Bæjarbót - 01.02.1987, Page 6
6
Óháð flokkadrætti
Ritstjórnargrein:
Hvað skal
kjósa?
I komandi alþingiskosningum, þann 25. apríl
næst komandi, verða kjörnir 11 þingmenn til setu á
Alþingi sem fulltrúar fyrir Reykjaneskjördœmi. Nú
eru þingfulltrúar kjördœmisins níu talsins. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem blaðið hefur aflað, mun
láta nœrri að kjósendur í kjördæminu séu um 33
þúsund. Það þýðir að meðalfjöldi kjósenda á bak
við hvern þingmann er nú rúmlega 3100, sé miðað
við 85% kosningaþátttöku. En að afloknum kosn-
ingum í vor verða 2550 atkvœði að meðaltali á
hvern þingmann. Hið hrikalega misvœgi atkvœða
verður þannig lítillega leiðrétt, en pólítisk hrossa-
kaup og samtrygging flokkanna komu í veg fyrir að
gengið var lengra í átt til fullvœgis atkvæða okkar.
Eins og vera ber er mikill hugur íframbjóðendum
fyrir þessar kosningar og á þeim tveimur mánuðum
sem til stefnu eru má búast við miklum sviptingum.
Segja má að „nýliðinn “ á svæðinu, Steingrímur
Hermannsson, hafi hrundið baráttunni afstað með
ýtarlegu opnuviðtali í Tímanum þann 30. janúar.
Þar skaut frambjóðandinn all föstum skotum að
þingmönnum kjördœmisins og sakaði þá m.a. um
slœlega framgöngu í málefnum útgerðar og fisk-
vinnslu á Suðurnesjum, jafnframt því sem hann lýsti
þvíyfir, að fiskvinnslan á svœðinu hafi dregist aftur
úr. Þessar yfirlýsingar vöktu að vonum nokkra
athygli. Andstœðingar frambjóðandans voru ekki
lengi að draga þau sannindi fram í dagsljósið að á
tímabilinu 1980 - 1987 hafa tveir menn farið með
embœtti ráðherra sjávarútvegsmála. Þeir heita
Steingrímur Hermannsson og Halldór Ásgrímsson.
Steingrímur hefði því fullt eins getað sagt: „Það
veittist okkur framsóknarráðherrum létt verk að
hœlbíta sjávarútveginn á Suðurnesjum, því mót-
staða þingmannanna þaðan var lítil sem engin. “
Þessi rimma stjórnmálamannanna á áreiðanlega
eftir að harðna að miklum mun.
Afþeim 11 þingsœtum sem kjörið verður til í vor
œtla framsóknarmenn sér tvo, alþýðubandalags-
menn tvo, Alþýðuflokkurinn stefnir að fjórum,
Kvennalistinn tíklega að einu, sömuleiðis Bandalap
jafnaðarmanna. Þessi markmið flokkanna gera
það sameiginlega að verkum að Sjálfstœðismenn
verða að gera sér að góðu að fá aðeins einn þing-
mann! Heldur er hœpið að þeirgeri sér það að góðu,
þar sem þeir hafa nú þegar fjóra og ætla sér áreiðan-
lega að bæta sinn hag í kjördœminu, eins og reyndar
allir hinir. Það stefnir því í hörku slag og víst er að
augu landsmanna munu ekki hvað síst beinast að
baráttunni í Reykjaneskjördœmi á komandi mánuð-
Björn Birgisson.
um.
er nú líka hjá FLAKKARANUM!
Pottþétt úrval
stórgóðra sumarferða á einum stað!
Líttu við - heitt á könnunni!
FLAKKARINN - SÍMI 8060
Silfur hafsins:
Heimildamynd um síldina
—sýnd í Festi 3. mars. Aðgangur ókeypis
Þann 3. mars n.k. kl. 21
verður heimildakvikmyndin
Silfur hafsins sýnd í Festi. Fisk-
vinnslufólk, síldarvinnslufólk
og sjómenn eru sérstaklega
boðin velkomin og reyndar bæj-
arbúar allir. Verði húsfyllir, er
ráðgert að sýna myndina strax
aftur sama kvöldið.
Myndin er klukkustundar-
löng og er gerð af fyrirtækinu
Lifandi myndir hf. sem gert
hefur fjölda kynningar- og
heimildamynda og vinnur nú
m.a. að gerð einnar slíkrar fyrir
Landsamband íslenskra Útvegs-
manna.
SILFUR HAFSINS:
Heimildamyndin SILFUR
HAFSINS fjallar um saltsíldar-
iðnað íslendinga bæði fyrr og
nú. í upphafi myndarinnar er
gerð örstutt grein fyrir áhrifum
síldarinnar á sögu Evrópu frá
miðöldum til loka síðustu aldar
og gildi síldveiða og síldarsölt-
unar fyrir íslendinga eftir að
byrjað var að salta síld hér á
landi fyrir réttum 100 árum.
Kjölfesta myndarinnar er þó í
nútímanum, þar sem lýst er einu
starfsári í þessari atvinnugrein.
Starfsemi Síldarútvegsnefndar
og félaga síldarsaltenda er
kynnt, fylgst er með undirbún-
ingi samninga og gangi samn-
ingaviðræðna. Undirbúningi í
sjávarplássunum fyrir komu
síldarinnar eru gerð skil,
markaðs- og sölumálin kynnt og
fylgst er með veiðum, söltun og
útskipun.
Inn í þessa frásögn er fléttað
sögulegum köflum, þar sem
m.a. er fjallað um ástandið í
síldarsölumálum á fyrstu ára-
tugum aldarinnar, skipulagn-
ingu atvinnugreinarinnar og
stofnun Síldarútvegsnefndar.
Einnig er fjallað um mikilvægi
síldarútvegsins fyrir þjóðarbúið
á kreppuárunum 1930-40, síld-
arleysissumrin eftir heims-
styrjöldina síðari, nýjar veiðiað-
ferðir, sem leiddu til síldarævin-
týrisins á sjöunda áratugnum,
hrun norsk-íslenska síldar-
stofnsins kringum 1968 og upp-
byggingu saltsíldariðnaðarins
eftir síldveiðibannið 1972-74.
Aðdragandi og gerð
myndarinnar:
Árið 1979, þegar minnst var
aldarfjórðungsafmælis Félags
sildarsaltenda á Suður- og Vest-
urlandi, kom fram sú hugmynd
að láta gera kvikmynd um salt-
síldariðnað íslendinga. Hug-
mynd þessi fékk góðar undir-
tektir og varð að samkomulagi
við Félag síldarsaltenda á Norð-
ur- og Austurlandi að ráðast í
gerð slíkrar kvikmyndar. Undir-
búningsvinna vegna handrits-
gerðar hófst í nóvember árið
1979. Veturinn 1980-81 var
lokið vinnu við fyrstu útgáfu
kvikmyndahandritsins. Hand-
ritið tók síðan talsverðum breyt-
ingum á framleiðslutímanum
vegna þess hve efnið er yfirgrips-
mikið og vandasamt var að
koma því fyrir í einni kvikmynd,
sem væri innan við klukku-
stundar löng. Af þessum sökum
var t.d. sleppt að geta um per-
sónur, sem koma við sögu bæði
í nútíð og fortíð og engin viðtöl
eru í myndinni.
Mikil vinna fór í að leita að
gömlum kvikmyndum og ljós-
myndum. Við þessa leit fundust
margar merkilegar kvikmyndir
sem legið höfðu í gleymsku
bæði hér heima og erlendis og
koma nú sumar hverjar fyrir
sjónir almennings í fyrsta sinn í
SILFRI HAFSINS.
Gerð myndarinnar stóð síðan
yfir með hléum fram á haustið
1986. Kvikmyndataka hófst á
síldarvertíðinni 1981-82 en
meginhluti myndarinnar var
tekinn á árunum 1984-85.
Helstu upptökustaðir voru
Vopnafjörður, Seyðisfjörður,
Eskifjörður, Stöðvarfjörður,
Djúpivogur, Hornafjörður,
Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn,
Grindavík, Keflavík og Reykja-
vík.
Félög síldarsaltenda:
Árið 1954 var stofnað Félag
síldarsaltenda á Suður- og Vest-
urlandi í samráði við skrifstofu
Síldarútvegsnefndar, sem þá
hafði nýlega tekið til starfa í
Reykjavík (1950). Jón Árnason,
útgerðarmaður á Akranesi, var
fyrsti formaður félagsins.
Tveimur árum síðar var stofnað
sams konar félag síldarsaltenda
á Norður- og Austurlandi og var
fyrsti formaður þess Sveinn
Benediktsson, framkvæmda-
stjóri. Þessi félög gegna því hlut-
verki að vera hagsmunasamtök
síldarsaltenda. Verksvið þeirra
er m.a. að standa að kjarasamn-
ingum og verðlagningu fersk-
síldaMi^ölUma^^^^^^^^
H sílfurb|I
IhafsinsI
• •_
VOR
SJOMANNA
STOFA
SÍMI 8570
NOTALEGUR STAÐUR
FYRIR ALLA FJÖLSKYLD UNA
Við bjóðurw