Bæjarbót - 01.02.1987, Síða 7
Óháð flokkadrætti
7
Fjárhagsáætlun 1987:
Átján milljónir í göturnar
— minnihlutinn með sameiginlegar tillögur
í fjárhagsáætlun meirihluta
bæjarstjórnarinnar er gert ráð
fyrir 106 milljóna króna tekjum.
Stærstu tekjuliðirnir eru þessir:
Útsvör 58 milljónir, aðstöðu-
gjöld 16 milljónir, fasteigna-
skattar 12,3 milljónir, vextir 7,5
milljónir og framlag úr Jöfn-
unarsjóði 6,2 milljónir.
Þessum 106milljónum verður
svo deilt á margvísleg verkefni.
Af þeim má nefna nokkur.
Stjórn bæjarmálanna mun
kosta rúmar 10 milljónir. Alls
munu 18 milljónir fara til félags-
mála, þar af 8,3 í ýmis lög-
bundin framlög og 4 til leikskól-
ans. Til fræðslumála er gert ráð
fyrir tæpum 24 milljónum. Þar
eru þrír þættir stærstir. Grunn-
skólinn (m.a. nýbygging) 17,1
milljón, Tónlistarskólinn með
2,2 og Fjölbrautaskóli Suður-
nesja með tæpar 3 milljónir.
Vaxtagreiðslur verða 4,4
milljónir, en vaxtatekjur um
7,5. í áætluninni er gert ráð fyrir
2,2 milljóna framlagi til reksturs
slökkviliðsins, auk þess sem gert
er ráð fyrir 3ja milljón króna
láni frá Brunabót vegna nýrrar
slökkvistöðvar. Æskulýðs og
iþróttamál munu alls fá 13,8
milljónir í sinn hlut. Þar vega
þyngst 4 milljónir til íþróttahúss
(þar af skuldar ríkið okkur
bróðurpartinn), rúmar 3 mill-
jónir til íþróttavallanna og
styrkir til íþróttafélaganna verða
um 2 milljónir. Hreinlætismál,
sorphirðing og brennsla, gatna-
hreinsun og fleira fá alls 5,7
milljónir.
Utan við fjárhagsáætlunina
sjálfa er svo gert ráð fyrir 18
milljónum króna til gatna-
gerðar. Alls er ráðgert að taka
15 milljónir að láni til gatna-
gerðarinnar og 25% álag á fast-
eignaskattinn gefur bænum um
3 milljónir í tekjur.
Gert er ráð fyrir endurbótum
við gömlu sundlaugina. í þær
fer 1 milljón. Lagnir verða end-
urnýjaðar og settir niður heitir
pottar.
Undir liðnum húsakaup eru
ætlaðar 1,5 milljónir til Festar
til viðhalds og endurnýjunar,
auk þess sem í Festi fer 1 milljón
til niðurgreiðslu skuldahala.
Minnihlutinn, tveir fulltrúar
Alþýðuflokksins og fulltrúi Al-
þýðubandalagsins, lagði fram 5
tillögur við þessa fyrri umræðu.
Minnihlutinn leggur til að liðurinn
ný lán hækki um 5 milljónir og
verði samtals 11,6 milljónir.
Heildarskuldir verði þannig ekki
lækkaðar eins og fjárhagsáætl-
unin gerir ráð fyrir. Minni-
hlutinn leggur til að þessum 5
milljónum verði varið í: 1. Tvær
milljónir vegna nýbyggingar
slökkvistöðvar á árinu, 1,5
milljónir fari til opinna svæða
og fegrunarmála, 500 þúsund
komi sem framlag á móti 200
þús. sem Heilsugæslustöðin
fékk á fjárlögum. Loksins legg-
ur minnihlutinn til að 1 milljón
verði varið til skipulags og
atvinnumála, ekki síst með tilliti
til framtíðaruppbyggingar
Svartsengiss væðisins.
Síðari umræðan um áætlun-
ina og tillögur minnihlutans fer
fram 12 mars n.k. í litla salnum í
Festi.
Frœðslumálin fá tæpar 24 milljónir. Þar af fara rúmar 17 til reksturs
og nýbyggingar Grunnskólans.
Félagsheimilinu Festi eru alls ætlaðar 2,5 milljónir til endurbóta og
niðurgreiðslu skuldahala.
I tilefni
Sprengidagsins:
Úrvals saltkjöt
rófur
og
baunir!
Það er enginn Sprengidagur
án cqltkinkins frá okkur!
FERÐASKRIFSTOFAN
POLARtS
A
POLARIS
w
Ferðirnar okkar eru
freistandi valkostur!
• Viö bjóðum pjakkaferóir! Frítt fyrir 1
barn 4/7 og 14/9 - Barnafararstjóri
veröurí öllum ferðum til MALLORCA
• Við bjóðum góðan barnaafslátt. 0 - 2
ára greiöa 4000 krónur. 3-11 fá &
16.0001 afslátt og 12 - 15 ára fá í
10.0001 afslátt!
• Viö bjóöum sjálfa ALCUDIA strönd-
ina - þá langbestu á MALLORCA
-bæói að mati heimamanna og ferða■
langanna!
• Og við bjóðum unga fólkinu enda-
laust fjörið I sólinni og næturlífinu á
IBIZA!
Það verður ódýrt og gott að ferðast í
sumar. — Dragiö því ekki aö panta!
Myndband og bæklingur til reióu.
Mallorca 8/5-5/10 22/6-13/7 3 vikur 23/5-1/6-13/6 25/7-03/8
Alcudia ströndin 3 vikur 01/5-26/9 1 mánuður 04/7-5/9-14/9 3 vikur 15/8-24/8 3 vikur
CIUDAD BLANCA 4 í íbúð 36.800 39.300 41.800 45.300
3 i íbúð 40.800 43.700 46.200 49.700
2 í íbúð 45.700 48.200 50.700 54.200
3 í stúdíó 37.200 39.700 42.200 45.700
2 í stúdíó 41.300 43.800 46.300 49.800
1 í stúdíó 56.100 58.600 61.100 64.600
DEL SOL 5 í íbúð með 2 svefnherbergjum 28.800 31.300 33.800 37.300
4 í íbúð með 2 svefnherbergjum 30.600 33.100 35.600 39.100
3 í íbúð með 2 svefnherbergjum 33.700 36.200 38.700 42.200
4 í íbúð með 1 svefnherbergi 29.100 31.600 34.100 37.600
3 í íbúð með 1 svefnherbergi 31.600 34.100 36.600 40.100
2 í íbúð með 1 svefnherbergi 33.200 35.700 38.200 41.700
1 í íbúð með 1 svefnherbergi 42.800 45.300 47.800 51.300
HOTEL CONDESA 2 í herbergi með Vz fæði 38.600 41.100 43.600 47.100
1 í herbergi með Vfe fæði 40.100 42.600 45.100 48.600
Ibiza - Bossa ströndin 8/5-6/7-7/9 3 vikur 20/6 17 dagar 30/5-27/7-17/8 3 vikur
MIGJORN 5 í íbúð með 2 svefnherbergjum 32.800 28.800 35.800
4 í íbúð með 2 svefnherbergjum 34.700 30.700 37.700
3 í íbúð með 2 svefnherbergjum 38.700 34.700 41.700
2 í íbúð með 2 svefnherbergjum 42.900 38.700 45.900
JET BOSSA 5 í íbúð með 2 svefnherbergjum 34.500 30.500 37.500
4 í íbúð með 2 svefnherbergjum 36.400 32.400 39.400
3 í íbúð með 2 svefnherbergjum 40.400 36.400 43.400
2 í íbúð með 2 svefnherbergjum 44.700 40.700 47.700
TUR PALAS 4 í íbúð með 1 svefnherbergi 35.200 31.200 38.200
3 í íbúð með 1 svefnherbergi 37.700 33.700 40.700
2 í íbúð með 1 svefnherbergi 42.400 38.400 45.400
1 í íbúð með 1 svefnherbergi 52.800 48.400 55.800
FLAKKARINN ö 8060