Bæjarbót - 01.02.1987, Page 8
$
Óháð flokkadrætti
Iðnþróunarfélagið:
Orðið öflugt ráðgjafafélag
Starfsemi
Iðnþróunarfélags
Suðurnesja
Iðnþróunarfélag Suðurnesja
er um þessar mundir orðið öfl-
ugt ráðgjafafélag með ráðgjöf
fyrir fyrirtæki, einstaklinga er
huga að atvinnurekstri og sveit-
arfélög. Ráðgjöf félagsins er á
sviðum fyrirtækjareksturs þ.e.:
Fjármögnun; Stjórnun; Fram-
leiðsluskipulagning; Stefnu-
mörkun; Áætlanagerð og fl..
Gagnvart sveitarfélögum
beinast verkefnin einkum að
könnunum á nýjum atvinnu-
möguleikum, atvinnuþátttöku,
iðngörðum og verkefninu ,,Þró-
unarverkefni fyrir Suðurnes.“
Iðnþróunarfélagið býður upp
á námskeið „Stofnun og rekstur
fyrirtækja“ fyrir þá er hafa hug-
myndir og vilja athuga hvort
markaður er fyrir framleiðslu-
vörur eða þjónustu, gera
áætlanagerðir, og skipuleggja
og undirbúa stofnun fyrirtækis.
Níundubekkir grunnskólanna í
Keflavík og Njarðvík hafa
gengið í gegnum þessi námskeið
auk fjölmargra athafnamanna á
Suðurnesjum. Námskeiðið
„Framfarasókn fyrirtækja á
Suðurnesjum“ er fyrirhugað í
byrjun mars og einnig er fyrir-
hugað námskeiðið „Stefnu-
mörkun fyrirtækja“ síðar á
árinu.
Gagnabanki
Nú er unnið að gerð gagna-
banka sem hægt er að leita í, sé
áhugi fyrir fjölgun framleiðslu-
Litlafell með
67°7o af
áætlun
Tilboði Litlafells sf. í undir-
byggingu Staðarsunds og
Vörðusunds hefur verið tekið.
Tilboðsupphæðin var 364.500
kr. sem er 67% af kostnaðar-
áætlun. Auk Litlafells buðu
Sandfell og Sigurjón Jónsson í
verkið.
tegunda, eða ef leita skal hug-
mynda um framleiðslu eða
viðskipti sem leitt geta til stofn-
unar nýrra fyrirtækja. Félagið
getur þá aðstoðað við nauðsyn-
legan undirbúning s.s. við áætl-
anagerð, umsóknir í sjóðakerfið
og skipulagningu framleiðsl-
unnar, kaup á vélum og hús-
næðis, ráðningu starfsfólks og
þjálfun og stjórnun fyrirtækis-
ins.
Nú þegar liggja fyrir ýmsar
framleiðsluhugmyndir og geta
áhugaaðilar snúið sér til skrif-
stofu félagsins.
Hækkað
leigugjald
Forstöðumaður íþróttahúss-
ins, Guðjón Sigurðsson, hefur
gert að tillögu sinni að hækka
gjald fyrir hvern tíma í íþrótta-
húsinu um 25% og kostar þá
hver tími 1000 krónur. Auk þess
þarf að greiða 50% álag þegar
leikir og turneringar fara fram.
Stór samn-
ingur um
íþróttavöru-
kaup
Knattspyrnudeildin hefur
nýlega gert stóran samning við
umboðsaðila ADIDAS á
íslandi, Björgvin Schram.
Deildin kaupir 40 pör af fót-
boltaskóm, töskur, einkennis-
klæðnað á meistaraflokkinn,
þjálfara og stjórn deildarinnar.
Að sögn Jónasar Þórhallssonar
er þetta mjög hagstæður samn-
ingur fyrir deildina, en leik-
menn munu greiða nokkurn
hluta kostnaðarins.
Viðtalstími félagsins
Símanúmer félagsins er 4027
en hægt er að koma skilaboðum
til ráðgjafa félagsins í gegnum
símsvara. Einnig er hægt að
leggja inn skilaboð til ráðgjafa
félagsins í síma 3788. Viðtals-
tími ráðgjafa félagsins er frá kl.
13-16 alla virka daga. Það fólk
sem vill taka þátt í uppbyggingu
og eflingu atvinnulífs sjálfu sér
og öðru fólki til hagsbóta, hafi
samband hið fyrsta og láti skrá
sig.
(Úr fréttatilkynningu)
Þakka
stuðninginn
Unglingalandsliðsmennirnir í
körfuknattleik, þeir Steinþór
Helgason og Rúnar Árnason
báðu blaðið að koma á fram-
færi kærum þökkum til allra
þeirra sem styrktu þá vegna
keppnisferðar til Skotlands, en
þar dvelur liðið nú við æfingar
og keppni.
Grindvíking-
tíðir gestir í
Svæðis-
útvarpinu
Þeir útvarpshlustendur sem
gaman hafa af því að fá fréttir af
Suðurnesjum, t.d. héðan úr
Grindavík og heyra viðtöl við
fólk héðan, ættu að hafa tækin
sín á FM 90,1. Þá er Rás 2 á,
nema milli 17.30 - 18.30, en á
þeim tíma er einmitt Svæðisút-
varpið á. Ef ekkert er á Rás 2 né
í Svæðisútvarpinu er Rás 1 í
loftinu á FM 90,1.
G/o GAMLA MYNDIN cxs
Þessa mynd tók Guðbrandur Eiríksson veturinn 1952. Lengst til vinstri er Borgargarður, þá
Prestshús og Brimnes. Næst okkur, hægra megin á myndinni er Tröð, einnig sést í Garðshorn og
fjær grillir í Karlsskála. Óhemjulega mikill snjór var í Grindavík þegar myndin var tekin og
kolófært um bæinn fyrir gangandi sem akandi.
TRÉ-X
byggingarvörur
Idavöllum 7, sími 4700
Nú bjóöum viö eftiifarandi
vörui
□ Eldhús - og bað-
innréttingar
□ Parket
□ Innihurdir
□ Vegg - og loft-
klœðningar
□ Milliveggi
□ Útihurðir
□ Sólbekki
□ Spónaplötur
□ Hillueíni
□ Hillubera
□ Spónlagöar plötur
□ Einangrun
□ Fotaskópa
■i □ Hurðaskrár
og húna
□ D-line Hurðahúna
og baðáhöld fyrir
vandláta
Viö erum sveigjanlegir í samning-
um og bjóðum allt aö 11 mánaöa
greiðslukjör.
Húsbyggjendum bjóöum viö sér-