvi mun flytjast búferlum á Sauðárkrók í
byrjun janúar og hefja þá formlega störf hjá
Tindastól og bindur stjórn miklar vonir við störf
hans hjá félaginu. „Við bjóðum Yngva innilega
velkominn í Tindastól,“ segir í tilkynningunni. /PF
Yngvi Magnús og Rúnar Rúnarsson (t.h.) formaður knattspyrnu-
deildar Tindastóls handsala samninginn. MYND: TINDASTÓLL.IS
Dominos-deildin : Stjarnan – Tindastóll 68-77
Veisla í Mathúsi Garðabæjar höllinni
Tindastólsmenn buðu
stuðningsmönnum sínum
upp á létta veislu í Mathús
Garðabæjar höllinni sl. föstu-
dagskvöld. Þar mættust þau
tvö lið sem spáð hafði verið
tveimur efstu sætunum
fyrir tímabilið, Stjarnan og
Tindastóll, og er skemmst
frá því að segja að Stólarnir
höfðu yfirhöndina frá 13.
sekúndu og voru heimamenn
hreinlega aldrei nálægt því að
valda Stólunum hugarangri.
Lokatölur voru 68–77 fyrir
Tindastól, sem situr nú í efsta
sæti Dominos-deildarinnar
ásamt Keflvíkingum og
Njarðvíkingum.
Brynjar Þór hóf leikinn á
þristi og Danero bætti öðrum
við og strax í upphafi voru
Stólarnir að spila sem lið á
báðum endum á meðan
sóknarleikur Stjörnunnar var
vandræðalegur. Stjörnumenn
gerðu vel í því að taka Pétur út
úr leiknum – hann klæddist
finnskum frakka allan fyrri
hálfleik – en Dino, Brynjar og
Danero voru stöðug ógn fyrir
utan og Urald King, sem þurfti
að eiga við Hlyn Bærings, setti
skotin sín utan úr teig niður og
heimamenn þurftu því að leggja
mikla vinnu í varnarleikinn til
að stöðva sóknarvopn Stólanna.
Staðan að loknum fyrsta leik-
hluta var 10-22 en í öðrum
leikhluta var leikurinn jafnari.
Jafnræði var með liðunum í
öðrum leikhluta og staðan 27-
40 í hálfleik. Stólarnir náðu mest
19 stiga forystu í þriðja leikhluta
og gátu leyft sér að taka fótinn af
benzíngjöfinni í fjórða leikhluta
án þess að Stjarnan næði að
ógna forskotinu.
Liðsheild Tindastóls var
sterk í leiknum og virtust menn
hafa mikla ánægju af því að spila
saman sem lið og að spila af
fullum krafti. Brynjar Þór og
Dino áttu báðir mjög góðan leik.
Brynjar setti niður fimm af átta
3ja stiga skotum sínum auk þess
að tvívegis var brotið á honum
fyrir utan línuna sem gaf sex
vítaskot. Dino Batorac átti einn
sinn besta leik með liði
Tindastóls í vetur, gerði 14 stig
og tók níu fráköst. Urald og
Danero voru öflugir og þó
bekkjarbræður gerðu ekki mörg
stig þá voru allir á sömu línunni.
Philip Alawoya, sem leysir nú
Urald King af fram að
áramótum, var í hópnum í fyrsta
skipti og náði sér í tæpar níu
mínútur. Hann er ólíkur King
og þarf að sjálfsögðu einhvern
tíma til að komast inn í leik
Tindastóls. Vonandi verður
hann fljótur að ná áttum.
Næsti leikur Tindastóls
verður í Síkinu annað kvöld, 22.
nóvember, þegar lið ÍR kemur í
heimsókn. /ÓAB
Sandra Björk Hrannarsdóttir
Seastrand býr á Sauðárkróki
af árgangi 2004 og hélt
upp á 14 ára afmæli sitt í
síðustu viku. Sandra, sem
leikur með Tindastól, er mikil
fótboltastelpa og fyrir skömmu
var hún valin í úrtaksæfingar
fyrir U15 í fótbolta sem fram
fóru í Boganum á Akureyri.
Sandra er Íþróttagarpur Feykis
að þessu sinni.
Hverra manna ertu? -Pabbi er
Hrannar Freyr Gíslason (Gísli
Kristjáns á trésmiðjunni Borg
og Svana í Hlíðarkaup eru hans
foreldrar) húsasmíðameistari
og mamma er Sigrún Heiða
Seastrand sem er í fæðingarorlofi
en hún var lengi dagmamma.
Hún er Vestur-Húnvetningur.
Íþróttagrein: -Fótbolti
Íþróttafélag/félög: -Tindastóll
Helstu íþróttaafrek: -Spila með
Pressuliðinu á Símamótinu og
vera í úrtöku fyrir U15 í fótbolta.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Að sjá systkini mín í fyrsta sinn.
Neyðarlegasta atvikið: -Hef sem
betur fer ekki lent í neinu.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Ég hef hárið alltaf í tagli, það er
kannski ekki hjátrú en hefur virkað
vel.
Uppáhalds íþróttamaður? -Sara
Björk landsliðskona í fótbolta.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og í
hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Hannes Þór Halldórsson,
markvörður, myndi vilja taka víta-
spyrnukeppni við hann.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Hann myndi gera sitt
besta og ég líka.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Ég veit ekki hvað ég get
sagt. Pass!
Lífsmottó: -Aldrei gefast upp!
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Sara
Björk, landsliðskona, er flott
stelpa sem hefur komist langt og
ég lít upp til hennar.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Læra, æfa og vinna.
Hvað er framundan? -Ég verð
betri og betri og svo mun èg
komast í landsliðið, til þess er
bara að halda áfram og gera mitt
besta.
Sandra Björk Hrannarsdóttir Seastrand
Aldrei gefast upp!
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@feykir.is
1. deild kvenna : Þór Akureyri – Tindastóll 72-65
Þórsarar með grobbréttinn á Norðurlandi
Kvennalið Tindastóls og
Þórs mættust í Síðuskóla
á Akureyri sl. þriðjudag í 1.
deildinni í körfubolta og var
leikurinn byggður upp sem
baráttan um Norðurlandið.
Lokatölur reyndust 72-65 fyrir
Þórsstúlkur og þær geta því
grobbast á kostnað Stólanna
fram að næsta leik í það
minnsta.
Um 200 manns mættu til að
hvetja liðin til dáða. Þórsstúlkur
ku vera ánægðar með að vera
komnar með nágranna sína úr
Tess stendur í ströngu. MYND: TINDASTÓLL.IS
Skagafirðinum til leiks á ný í
körfunni, enda skemmtileg
stemning og metingur á milli
grannanna. Leikurinn var ansi
sveiflukenndur. Þórsarar byrj-
uðu betur en lið Tindastóls náði
síðan yfirhöndinni í öðrum
leikhluta og var yfir í hálfleik 29-
39. Þórsarar voru fljótir að jafna
í síðari hálfleik en síðustu þrjár
mínútur þriðja leikhluta fóru illa
með Stólastúlkur sem fengu á sig
16 stig en gerðu aðeins þrjú á
móti. Lið Þórs hélt forystunni í
fjórða leikhluta en lið Tindastóls
gerði engu að síður harða atlögu
að forystu heimastúlkna. Aðeins
þremur stigum munaði þegar
tvær og hálf mínúta voru eftir en
eftir mikinn barning voru það
Þórsarar sem gerðu síðustu
stigin og sigruðu 72-65.
Næsti leikur er hér heima
gegn Fjölni 24. nóv. kl. 16:30. /ÓAB
44/2018 5