Feykir - 21.11.2018, Side 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
44
TBL
21. nóvember 2018 38. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Dagskrá helguð skáldkonunni Huldu
Dagur íslenskrar tungu
Skagfirski kammerkórinn
og nemendur 7. bekkjar
Varmahlíðarskóla buðu upp
á dagskrá sem helguð var
skáldkonunni Huldu, eða
Unni Benediktsdóttur
Bjarklind, að Löngumýri á
degi íslenskrar tungu, þann
16. nóvember sl.
Þar voru verkum og ævi
skáldkonunnar gerð skil í
tali og tónum, nemendur 7.
bekkjar lásu úr verkum
Huldu og kórinn flutti lög
við ljóð hennar undir stjórn
Helgu Rósar Indriðadóttur
og var dagskráin einkar vel
heppnuð. /FE
Stelur vatni frá veitunni
Ný borhola á Reykjum
Byrjað var á framkvæmd á borun vinnsluholu RS-15 á
Reykjum í Hrútafirði sl. fimmtudag en jarðborinn
Trölli hjá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða borar
holuna. Á fundi veituráðs sl. mánudag kom fram að
borun hafi gengið vel og fljótlega verið komið niður á
mjög heitt vatn.
Farið var í að undirbúa það að rýma út fyrir fóðr-
ingu en þá kom í ljós að tenging var við holu RS-14 og
fór nýja holan að stela vatni frá veitunni sem olli raski
á afhendingu til notenda. Til að lágmarka áhættu hefur
verið ákveðið að fara í hjólakrónuborun með vatni
þegar búið verður að fóðra holuna. Fylgst verður vel
með vinnsluholu RS-14 þegar byrjað verður að bora
og ef borunin hefur áhrif á hana verður hætt strax
og staðan metin upp á nýtt. /PF
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
MYND: RAEKTO.IS
Hugnast ekki Húnavallaleið
Vegamál í Húnavatnshreppi
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps tók fyrir á fundi sínum
þann 14. nóvember sl. bréf frá Samgöngufélaginu,
dagsett 23. október 2018, er varðaði ábendingar í
samgöngumálum. Bréfið var lagt fram til kynningar
og bókaði sveitarstjórn eftirfarandi:
„Sveitarstjórn leggst alfarið gegn þeim áformum sem
koma fram í bréfi Samgöngufélagsins og leggur áherslu
á að inn í samgönguáætlun rati þau verkefni við stofn-
og tengivegi sem heimamenn hafa bent á að nauðsynleg
séu innan Húnavatnshrepps. Öll þessi verkefni eru
nauðsynleg og brýn.“
Eins og fram hefur komið hefur Samgöngufélagið
sent Alþingi athugasemdir við tillögu að samgöngu-
áætlun fyrir árin 2019 til 2033 þar sem óskað eftir því að
í áætluninni verði gert ráð fyrir Húnavallaleið í Austur-
Húnavatnssýslu og Vindheimaleið í Skagafirði. /FE
Hugmynd Samgöngufélagsins að Húnavallaleið.