Feykir - 21.11.2018, Blaðsíða 7
Hversu lengi ertu í kjör-
búðina frá heimili þínu?
Vikasa Life Café, þar sem
ég borðaði í hádeginu og
kvöldin, er á hæðinni fyrir
ofan herbergið mitt. Og
á lúxusdögum labbaði ég
yfir götuna og keypti mér
Magnum með hvítu súkku-
laði.
Hvað færðu þér í staðinn
fyrir eina með öllu? Pad
thai! Allan daginn. Ég veit
ekki hvort ég á að segja
ykkur frá því, en fyrstu þrjár
máltíðirnar mínar í Tælandi
voru Pad thai, sem er
einfaldlega það besta sem
ég veit!
Hvað kostar mjólkurlítr-
inn? Það veit enginn, enda
drekkum við bara ferskar
kókoshnetur og mangó lassi
(mangó sjeik blandaður við
jógúrt), sem kostar eitthvað
svipað og mjólkin heima.
Hver er skrítnasti mat-
urinn? Þar sem ég er
hætt að borða kjöt er ég
blessunarlega laus við að
borða allra skrítnasta matinn
en ávextirnir eru náttúrulega
skrítnir hérna. Ég borðaði
helling af papaya og
drekaávöxtum og svo verð
ég að segja að uppáhaldið
mitt, Mangó Sticky Rice, er
í raun stórfurðuleg blanda
af mangó, klístruðum hrís-
grjónum og heitri kókos-
mjólk.
Hvert ferðu til að gera vel
við þig? Ég þurfti ekki að
fara neitt því í Vikasa fást
heimsins bestu hrákökur.
Ef þú heldur að hrákökur
séu ekki góðar, þá hefur þú
aldrei smakkað þessar!
5 á 115
sekúndum
Indlandi en jóga er aldagamalt
æfingakerfi sem er ætlað til að
þjálfa og sameina líkama og
huga. Hægt er að stunda
margar og ólíkar tegundir af
jóga.
Höfuðborg Taílands er
Bangkok sem heitir víst að fullu
því hógværa nafni Krungt-
hepmahanakhon Amonratt-
anakosin Mahintharayutthaya
Mahadilokphop Noppharatrat-
chathaniburirom Udomratch-
aniwetmahasathan Amonphi-
manawatansathit Sakkathatti
yawitsanukamprasit. Þar sem
setjari Feykis þurfti að línuskipta
einhverjum orðanna er beðist
velvirðingar á því að ólíklegt er
að skiptingin sé á réttum stað
samkvæmt taílenskum staf-
setningarreglum.
En snúum okkur nú að Pálu
Margréti...
Hvenær og hvernig kom það til
að þú fórst til Taílands? -Núna
var ég að fara til Vikasa á Koh
Samui, í annað skiptið, til þess
að stunda jógakennaranám. Ég
hef því samanlagt verið þar í
tæpa þrjá mánuði, og ætla aftur
á næsta ári.
Hvernig myndir þú lýsa venju-
legum degi hjá þér í náminu?
-Venjulegur dagur í jógakenn-
aranáminu fólst í því að vakna
við eða fyrir sólarupprás, kl.
5:00 eða 6:00. Klukkan 7:00
hófst námið, með klukkutíma
af því sem kallast Dans Shiva,
sem fór fram á ströndinni. Frá
kl. 8:00 hófst jógað, sem stóð
yfirleitt til kl. 11:30 eða 12:00.
Þá fengum við tveggja klukku-
tíma pásu, sem fór í hádegis-
mat, sturtu og örlítinn blund.
Frá kl. 13:00 eða 14:00 var
fyrirlestur um allt sem tengdist
jóga. Að fyrirlestri loknum, kl.
18:30, var kvöldmatur og um
kvöldið voru stundum bíó-
kvöld þar sem við horfðum á
myndbönd tengd náminu. Í
síðasta þriðjungi námsins var
lítið um fyrirlestra, þá var jóga
bæði fyrir og eftir hádegi með
margra klukkutíma setu í
hugleiðslu á hverjum degi.
Svona gekk þetta í 37 daga,
með einum frídegi.
Hver var hápunktur dagsins?
-Ég verð að segja að hápunktur
dagsins hafi verið kvöldmatur-
inn því sá tími dags var
uppfullur af stolti og ánægju
með að hafa klárað enn einn
daginn í þessu námi með stæl.
Það var líka gott að komast
aðeins í frelsið, spjalla og fíflast,
og borða dásamlega góðan
mat.
Hvers vegna jóga? -Ég á jóga líf
mitt að þakka. Eftir langa leið
getur lært um jóga? -Það allra
fegursta og besta við jóga er að
ferðalaginu lýkur aldrei. Sama
hvað ég held að ég viti um jóga,
því meira sem ég læri, því
meira skil ég að ég veit í raun
ekki neitt. Núna hef ég lokið
rúmlega 500 klst í jógakenn-
aranámi – og ég er rétt að byrja.
Þetta ferðalag tekur allt ævi-
skeiðið, og rúmlega það.
Hefur þú farið víða til að afla
þér þekkingar og viðurkenn-
ingar sem jógakennari? -Námið
sem ég var að klára núna er að
mínu mati það allra besta. Það
er ekkert annað jógakennara-
nám sem hægt er að bera
saman við þetta og lífsviðhorf
mín hafa gjörbreyst eftir þetta
nám. Því meira sem ég stunda
jóga, því næmari verð ég og því
dýpra kemst ég í hugleiðsluna.
Áherslur í lífinu breytast, og
allt í einu finnst mér full-
komlega eðlilegt að gera jóga
allan daginn, alla daga. Jógað
sem mér býðst heima á Íslandi
er bara upphitun í samanburði
við þetta.
Eitt það áhugaverðasta sem
ég upplifði í þessu námi, var
eftir um tvær vikur, þegar ég
færði mig um stað inni í
jógasalnum, til að vera nær
kennaranum. Í fyrirlestri hafði
hann talað um svæðið sem
hann nær að hafa áhrif á með
sínu eigin orkuflæði og fyrir
þennan dag hafði ég verið utan
þess. Eftir að hafa verið föst á
sama stað í jógastöðunum
lengi, lengi, komst ég á þessum
degi dýpra í ALLAR stöður, og
náði fætinum aftur fyrir höfuð,
svo eitthvað sé nefnt.
Þeir sem fylgjast með þér á
samfélagsmiðlum hafa eflaust
tekið eftir miklum fjölda
mynda af þér standandi á
höndum. Hvers vegna ertu
alltaf á hvolfi? -Ég kenni fólki
að standa á haus í jógatímunum
mínum, því það að ná að halda
jafnvægi, á hvolfi, er stórkost-
leg tilfinning. Að standa á
höndum er einfaldlega skrefið
fyrir ofan, þegar það er ekki
lengur áskorun að standa á
haus. Ótrúlegt en satt snýst
þetta í raun ekkert um að
standa á höndum heldur um
allt það sem maður þarf að fara
í gegnum til að komast þangað;
styrkja líkamann, æfa sig
endalaust, detta oft og mörgum
sinnum og takast á við hræðsl-
una. Þetta snýst um það hvaða
manneskja þú verður þegar þú
hefur tekist á við þetta allt.
Hvað var best við að dvelja í
Taílandi? -Dásamleg fersk mangó
og Pad Thai – án efa! Og út-
sýnið, sólarupprásir og sólsetur!
Hvað gerðir þú helst í frí-
stundum? -Ég svaf! Og borð-
aði. Frístundir voru mjög tak-
markaðar, og fólust eingöngu í
því að næra sig og fara snemma
að sofa – til að geta gert þetta
allt aftur daginn eftir.
Hvers saknar þú mest að
heiman? -Mest af öllu sakna ég
fjölskyldunnar og vinanna. Ég
er mjög heimakær svo ég gæti
skrifað langan lista yfir allt hitt.
Bakarísmatur á sunnudags-
morgnum, bíókvöld með fjöl-
skyldunni og pizzuveislur
komast hátt upp á þann lista.
Að sjálfsögðu sakna ég fjarð-
arins og eyjanna, það toppar
ekkert það útsýni... og já, svo
sakna ég kranavatnsins og þess
að fá að sturta niður klósett-
pappír!
Gætir þú deilt einhverri snið-
ugri eða eftirminnilegri uppá-
komu frá dvöl þinni erlendis?
-Þessi spurning finnst mér
erfiðust, því þó ég eigi margar
dásamlegar minningar með
dásamlegu fólki hérna, þá
reynist erfitt að koma þeim í
orð. Við getum sagt að
einkahúmorinn nái nýjum
hæðum í jógakennaranámi og
ég ætla því aðeins að beygja
þessa spurningu og deila með
ykkur gullkorni frá Andrey
Lappa, kennaranum mínum.
Hann segir að fólk eigi að gera
jóga að lágmarki tvisvar í viku,
til þess að ná árangri og koma
líkamanum í heilbrigðara
form. Hann hvetur því fólk
sem getur einungis gert jóga
einu sinni í viku, að sleppa því
bara og horfa á sjónvarpið í
staðinn ;)
Pála kennir Universal og Vinyasa jóga og
krakkajóga, og er með Facebook síðu,
Hamingjujóga með Pálu, þar sem er
hægt að sjá upplýsingar um tíma
og/eða hafa samband.
frá óútskýranlegum verkjum,
fyrir tæpum 10 árum síðan,
get ég sagt að í dag sé ég komin
á stað sem einkennist af ham-
ingju og vellíðan. Jóga kom mér
hingað og ég lít því á það sem
skyldu mína og forréttindi að fá
að deila því með öðrum.
Jóga fyrir mér hófst sem
líkamlegar æfingar, sem er sá
hluti af jóga sem er sýnilegur og
flestir kannast við (ég meina, er
jóga ekki bara að teygja?). Því
meira sem ég geri jóga, því
dýpra kemst ég, og er núna
farin að nálgast jóga sem fyrir
mörgum er bæði óútskýranlegt
og óskiljanlegt. Jóga þýðir í
raun sameining við hið æðra afl
innra með okkur sjálfum. Ég
finn að það er þangað sem ég vil
komast.
Ertu búin að læra allt sem þú Girnileg hrákaka – í miklu uppáhaldi hjá Pálu.
Pála Margrét stendur á höndum á Koh Samui..
44/2018 7