Bæjarbót - 01.02.1987, Page 3
(rzœfém>l
Óliáð flokkadrætti
3
Verkalýðsfélag Grindavíkur 50 ára:
,,Vorum ekkí í náðinni hjá þeim
sem töldust vera ráðamenn yfir
atvinnulífinu“
—litið við í afmælishófi Verkalýðsfélagsins í Festi
launaða fólk, sem var að vinna
fyrir daglegu brauði og gat varla
lifað af! Ég man sérstaklega
eftir sameiginlegu verkfalli með
Dagsbrún. Þá var setið í sex sól-
arhringa í Alþingishúsinu til að
reyna að rétta kjör láglauna-
fólksins. Eftir þessa löngu setu
var boðað til fundar hér í Kven-
félagshúsinu og fundarmenn
voru allir sáttir við samninginn,
sem var þó smámunir miðað við
það sem síðar hefur náðst.“
Meðal annarra ræðumanna
var fyrsti formaðurinn Erlendur
Gíslason. Af lítillæti kvað hann
það hafa verið tilviljun að hann
var valinn til formennsku á sín-
um tíma, hann hafi aðeins verið
einn úr hópnum. Var Erlendur
hylltur af gestum fyrir giftu-
drjúg frumherjastörf og félags-
sinnuð sjónarmið, sem m.a.
urðu neistinn að stofnun Verka-
lýðsfélags Grindavíkur fyrir 50
árum.
Svavar
Formenn heiðraðir. F. v. Júlíus, Svavar og Erlendur.
Fjöldi gjafa barst. Þessi mynd kom frá Grindavíkurbæ.
Undirbúningsnefndin vann frábœrt starf.
Guðmundur
Benoný
Eins og fram hefur komið í
fréttum varð Verkalýðsfélag
Grindavíkur 50 ára 13. febrúar
og hélt upp á afmælið með
myndarlegu hófi í Festi. Eftir að
Benoný Benediktsson formaður
VG hafði boðið fjölmarga gesti
velkomna var gengið til dag-
skrár. Þrír aldnir fyrrum for-
menn VG voru heiðraðir sér-
staklega. Erlendur Gíslason
fyrsti formaður félagsins,
Svavar Árnason og Júlíus Daní-
elsson. Mörg stutt ávörp voru
flutt og hér birtast glefsur úr
þremur þeirra.
Guðmundur J.
Guðmundsson:
„Hér er ein stærsta verstöð
landsins. Á fáum stöðum hafa
menn sótt sjóinn jafn fast og á
fáum stöðum til skamms tíma
hafa skilyrði verið verri. Fisk-
vinnslufólk er öðru fremur
verkafólk hér. Þetta fiskvinnslu-
fólk um land allt á nú töluvert
undir högg að sækja. Það þarf
að sækja stærri rétt, eins og
sjávarútvegurinn reyndar allur
og ég treysti á það unga fólk sem
hér er að það haldi á hlut fisk-
vinnslufólksins alls með
félögum sínum allt í kringum
landið.“
Svavar Árnason:
síðar, með þrotlausu starfi,
hefur verið gert að öruggri höfn.
Verkalýðsfélagið lét frá upphafi
mjög til sín íaka framfaramál í
byggðarlaginu og þá ekki síst
hafnarmálin. Þegar félagið var
stofnað munu hafa verið hér
hartnær 400 manns. Ekki var
margmenninu fyrir að fara og
það verður að segjast eins og er
að á þeim tíma var það ekki vin-
sælt að gerast forystumaður
fyrir verkalýðsfélagi. Þeir sem
það gerðu voru álitnir hálfgerðir
svartir sauðir sem ekki voru al-
mennt í náðinni hjá þeim sem
töldust vera ráðamenn yfir at-
vinnulífinu.“
Júlíus Daníelsson:
,,Ég á margar gamlar og
góðar endurminningar frá því ég
var formaður fyrir þessu félagi.
Ekki síst þegar maður var að
berjast fyrir að fá einhverjar
kjarabætur fyrir þetta lægst
„Árið 1939 var brotið blað í
sögu bæjarins, því þá var fyrsta
tilraun gerð til þess að grafa rás í
gegnum rifið inn í Hópið, sem
Erlendur
STAÐARKJÖR
— staður fyrir þig !
o
Góðir Grindvíkingar!
Við erum að taka við og byrjum
á mánudaginn. Við bjóðum fólk
sérstaklega velkomið til viðskipta.
Við munum kappkosta að veita
góða þjónustu og vörur á
sanngjörnu verði — þannig að
Staðarkjör verði staður fyrir þig.
r
-Ymsar nýjungar eru á döfinni-
Sjáumst í Staðarkjöri!
Ragnar Ragnarsson
Guðfinnur Friðjónsson
STAÐARKJÖR ^
— staður fyrir þig !