Bæjarbót - 05.01.1987, Blaðsíða 1
Óháð flokkadrætti
6. árgangur - Janúar 1987 - 1. tölublað
Heilsugœslumál í Grindavík:
„Besta staðsetning nýrrar
Heilsugæslustöðvar er við
Víkurbraut miðja“
r
— spjallað við Kristmund Asmundsson lækni
Segja má að heilsugæslumál
Grindvíkinga séu komin á vissan
vendipunkt. Eftir komu Krist-
mundar Ásmundssonar læknis
hingað og stofnun heilsugæslu-
nefndar bæjarins eftir síðustu
bæjarstjórnarkosningar hafa
leikið ferskir vindar um heilsu-
gæslumálin og segja má að
framtíðarmótun þeirra sé nú í
alvarlegum undirbúningi.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
nýliðins árs var ákveðið að
útbúa aðstöðu fyrir sjúkra-
þjálfara hér innan bæjar, líklega
í nýja íþróttahúsinu. Sjúkra-
þjálfari er þegar fluttur til
Grindavíkur og fastlega er
reiknað með að hann hefji fullt
starf hér með vorinu, en að sögn
Kristmundar læknis er meira en
nóg fyrir einn sjúkraþjálfara að
gera hér.
Málefni heilsugæslu og
sjúkrahúss hafa verið áberandi í
umræðunni hér syðra undanfar-
in misseri. Sterkar raddir hafa
heyrst um að Grindvíkingar
ættu að segja skilið við Heilsu-
gæslu Suðurnesja og standa al-
farið á eigin fótum. Blaðið innti
Kristmund eftir hans skoðun á
því.
„Miðað við fyrstu áætlaðar
kostnaðartölur frá Heilsugæslu
Suðurnesja er hlutur okkar um
3,3 milljónir af kostnaðinum,
sem að mínu mati er allt of há
tala og eigi hún að standa höfum
við ekkert með þetta samstarf að
gera. Fyrir þessa upphæð getum
við rekið luxus heilsugæslu hér
sjálf. Hins vegar, ef okkar hluti
af kostnaðinum er eðlilegur,
a.m.k. ekki hærri en gegnur og
gerist í sambærilegum einingum
annars staðar, get ég vel hugsað
mér áframhaldandi samstarf.
Ég bendi þó á að það er alltaf
betra að þurfa ekki að sækja
alla hluti undir stjórn sem situr í
öðru byggðarlagi. Ég hef mínar
ákveðnu skoðanir á þessu, en
þetta er hápólitískt mál, í mikilli
umræðu og skoðun. Vonandi
tekst okkur í sameiningu að
finna bestu lausnirnar.“
Á núverandi fjárlögum var
samþykkt fjárveiting til bygg-
ingar heilsugæslustöðvar hér.
Ekki há tala, en þó byrjun á ein-
hverju meiru. Það hefur áður
komið fram hér í blaðinu að
Kristmundur Ásmundsson
læknir telur núverandi aðstöðu
Heilsugæslustöðvarinnar al-
gjörlega ófullnægjandi.
,,Þetta húsnæði hentar ágætlega
til að skrifa út lyfseðla, en þarna
er engin aðstaða til minniháttar
aðgerða, þrengsli eru mikil og
tækjakostur af mjög skornum
skammti. Þetta leiðir til þess að
senda verður mikinn fjölda
fólks til Sjúkrahússins í KeÁavík
til þeirra aðgerða sem hér ætti
að framkvæma, þvi nú er fagleg
kunnátta til þess hér á staðnum.
Ég geri fastlega ráð fyrir að
bæjar'núar vilji geta notið sem
bestrar aðhlynningar hér innan-
bæjar, en til þess að svo geti
orðið verður að taka stór skref í
uppbyggingu nýrrar heilsu-
gæslustöðvar. Ég tel að við
eigum að byggja nýja sér-
hannaða Heislugæslustöð frá
grunni, u.þ.b. 400 - 500 ferm.
hús, þar sem gert verður ráð
fyrir aðstöðu fyrir sjúkra-
þjálfara, iðjuþjálfara og ýmsa
sérfræðinga auk aðstöðu fyrir
heilsugæslulækna. Ég vil að
þetta verði myndarlega gert,
engar bráðabrigðalausnir og ég
bendi á að ríkið greiðir 85% af
Viðmiðunarstuðull til fast-
eignamats á landinu er reiknað-
ur út eftir kaupsamningum sem
gerðir eru um allt land þegar
fasteignir eru seldar. Fasteigna-
verð er hæst í Reykjavík og því
talið vera 100% og verð á öðrum
stöðum miðað við það.
Á árinu 1985 var mat fast-
eigna í Keflavík, Njarðvík og
Grindavík 71,4% af Reykja-
víkurmatinu og ekki annað
kostnaði á móti 15% frá
bænum. Heilsugæslunefndin
starfar ötullega að þessum
málum og m.a. fórum við í
skoðunarferð austur fyrir fjall
sl. haust og skoðuðum fjórar
Heilsugæslustöðvar. ‘ ‘
Eins og áður hefur komið
fram hér i blaðinu eru skiptar
skoðanir um staðsetningu
nýrrar heilsugæslustöðvar. Oft
hefur því verið haldið fram að
heppilegur staður væri í grend
við Heimili aldraðra. En hvað
finnst lækninum? „Staðsetn-
ingin er mér mikið hjartans mál.
Ég er andvígur staðsetningu við
Austurveginn. Á heimili aldr-
aðra er m.a. gert ráð fyrir lækn-
isaðstöðu og sjúkraþjálf-
arastöðu og því einfalt mál að
vitað en sama viðmiðun yrði
viðhöfð við fasteignamat fyrir
árið 1986.
Fasteignamat Ríkisins var
ekki á því og lækkaði stuðulinn
fyrir Grindavík um 10%. Mat
hér er því 64,5%, en í Keflavík
og Njarðvík var það hækkað í
75%. Sandgerði hefur 54.5% en
Garður og Vatnsleysustrandar-
hreppur 50.8% af Reykjavíkur-
matinu.
Kristmundur Ásmundsson
veita þessa þjónustu á staðnum.
Eftir allmikla skoðun er ég sann-
færður um að besta staðsetning-
in er við Víkurbraut miðja. Þar
yrði stöðin nokkuð miðsvæðis
milli skóla, atvinnusvæðis og
heimilanna. Líklega koma
200-250 manns á heilsugæslu-
stöðina á hverri viku og mér
finnst mikið atriði að sem flestir
geti komist fótgangandi að
stöðinni. Staðsetning við Austur-
veg, austan við núverandi
byggð, finnst mér alveg út í hött.
Þó ekki væri nema vegna þess
að mér skilst að þar verði all oft
ófært“ sagði Kristmundur Ás-
mundsson heilsugæslulæknir að
lokum.
Þessar breytingar hafa það í
för með sér að tekjur bæjarsjóðs
af fasteignum rýrna um 1,5-2
milljónir frá því sem menn töldu
þær verða. Hins vegar mun
bæjarstjórnin leggja 25% álag á
fasteignaskattana, eins og
heimild er til í lögum, næstu 10
árin og nýta sjóðinn sem þannig
myndast til að flýta fyrir lagn-
ingu varanlegs slitlags á götum
og gangstéttagerð í bænum.
Bæjarbót
spyr:
Hefur þú trú á að
Grindavíkurliðið komist
upp í úrvalsdeildina eftir
þetta keppnistímabil?
48-
Bogi Hallgrímsson:
,,Já frekar hef ég nú trú á
því. Ég hef tröllatrú á liðinu
okkar núna og strákarnir
eiga svo sannarlega fram-
tíðina fyrir sér.“
Willard Ólason:
,,Já, ég hef trú á því, en
það verður erfitt. Það verð-
ur minnsti hugsanlegur
munur á Grindavík og ÍR.“
Sigurður Vilmundsson:
„Ég er heldur efins um
það. Grindavík verður eitt
af þrem liðum í toppbar-
áttunni, en vafi hvort það
nær toppnum.“
Helgi Ólafsson:
„Já, já ég hef trú á því.
Það verður tveggja stiga
munur á toppnum. Grinda-
vík númer eitt og ÍR í öðru
sæti.“
Einar Jón Ólafsson:
„Já, af hverju ekki?
Grindavík og IR verða
númer eitt og tvö. Hugsan-
lega hnífjöfn og þá verður
úrslitaleikur.
Bæjarbót
Sími
8060
Núverandi húsnæði Heilsugæslunnar ófullnægjandi segir Kristmundur læknir.
Fasteignamat:
Viðmiðun lækkuð um 10%
—matið hér 64,5% af Reykjavíkurmatinu
JSLANDS