Bæjarbót - 01.02.1987, Side 4
4
^g^fOT
Óháð flokkadrætti
/4 20. afmœlisárinu:
Albert verður breytt í Bretlandi
— tilboð Bretanna tæpar 40 milljónir
Tilboð hafa verið opnuð í
breytingar á nótaskipinu Albert
GK 31. Lægsta tilboðið kom frá
breskri skipasmíðastöð og því heíur
verið tekið. Kostnaðaráætlun
var upp á 44 milljónir króna en
tilboð Bretanna var upp á 39,4
milljónir.
Alls bárust 14 tilboð í breyt-
ingarnar og voru þau frá 39,4
milljónum upp í rúmlega 71
milljón. Tvö tilboð bárust frá
íslenskum aðilum. Skipasmíða-
stöð Þorgeirs og Ellerts á Akra-
nesi var þriðja neðst með 43,8
milljónir og Stálsmiðjan var í 7.
sæti með 54 milljónir. Önnur
tilboð voru frá ýmsum erlendum
aðilum og það næst lægsta var
frá skipasmiðastöð í Hamborg
upp á 42 milljónir króna. Að
loknu mati á tilboðunum og
samhæfingu kom í ljós, að verð-
munur á tilboði Bretanna og
Þjóðverjanna var 5 milljónir
króna og tilboð Þorgeirs og
Ellerts var 7 milljónum hærra en
það lægsta, að sögn Frímanns
Sturlusonar, skipatæknifræð-
ings hjá Skipatækni hf., sem
annaðist útboðið.
Breytingarnar á Albert eru
samkvæmt útboði lenging um 5
metra, breyting á skut fyrir skut-
tog, perustefni, endurbætur og
breytingar á ibúðum, nýtt stýris-
hús og þilfarshús undir það og
hvalbak verður lyft. Áætlað er
að vinna við breytingarnar
hefjist með vorinu og taki rúma
tvo mánuði.
Mikil
flóðhætta
Her er Albert GK við Eyjabakkann hlaðinn af loðnu. Bátnum
verður breytt í vor.
Albert GK 31 hét áður Birt-
ingur. Hann var byggður í
Flekkefjord í Noregi 1967 og
lengdur og yfirbyggður 1976.
Hann mælist nú 316 brúttólestir
og er á loðnuveiðum, en fer
fljótlega utan.
Að sögn Þórarins Ólafsson-
ar, eiganda Alberts, var orðin
mikil þörf fyrir þessar breyt-
ingar þar sem skipið er nú 20 ára
og tiltölulega lítið hefur fyrir
það verið gert á þeim tíma.
Þórarinn sagði að eftir breyt-
ingarnar hentaði skipið mun
betur til togveiða, bæði á fiski-
troll og rækju, en nú er.
Hópferðabílar Steindórs:
Hafa viðkomu í Braut
Eftir að hafa haft Víkurnesi
sem aðalviðkomustað í Grinda-
vík sl. 13 ár, hafa Hópferðabílar
Steindórs nú hætt komum sín-
um þangað, en munu þess í stað
hafa viðkomu við söluturninn
Braut við Víkurbraut. ,,Við
gerum þessa breytingu m.a.
vegna þess að sárafáir farþegar
komu í bílinn hjá Víkurnesti og
krókurinn þangað tafði bílana,
sem verða að fylgja strangri
áætlun. Mig langar til að senda
Halldóri, Helgu og starfsfólki
þeirra í gegn um tíðina kveðjur
með sérstöku þakklæti fyrir
mjög gott samstarf“ sagði
Steindór Sigurðsson. Að hans
sögn geta farþegar eftir sem
áður komið í Bílana við Lands-
bankann, Bragakjör og svo auð-
vitað við Braut.
Eigendur Þorbjarnar hf. hafa
sent bænum bréf þar sem þeir
benda á ört vaxandi flóðahættu
fyrir neðan byggingar sínar.
Leitað verður eftir fram-
kvæmdaáætlun til varnar gegn
landbrotinu hjá Hafnarmála-
stofnuninni.
Keppnisferð
til Finnlands
Nú mun vera ákveðið að 4.
flokkur pilta fari í keppnisferð
til Finnlands í sumar. Ferðin
mun standa í 2 vikur og ýmsir
staðir verða heimsóttir og keppt
við heimamenn m.a. í vina-
bænum Rovaniemi. Að sögn
þjálfara eiga þeir strákar sem
æfa vel og taka þátt í fjáröflun
möguleika á að fara þessa
keppnisferð.
Einn blíðviðrisdag fyrir skömmu rakst blaðamaður á þessar ungu hestakonur í reiðtúr.
Vinstra megin er Eria Ölversdóttir. ,,Þessi hestur heitir Stormur, fimm vetra. Ég er búin að eiga
hann í2 ár, annars á ég 3 hesta“. Hin hestakonaner Guðveig Ólafsdóttir (Stella). „Þessihestur
heitir Þekkur, en ætti kannski að vera Óþekkur. Ég á þrjá aðra hesta og mér finnst mjög gaman
að annast umþá, þjálfaþá ogýmislegt fleira“. Þœr stöllur sögðust eyða miklum tíma íhestana.
„Það er eiginlega enginn tími fyrir önnur áhugamál, en öllum tímanum með hestunum er mjög
vel varið. “
Frá Rauða
kross
deildinni í
Grindavík
Óskað er eftir tilboðum í sjúkraflutningabílinn, sem senn
verður leystur af hólmi. Þetta er Chevrolet Scotts Dale 10, ,
árg. 1979, með 350 vél og sjálfsplittuðu drifi að aftan. Mjög
lítið ekinn og í toppstandi.
Leitið uppl. og skilið tilboðum hjá Gunnlaugi Dan Ólafssyni.
Símar 8555 (vinna) og 8504 (heima).
Aðalstöðin
"T\ Bílabúð - Sími 1517
TEMA
Loft- og vökva-
hraðtengi
- allar
stærðir.
BETRI MEÐFERÐ
* AUKIN GÆÐI * AUKIN VERÐMÆTI *
VIÐ TREYSTUM BÚSETU OG
VELMEGUN MEÐ
VINNUV ÖNDUN
r
Utgerðarmenn í Grindavík