Feykir


Feykir - 28.11.2018, Blaðsíða 37

Feykir - 28.11.2018, Blaðsíða 37
372 01 8 Verslunarmannafélag Skagafjarðar sendir félagsmönnum sínum, fjölskyldum þeirra og öðrum landsmönnum bestu jólakveðjur Jólin koma... Árni Jónsson Sauðárkróki ... þegar fjölskyldan er saman og ilmurinn af jólasteikinni umlykur húsið. Helga Sigurjónsdóttir Laugarbakka ... ...þegar amma sendir mér smákökur. Nýjar vörur, úrvalið hefur aldrei verið meira. Þú finnur jólagjöfina hjá okkur. Sjáumst! Ólína og Þórey Elsa Aðalgata 4 - 550 Sauðárkrókur Sími: 571-4070 - www.eftirlaeti.com Fléttubönd er önnur bók Stefáns Sturlu Sigurjónssonar í þríleiknum um Lísu lögreglukonu og aðstoðarfólk hennar. Bókin er framhald af Fuglaskoðaranum sem kom út í fyrra en annars sjálfstæð frásögn.Feykir setti sig í samband við Stefán og forvitnaðist um bókina og rithöfundinn sem kom sterkur inn á glæpasögumarkaðinn í fyrra með rannsóknarlögregluteymið Lísu, Tomma og Sigrúnu. Á síðasta ári kom út fyrsta bókin í þríleiknum um rannsóknarlögregluteymið Lísu, Tomma og Sigrúnu, Fuglaskoðarinn og segist Stefán hafa gengið lengi með hugmynd um að skrifa glæpasögu. Takast á við það vinsæla bókmenntaform. „Ég hef skrifað barnbækur, leikrit og jafnvel kvikmynda- og sjónvarpshandrit, sem hafa ekki alltaf farið í framleiðslu, eins og gengur. En þar þróast oft persónur sem maður vill vinna meira með. Í kvikmyndahandriti sem ekki hefur farið í framleiðslu, var ég búinn að skrifa sögusvið sem ég nota fyrir Kára, lögreglumannsins sem lendir í mjög alvarlegu bílslysi með Lísu. Bílslysið og afleiðingar þess er einskonar hliðarsaga, þótt það sé að hluta til gangverkið í þríleiknum. Persónurnar hafa því verið að þróast í hinum ýmsu verkum hjá mér í gegnum árin. Þannig get ég sagt að aðdragandinn, þróunin að þessum þríleik fer að nálgast tíu ár.“ Stefán segir að þegar hann loks settist niður og byrjaði að skrifa fyrstu glæpasöguna þekkti hann persónurnar, bakgrunn þeirra og sögu. „Þrátt fyrir það má finna í öllum persónum sem maður skapar einhverja eiginleika höfundar, eitthvað sem maður þekkir sjálfur, eitthvað sem fólk telur sig þekkja í höfundi eða kannast við í fari einhvers en þannig erum við öll. Þó við séum ólík þá eigum við alltaf einhvern samnefnara með öðrum, sama hvar á heimskringlunni við búum.“ Hvernig færðu hugmyndir að sögusviði bókarinnar? „Með því að skoða gömul glæpamál, upplýst og óupplýst, innlend og erlend hafa kviknað hugmyndir. Síðan hlustar maður á samræður fólks, leitar í eigin ranni og hnoðar deigið fram og til baka. Skemmtilegar frásagnir, samræður í heitapottinum eða atburðarrás sem maður lendir í kveikir hugmynd eða hugmyndir sem síðan lenda í deiginu í nýrri útfærslu á blaðsíðum bókanna. Svo að sjálfsögðu tekur maður eitthvað frá sjálfum sér, úr sínum eigin reynslubanka. Það er jú grunnurinn sem maður á alltaf aðgang að.“ Hann segist stundum hafa haldið að einhver annar en hann sjálfur sitji og stjórni hvernig sögurnar eða samtölin þróist… „En ég nota mjög meðvitað það stílbragð að leyfa sögunni sjálfri og persónum að segja mér hvað sé að gerast eða hvaða orðaforða þær nota. Þannig að ég hlusta mjög mikið, stundum kemur mér reyndar á óvart hvað hafi verið skrifað. Til dæmis kemur fram ákveðið bílnúmer í Fléttuböndum það var fullkomlega óundirbúið hvert það varð endanlega, meðan ég skrifaði bókina, enda átti númerið sjálft ekki að skipta máli, heldur eigandi þess. Svo þegar kom að kaflanum þar sem númerið kom endanlega fram og höfundurinn búinn að stimpla það inn í skjalið langaði mig að vita hvort það væri skráð hjá Umferðarstofu. Svo var ekki en þegar ég googlaði númerið kom niðurstaðan verulega á óvart.“ Var vinnan við þessa bók eitthvað frábrugðið þeirri fyrstu? „Já, mjög mikið. Ég var búinn að skrifa og þróa samskipti og samskiptamáta persónanna í fyrstu bókinni Fuglaskoðaranum. Þess vegna þurfti ég ekki að velta mér svo mikið upp úr þeim hluta skrifanna. Hins vegar er fléttan sjálf flóknari … eða öllu heldur hugmyndin, hvernig sögurnar tvinnast saman. Það var gaman að takast á við það. En einstaka kaflar, samtöl og þess háttar þróuðust meðan ég sat við tölvuna. Ég held líka að ákveðnar samfélagslegar skoðanir þess sem skrifaði komi ögn meira fram í Fléttuböndum. Höfundur hafi kannski verið persónulegri. Svo var ég náttúrulega búinn að fá ákveðna þjálfun við að eiga við formið, það er glæpasöguna.“ /PF Sigurður með Paradísarstræti sem kom út árið 2013. MYND AF FACEBOOK Fléttubönd BÓKAÚTGÁFA :: Stefán Sturla Sigurjónsson skrifar Fléttubönd

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.