Bæjarbót - 01.07.1987, Blaðsíða 1
Oháð flokkadrætti
6. árgangur — Júní/Júlí — 6. tölublað
Göngum í Kaupfélagið og vinnum
saman, því Samvinnu hreyfingin
sýnir mátt hinna mörgu.
Kaupfélag Suðurnesja
Auða svœðið milli Víkurbrautar og Túngötu:
Byggír Staðarkjör gegnt Staðarkjöri?
—eigendur hafa látið teikna frumdrög til skoðunar og skýringar
Eftir að „græni skúrinn"
hvarf af svæðinu milli Víkur-
brautar og Túngölu hefur skap-
ast þar rými fyrir nýbyggingu,
eina eða fleiri. Hús Kaupfélags-
ins, sem þar er, er bráöabirgða-
hús, sem ekki mun standa þar
lengi.
Ragnar Ragnarsson hefur í
tvígang sótt um þessar 4 lóðir í
þeim tilgangi að reisa þar mynd-
arlegt verslunarhús undir starf-
semi Staðarkjörs, en jafn hliða
yrði þar einhver aðstaða fyrir
aðra þjónustu. í bæði skiptin
hefur umsóknum Ragnars verið
vísað til Skipuiags ríkisins til
umsagnar.
Blaðinu er kunnugt um að nú
hefur Sigurður Thoroddsen,
starfsmaður Skipulagsins, gert
uppdrátt að nefndu húsi á svæð-
inu gegnt Staðarkjöri að beiðni
þeirra Staðarkjörsmanna. Þar
er gert ráð fyrir rúmlega 700 fer-
metra húsi, ásamt 40-50 bíla-
stæðum en nú eru aðeins 10 bíla-
stæði framan við Staðarkjör.
Að sögn Ragnars Ragnars- ,,Það veltur einkum á tvennu. hvort fjármagn fæst til fram-
sonar er alls óvíst hver fram- Annars vegar afstöðu bæjar- kvæmda sem þessara á viðráð-
vinda málsins verður. yfirvalda og svo auðvitað á því anlegum kjörum.“
\
Frwndrög að nýja verslunarhúsinu, gerð til kynningar og skýringar. Bœjaryfirvöld hafa vísað
umsóknum Staðarkjörs um þetta svœði í tvígang til Skipulags ríkisins.
AífTrfrl Trtrtv.
M n
. m n Pf m
Frá sjávarsíðunni
Að sögn þeirra á Hafnarvigtinni er þar allt með kyrrum
kjörum — eiginlega alveg steindautt tímabil. Þó slæðist einn
og einn bátur inn, en á þessum árstíma er líklega minnstur
hraði í athafnalífinu við sjávarsíðuna.
HUMAR
Alls hafa 14 bátar landað hér humri. Þeim gekk vel að klára
kvótana sína og að sögn sjómanna hefur humarvertíðin
gengið vel, með albesta móti, ekki síst í vertíðarbyrjun. í júní
einum komu á land hér rúm 70 tonn af krabba.
RÆKJA
7 heimabátar hafa verið á Eldeyjar svæðinu og landa þeir
rækjunni til vinnslu hér heima. Harpa, Grindvíkingur og
Hrafn II frysta rækjuna um borð, en aðrir rækjubátar héðan
leggja aflann upp fyrir vestan og norðan og er einhverjum
hluta hans ekið hingaö til vinnslu.
ANNAÐ
Skarfur er kominn á síldveiðar í tilraunaskyni, síld sem
nota á í fóður. Gunnar Sveinsson er á snurvoð og landar hér.
Nokkrir bátar eru komnir á fiskitroll, aðallega humarbátar,
sem lokið hafa kvótanum sínum. Handfærabátar hafa aflaö í
meðallagi vel, en 10 bátar stunda þær veiðar.
Heilsugæslan - Gervihnatta-
hvar verður efni?
hún? # bls. 6 • Baksíða
Kínaferð
# bls. 2
Uppgangur í
golfinu
# bls. 3
Fáir kennarar
# bls. 4
Aukin vellíðan
í
bls. 5
í vinnunni
Slæmt
samkomulag
• bls. 7
Júlínótt
bls. 8
Fótboltafréttir
# bls. 9
Af vettvangi
bæjarmála
# bls. 10
Stutt í opnun
# bls. 11
Hér siglir Albert GK 31 inn í Grindavíkurhöfn eftir gagngerar endurbætur og breytingar
sem gerðar voru í Newcastle í Bretlandi. Skipið var lengt, skutnum breytt, sett var peru-
stefni, íbúðir og brú endurnýjuð, svo eitthvað sé nefnt.