Bæjarbót - 01.02.1987, Side 5
^iq«SDT
Óháð flokkadrætti
5
Ur prentinu í kaupmennskuna, en hvert þaðan?
„Tek mér stutt frí og finn
svo eitthvað
Grmdvikmga
í litlum bæ eins og Grindavík,
þar sem fyrirfinnst ekki svo-
kölluð „pöbbastemning “ eða
blómlegt götulíf, þar sem rign-
ingin og þokan eru tíðir og lam-
andi gestir, hittist fólk gjarnan í
búðinni. Þangað kemur fólk og
verslar vörur til daglegs brúks.
Það má segja að þess konar
búðir gegni ákveðnu hlutverki í
samskiptum fólks. Viðskipta-
vinirnir eru í nánum sam-
skiptum við kaupmanninn.
Það fer því ekki fram hjá
fólki þegar Ástbjörn Egilsson í
Bragakjöri kveður verslun sína
og viðskiptavini og nýir eigend-
ur þeir Ragnar Ragnarsson og
Guðfinnur Friðjónsson mat-
sveinn taka við.
Bæjarbót ætlar ekki að láta
sitt eftir liggja að þakka Adda
góð kynni og þjónustu í gegnum
tíðina og óska honum alls hins
besta í framtíðinni. Af því tilefni
birtist hér viðtal við hann.
Hvað gerðir þú áður en þú
komst til okkar?
,,Ég var með litla hverfaversl-
un í Reykjavík í þrjú ár, en er
lærður prentari og starfaði við
það í 13 ár áður en ég fór út í
kaupmennskuna. Langaði þá til
að prófa eitthvað nýtt.“
En hvað réðiþví að þú komst
svo til Grindavíkur?
„Það eru tilviljanirnar eins og
svo oft. Ég ætlaði að kaupa
stærri verslun, til þess þurfti ég
að selja hina verslunina og íbúð-
ina mína. En maðurinn sem ég
ætlaði að kaupa af, hætti við og
ég stóð uppi, búinn að selja mitt
og vissi ekkert hvað ég átti að
gera. Þá kom Bragakjör til sög-
unnar. Við keyptum búðina ég
og Jón Sæmundsson, en leigð-
um húsnæðið. Það var svo 1.
nóvember ’76 á mánudegi sem
við opnuðum. Svo það eru rúm
tíu ár núna. Jón var í liðlega
fjögur ár og ári eftir að hann
hætti þá keypti ég húsnæðið.“
Var auðveldara að reka mat-
vöruverslun þá?
,,Já, miklu auðveldara, þá
var lögbundin álagning miklu
hærri en nú, sem engum datt í
hug að víkja frá. Þótt stór-
markaðir væru komnir til sög-
unnar voru þeir færri en nú.
Þessi háa álagning þýddi líka að
vöruúrvalið gat verið meira.“
Ég hef heyrt því fleygt að
Girndvíkingar séu frekir við-
skiptavinir, heldurðu að það sé
rétt?
„Maður þekkir alla og er í svo
nánu sambandi við alla. Það
getur verið að fólk geri sér meira
dælt við mann út af því, en
flestir eru ágætir. Þegar ég kom
hingað mætti mér gott viðmót
og ég kunni strax vel við mig.“
En verðurðu ekki sár þegar
fólk sem vanalega verslar utan-
bœjar er með óánægju, þegar
það kemur og fœr ekki það sem
það vatnar?
„Jú að sjálfsögðu, en það
þýðir ekkert að vera að hugsa
um það. Sumir viðskiptavinir
eru með þeim ósköpum gerðir
að þurfa sífellt að vera að nöldra
um eitthvað og ekkert, en þeir
eru sem betur fer mjög fáir.“
Er ekki annasamt að reka
matvöruverslun?
„Það er náttúrulega langur
vinnudagur, ég hef t.d. aldrei
ráðið útkeyrslumann. Mest
verið í því sjálfur og Arnar
gripið inn í það með mér. Það
ber öllum saman um það, sem
hafa rekið matvöruverslun að
það er hvergi í neinni kaup-
mennsku eins mikið puð. Það er
svo margt að athuga á hverjum
degi.“
Þú hefur verið ötull í félags-
lífinu!
„Já, það er nú einn sá þáttur
sem ég á örugglega eftir að
sakna. Ég hef verið í Kiwanis frá
stofnun þess, það varð 10 ára í
febrúar. Svo er það leikfélagið.
Ég lék fyrst í „Ég vil fá minn
mann“ og í „Fjalla-Eyvindi“.
Ég var ritari í UMFG og hef
verið í Golfklúbbnum. Þá er
Knattspyrnu-
deild UMFG
ræður fram-
kvæmda-
stjóra
Knattspyrnudeildin hefur
ráðið Pálma Ingólfsson íþrótta-
kennara í hlutastarf og hóf
Pálmi störf fyrir deildina í
janúar og samkvæmt heimild-
um blaðsins er ráðningartími
Pálma til 1. október í haust.
Með vaxandi starfi knattspyrnu-
deildarinnar hefur þörfin fyrir
framkvæmdastjóra aukist, en
það skólanefnd tónlistarskólans
og bókasafnsnefnd í gegnum
Sjálfstæðisfélagið. Svo er svona
ýmislegt sem til hefur fallið.“
En segðu okkur, er langt
síðan þú fórst að hugsa um að
fara til Reykjavíkur?
„Nei, það er nú ekki nema
rúmt ár síðan ég fór að hafa
orð á því við fjölskylduna að ég
yrði ekki nema svona 2-3 ár í
viðbót með Bragakjör. Þetta var
bara ,,sjens“ sem við tókum
með að kaupa Strætið sem er
fataverslun við Laugarveginn í
Reykjavík. Ella vildi frekar
spreyta sig á því. Það var í raun
ekki annað sem kom til greina
en að hætta með Bragakjör. Að
vera með heimili á tveimur
stöðum er tómt rugl. Það var
eiginlega undir vorið sem ég tók
ákvörðun um að selja búðina,
en ég held húsnæðinu til að
byrja með.“
Örlagadísirnar munu kroppa í
kringum þig eins og fleiri, veistu
hvað er framundan?
„Eins og er er ekkert sérstakt
framundan ég tek mér smá frí og
lít í kring um mig eftir einhverju
að glíma við.“
Enginn þarf að vera í vafa um
það að Addi finnur sér eitthvað
að gera. En um leið og hann í
lok þessa spjalls okkar þakkar
viðskptavinum og starfsfólki í
gegnum árin fyrir samveruna,
megum við til með að þakka
þeim þremenningum Adda,
Arnari og Agli fyrir góða við-
kynningu og óska þeim alls hins
besta. RB.
auk ýmissa tilfallandi starfa
fyrir deildina mun Pálmi þjálfa
4. flokk pilta í sumar.
Fyrir sælkera!
Pyisu-
yagninn
við
Haí'nar-
götu 13
W‘*
mm i i
i •
iV
Virka daga er opið kl. 3-11
Um helgar frá 3-?
(eitthvað fram eftir nóttu)
— Líttu við! —
Til sölu í Grindavík
• Hvassahraun 5, ca 130 ferm. einbýlishús. 3
svefnherbergi. Laus fljótlega. Skipti á íbúð í
Keflavík möguleg.
Verð: 2,800.000,-
# Heiðarhraunll, skemmtilegt 136 ferm. endarað-
hús, ásamt bílskúr og sökkli fyrir garðstofu. 4
svefnherbergi. Laus fljótlega.
Verð: 3.400.000.-
# Efstahraun 22, 136 ferm. nýlegt einbýlishús með
frágenginni lóð. Lítið áhvílandi.
Verð: 3,850.000.-
# Litluvellir 16, 60 ferm. raðhús, ekki fullklárað.
Verð: 1,720.000,-
# Leynisbraut 5. 135 ferm. einbýlishús, ásamt 90
ferm. kjallara. Skipti á íbúð á Stór-Reykja-
víkursvæðinu.
Verð: Tilboð
# Hellubraut 4. Eldra einbýlishús í ágætu ástandi,
ásamt bílskúr.
Verð: 1.400.000,-
# Gott úrval raðhúsa af ýmsum stærðum — einnig
úrval viðlagasjóðshúsa.
# Hef fjársterkan kaupanda að góðu nýlegu ein-
býlishúsi.