Feykir - 21.11.2018, Side 11
fetaostur
salatblanda (hnetur)
Skorið að vild og blandað saman.
Á MEÐAN BEÐIÐ ER
Snúrubrauð fyrir börnin
Það er alltaf gaman fyrir börn að
grilla brauð yfir opnum eldi eða
heitum kolum. Ef þau eru ekki mikið
fyrir lambakjöt má leyfa þeim að setja
pylsur inn í brauðið og grilla. Þá þarf
að passa að setja ekki of mikið brauð
utan um pylsurnar vegna þess að
brauðið brennur þá áður en pylsurnar
ná að hitna.
2 dl volgt vatn
5 dl hveiti
2 tsk þurrger
2 msk matarolía
1 msk salt
1 msk pizzakrydd
1 tsk hvítlaukssalt
Aðferð: Öllu blandað saman,
hnoðað og látið hefa sig í u.þ.b. 60
mínútur. Vafið á grillpinna og grillað.
EFTIRRÉTTUR
Eftirréttur óbyggðanna
kex - ýmsar tegundir
rjómi
súkkulaði
rúsínur og fleira gómsætt sem hægt
er að tína til.
Aðferð: Kex mulið í botninn á formi.
Rjómi þeyttur í gosflösku (tveggja
lítra flösku ef um hálfan líter er að
ræða - athugið að það á eftir að koma
ykkur á óvart þegar þið komist að því
hversu fljótleg þessi aðferð er) og
settur ofan á kexið. Súkkulaðið brætt
og hellt yfir rjómann. Ávöxtum eða
öðru góðgæti bætt við efst á kökuna
eða blandað saman við rjómann.
Verði ykkur að góðu!
Þau Hafdís og Stefán skora á Gest
Sigurjónsson og Ernu Nielsen að
taka að sér hlutverk matgæðinga.
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS:: Tak.
Feykir spyr...
Hvenær má
fara að spila
jólalögin?
Spurt á Facabook
UMSJÓN palli@feykir.is
„1. des. ekki degi fyrr.“
Ingi Björn Árnason
„Ég myndi segja sem mikið
jólabarn. Það mætti byrja upp
úr miðjum nóvember. Það léttir
líka lundina í skammdeginu. “
Brynjar Rafn Birgisson
„Ekki fyrr en fyrsta dag aðventu
og þá má sko óma og hljóma.“
Anna Rósa Skarphéðinsdóttir
„Þegar hjartað kallar á það má
spila jólalögin. Hvenær sem
er, en ekki samt of mikið, svo
spenna og tilhlökkun vegna
jólanna fari ekki of snemma.“
Alexandra Chernyshova
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Sköpun er alltaf mun meira örvandi en eyðilegging.
– Jose Saramago
Su
do
ku
„Við þökkum fyrir áskorunina frá Steinunni og Sigga. Stefán hefur í
gegnum tíðina ferðast mikið á fjöllum og er uppáhaldsmaturinn
hans svokölluð skaflasteik. Það er því kærkomið að segja ykkur frá
því hvernig slík steik er matreidd en hana má grilla jafnt í holu í
jörðinni sem og í holu sem grafin er í skafl.
Eftirrétturinn er svo réttur sem varð til úr afgöngum í
hálendisgæslu Skagfirðingasveitar sumarið 2015 en við erum bæði
virkir félagar í björgunarsveitinni,“ segja þau Hafdís Einarsdóttir,
kennari við Árskóla, og Stefán Valur Jónsson, starfsmaður
Steypustöðvarinnar á Sauðárkróki.
AÐALRÉTTUR
Skaflasteik
lambalæri
Heiðmerkurblanda (eða krydd að
eigin vali)
olía
Aðferð: Úrbeinið læri þremur
dögum fyrr, leggið í kryddlög. Okkar
uppáhalds krydd er Heiðmerkur-
blanda. Þá blöndum við hana með
olíu og dreifum yfir kjötið. Geymið
kjötið í kæli. Þegar á að fara að grilla
lærið er það vafið í fjórfalt lag af
álpappír. Kjötið er svo lagt ofan á heit
kol (vel grá) og gott er að láta steina
eða steinflögur undir kolin til að
hitinn nýtist betur. Kjötið haft á
kolunum í um það bil 30 mínútur og
svo snúið við, látið liggja í aðrar 30
mínútur og þá snúið og haft um það
bil 15 mínútur á hvorri hlið.
Sveppasósa:
½ lítri rjómi
slatti af sveppum
olía
sveppateningur
sósuþykkni
Aðferð: Sveppirnir steiktir létt í olíu
á pönnu eða í potti, rjóminn settur út
í og látið malla í dágóðan tíma.
Sveppateningur settur saman við og
sósan þykkt eftir smekk. Sósan
smökkuð til eftir að sósuþykkni hefur
verið bætt í. Saltað að auki eða
hálfum sveppateningi bætt í.
Salat:
iceberg
spínat
vínber
gúrka
tómatar
jarðaber
paprika
Skaflasteik og eftir-
réttur óbyggðanna
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Hafdís og Stefán á Sauðárkróki elda
Hafdís, Gísli og Stefán. MYND ÚR EINKASAFNI
44/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Sellerí er mjög basískt grænmeti sem vinnur gegn blóðsýringu og
hreinsar blóðrásina. Það aðstoðar meltinguna, kemur í veg fyrir
mígreni, slakar á taugum, lækkar blóðþrýsting og gerir húðina
fallegri. Ótrúlegt, en kannski satt, þá hefur sellerí neikvæðar
hitaeiningar þ.e. þú brennir fleiri hitaeiningum við að melta það
en það gefur.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Vott um Grettis verk ég ber.
Velhaldandi náði mér.
Heilmargt í mér hafa má.
Hörð er kvölin mig að fá.
FEYKIFÍN AFÞREYING