Feykir - 21.11.2018, Blaðsíða 10
Blakfélagið Krækjur er félagsskapur af hressum
konum á öllum aldri sem hafa gaman af því að spila
blak. Þær leggja mikið á sig á æfingum og fara
landshorna á milli í keppnisferðir og hafa uppskorið
vel undanfarin ár. Veturinn 2016-2017 spiluðu þær í
5. deild en í vor unnu þær sig upp í 2. deild.
„Upphafið að þessu blakbrölti byrjaði í sal gamla barna-
skólans upp úr 1980 þegar gamlar skólasystur hittust til að
leika sér og hafa gaman. Það sem þar fór fram átti þó lítið skylt
við blak, við kunnum engar reglur en yfir netið skyldi boltinn
fara. Með gleðina í fyrirrúmi héldum við ótrauðar áfram og
fórum á fyrsta mótið árið 1988 á Dalvík. Við vorum eina
byrjendaliðið en þarna voru komin lið af öllu Norðurlandi,“ segir
Sigurlaug Valgarðsdóttir. „Við skulum segja að við lærðum
helling á þessu móti og nafnið á félagsskapinn varð til. En
leikmenn kræktust og flæktust mikið í netinu, sem má alls ekki,
svo Krækjur skyldi nafnið verða.“
Krækjur hafa haft fasta æfingatíma öll árin en þó ekki
þjálfara nema tíma og tíma. Una Sigurðardóttir hefur þó verið
spilandi þjálfari lengst af. Nýliðun hefur verið töluverð
undanfarin ár og æfa Krækjurnar nú 2-3 í viku af miklum
krafti undir stjórn Cristinu Ferreira sem Sigurlaug segir að
Krækjur séu svo heppnar að hafa.
Framundan í vetur eru fjögur trimmmót á Norðurlandi þar
sem hvert lið spilar fimm til sex leiki á helgi ásamt Öldunga-
mótinu sem verður haldið í Reykjanesbæ og Íslandsmót BLÍ.
Öldungamót BLÍ er Íslandsmót öldunga 30+ og uppskeru-
hátíð blakara af öllu landinu og er því stærsta mót vetrarins.
Mótið er haldið á hverju ári um mánaðamót apríl-maí og þar
mæta lið af öllu landinu, um 1700 keppendur, spila blak og
skemmta sér og öðrum í þrjá daga.
Krækjur fóru á sitt fyrsta öldungamót árið 1988 á Húsavík
og höfðu handmálað merki félagsins og númer á keppnis-
treyjurnar. Aðalmarkmið mótsins var að enda ekki með 0 stig
eftir hverja hrinu – og það tókst. Krækjur hafa mætt óslitið
síðan og yfirleitt alltaf með tvö lið.
Nú eru Krækjur að spila við betri lið landsins og standa sig
mjög vel. Krækjur skráðu sig öðru sinni í Íslandsmót BLÍ
veturinn 2016-2017 og spiluðu þá í 5. deild. Liðið hefur
unnið sig hratt upp en í stað þess að spila í 4. deild síðasta
vetur var því boðið í 3. deildina. Unnum stelpurnar sig svo
upp í vor og spila nú í 2. deild.
Mótið er spilað á þremur helgum en fyrstu sex leikir
Íslandsmótsins fóru fram 13. og 14. október sl. á Neskaupstað
og unnu Krækjur alla sína leiki. Í janúar verða síðustu fimm
leikirnir spilaðir og svo verða úrslitin um miðjan mars á
Reykjavíkursvæðinu.
„Félagsskapurinn snýst ekki bara um blakæfingar og
keppnisferðir – en árshátíð og jólaföndur eru fastir liðir og
hefur komið fyrir að Krækjur skelli sér út fyrir landsteinana í
skemmtiferðir eða finni sér annan vettvang til að skemmta sér
saman. Allar erum við nú ólíkar og á mismunandi aldri en
Krækjur hafa verið þekktar fyrir gleði og húmor, innan sem
utan vallar. Það eru forréttindi að tilheyra hóp sem þessum
þar sem allir eru með það að markmiði að hafa gaman,
stunda hreyfingu í jákvæðu andrúmslofti og jafnvel ná smá
framförum.
Við viljum nota tækifærið og þakka helstu stuðnings- og
styrktaraðilum okkar fyrir aðstoðina undanfarin ár sem er
ómetanlegt því ferðakostnaður og keppnisgjöld eru ansi
mikil,“ segir Sigurlaug sem einnig laumar einum söngtexta
með en hann var saminn eftir afhroð í fyrstu keppnisferð
Krækja á Dalvík.
Nú er oft á Króknum kátt,
Krækjur leikum saman.
Æfum vel og öskrum hátt,
af blaki höfum gaman.
Oft á mótum leikum grátt,
lið frá öðrum bæjum,
medalíum hömpum hátt
og bikarana fægjum.
/PF
( LEIKMANNAKYNNING )
Blakfélagið Krækjur á Sauðárkróki
DAGNÝ HULD
GUNNARSDÓTTIR
KANTUR
ÞURÍÐUR ELÍN
ÞÓRARINSDÓTTIR
KANTUR / DÍÓ
VALDÍS ÝR
ÓLAFSDÓTTIR
MIÐJA
HRAFNHILDUR
GUÐNADÓTTIR
MIÐJA
HELGA FANNEY
SALMANNSDÓTTIR
DÍÓ
ÁSTA MARGRÉT
BENEDIKTSDÓTTIR
KANTUR
ÞÓRDÍS SIF
ÞÓRISDÓTTIR
KANTUR / DÍÓ
SIGURRÓS
JÓNSDÓTTIR
KANTUR
ÍRIS
SVEINBJÖRNSDÓTTIR
KANTUR
STEINUNN DANÍELA
LÁRUSDÓTTIR
MIÐJA
SANDRA
HILMARSDÓTTIR
KANTUR / MIÐJA
VALA HRÖNN
MARGEIRSDÓTTIR
KANTUR / MIÐJA /
UPPSPILARI
UNA ALDÍS
SIGURÐARDÓTTIR
KANTUR / UPPSPILARI
CRISTINA
FERREIRA
KANTUR / MIÐJA
ÞJÁLFARI
THELMA LIND
JÓNSDÓTTIR
MIÐJA
SIGURLAUG HRÖNN
VALGARÐSDÓTTIR
UPPSPILARI
ÓSK
BJARNADÓTTIR
KANTUR / DÍÓ
ELSCHE ODA
APPEL
KANTUR
KATHARINA
SOMMERMEIER
UPPSPILARI
BLA
KFÉLAGIÐ
KRÆKJUR
10 44/2018