Bæjarbót - 01.02.1987, Blaðsíða 12
# Spakmæli mánaðarins: ”Þ;/ndÞ"f^l“.hænleika ri""a 8a"a "já Mrum’Þess 'es"a eru #
Bæjarbót er fyrst og fremst blað Grindvíkinga. Útgefandi er Flakkarinn — Bæjarbót. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Björn Birgisson. Afgreiðsla, ritstjórn, auglýsinga- og efnismóttaka er að Víkurbraut 19 og sími blaðsins er 8060. Bæjar- bót kemur út mánaðarlega, í lok hvers mánaðar. Setning: Stapaprent. Prentun: Prentiðn Hafnarfirði. Blaðinu er dreift í hvert hús í Grindavík og í stórverslanir í Keflavík og Njarðvík. Einnig er það sent til áskrifenda, en íbúar á Suðurnesjum og um allt land geta fengið blaðið í áskrift. Áskriftarsími er 8060. Febrúar 1987 6. árgangur 2. tölublað v ^ Óháð flokkadrætti
Skúmur GK á strandstað: — Við sjópróf kom fram að báturinn sló tvisvar niður hælnum í bullandi kvikum og út
undir snúningnum, yst út í ósnum, var stýrið orðið fast í stjór. Vindur var á vestsuðvestan og þrátt fyrir að Birgir
Smári skipstjóri reyndi að halda merkjum, með því að bakka og taka áfram á víxl, hrakti skipið undan veðri til
austurs. Þegar sýnt þótti að hverju stefndi var ankerið fellt, en keðjan rykktist sundur milli 1. og 2. liðar, þegar keðju-
lásinn brotnaði - og skipið rak upp.
Þau skipa 5 efstu sceti listans í vor. Frá vinstri: Olafur Ragnar
Grímsson í 2. sœti, Ásdís Skúladóttir í 3. sæti, Geir Gunnarsson í 1.
sœti, Bjargey Einarsdóttir í 4. sæti og Jóhanna Axeísdóttir sem
skipar 5. sætið. Myndin var tekin á fjölmennri G-lista hátíð í Festi.
Geir Gunnarsson alþingismaður:
„Stefnum markvisst
að tveimur mönnum“
r
— tel að Olafur Ragnar verði góður
baráttumaður fyrir kjördæmið
„Við stefnum markvisst að
því að ná tveimur mönnum hér í
kjördæminu“ sagði Geir Gunn-
arsson þingmaður fyrir Alþýðu-
bandalagið í stuttu spjalli við
blaðið nýlega.
„Til þess þurfum við rúm
16% atkvæða og miðað við úr-
slit síðustu sveitarstjórnarkosn-
inga er þetta raunhæft mark-
mið. Þar fengum við alls 5100
atkvæði á okkar G-listum, en á
nokkrum smærri stöðunum var
enginn sér G- listi og því mun
atkvæðatalan hækka í kosning-
unum í vor. Við teljum að kosn-
ingarnar snúist um að við fáum
hér tvo menn kjörna. Við höfð-
um tvo menn inni til 1979 og
oft stóð það tæpt. En nú verður
þingmönnunum fyrir Reykja-
nes fjölgað í 11 og þar af ætlum
við okkur tvo. Við teljum að
Ólafur Ragnar Grímsson verði
mjög góður baráttumaður fyrir
þetta kjördæmi.“
Er eitthvað hæft í þeim orð-
rómi að þú hyggist hætta á
miðju kjörtímabilinu eins og
Kvennalistakonurnar?
„Nei það hefur aldrei verið
nefnt einu orði, hvorki af minni
hálfu né nokkurra annara í
okkar herbúðum. Þetta er algjör
firra.“
Karl Steinar:
„Stefnum afl fjórum
þingmönnum
Geir Gunnarsson alþingismaður (t.v.) og Ólafur Ragnar Grímsson.
,,Kosningarnar hér snúast um það hvort við fáum tvo menn“segir
Geir Gunnarsson.
Hvaða væntingar hafa
Alþýðflokksmenn í sambandi
við Alþingiskosningarnar í
apríl. Því svarar Karl Steinar
Guðnason, 2. maður á lista
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
„Við stefnum að því að fá
fjóra þingmenn og jafnframt að
verða stærsti flokkurinn í kjör-
dæminu. Við erum nú þegar
næst stærsti flokkurinn, höfum
verið það lengi og teljum okkur
nú hafa alla burði til þess að
berjast fyrir því að verða sterk-
asta stjórnmálaaflið í landsmál-
um, líkt og við höfum orðið
langsterkastir á sviði bæjarmála
hér í kjördæminu" sagði Karl
Steinar Guðnason.