Bæjarbót - 01.09.1987, Síða 1
Óháð flokkadrætti
6. árgangur — September 1987 — 7. tölublað
Göngum í Kaupfélagið og vinnum
saman, því Samvinnuhreyfingin
sýnir mátt hinna mörgu.
Kaupfélag Suðurnesja
Hvar vilja bœjarbúar byggja Heilsugœslustöð?:
Heilsugæslimefnd Grindavíkur vill
sérhannaða stöð á jarðhæð — telur hlut-
deild Grindvíkinga í 20 milljóna stöð aðeins vera 450 þúsund krónur
Verður Heilsugœslustöð byggð hér á 2. hœð eða verður reist sérhannað hús frá grunni?
Eitt stærsta mál Grindvíkinga um þessar mundir
er væntanleg bygging heilsugæslustöðvar. Tvö sjón-
armið eru einkum uppi. Að byggja á 2. hæð Versl-
unarmiðstöðvarinnar og að byggja sér hannaða stöð
frá grunni á jarðhæð. I síðasta tbl. Bæjarbótar var-
aði Kristmundur Herbertsson við fyrri kostinum og
taldi hann fráleitan. Blaðinu er kunnugt um að þar
mælti hann fyrir munn margra bæjarbúa. Heilsu-
gæslunefnd Grindavíkur hefur að sjálfsögðu tekið
málið til umfjöllunar og hér á eftir birtist greinar-
gerð hennar. Nefndin hafnar fyrri kostinum og vill
byggja frá grunni. Undir það álit taka heilsugæslu-
læknir og hjúkrunarforstjóri hér í Grindavík.
Nefndarálit Heilsugæslunefndar
Grindavíkur varðandi nýbyggingu
heilsugæslustöðvar í Grindavík
Nefndinni hefur nú borist til-
laga um nýbyggingu heilsu-
gæslustöðvar á annari hæð að
Víkurbraut 62. Nefndin hefur
fjallað ítarlega um tillögu þessa.
Einnig hefur hún kannað aðra
möguleika á byggingu heilsu-
gæslustöðvar.
Nefndin telur að um tvo val-
kosti sé að ræða.
A. Bygging heilsugæslustöðvar
frá grunni á jarðhæð.
B. Bygging heilsugæslustöðvar á
annari hæð að Víkurbraut 62.
Nefndin er þeirrar skoðunar
að ítarleg umræða þurfi að fara
fram í bæjarstjórn um báða
þessa valkosti, þar sem kostir og
gallar beggja séu ræddir. Einnig
að bæjarstjórn kynni málið ítar-
lega fyrir bæjarbúum.
Niðurstaða nefndarinnar er
sú eftir ítarlega umfjöllun að
fyrri valkosturinn henti Grind-
víkingum betur og byggð verði
heilsugæslustöð, í aðalatriðum
eftir svokölluðum Vopnafjarð-
arteikninum.
Heilsugæslunefnd Grindavík-
ur lítur svo á að hlutverk hennar
sé að gera tillögur til bæjar-
stjórnar um framtíðarskipan
heilsugæslumála í Grindavík.
Því harmar nefndin að ekki
skuli hafa verið gert ráð fyrir
samráði og samvinnu bygg-
ingarnefndar H.S. í Grindavík
og Heilsugæslunefndar Grinda-
víkur.
Um rökstuðning nefndar-
innar vísast til meðfylgjandi
greinargerðar.
Greinargerð:
Eftir að Heilsugæslustöð
Grindavíkur hóf störf kynnti
hún sér rekstur og aðstöðu
heilsugæslustöðva í Hveragerði,
Þorlákshöfn, Hellu og Hvols-
velli. í viðtölum við lækna og
starfsfólk þessara stöðva kom í
ljós að þar sem heilsugæslustöð
hafði verið byggð í húsnæði þar
sem ekki hafði verið gert ráð
fyrir slíkri starfsemi í upphafi,
varð aðstaða óhentug og hús-
næðið mun dýrara en ella,
vegna mikilla breytinga sem
gera þarf á slíku húsnæði. Á
Hvolsvelli var nýtt húsnæði sem
byggt var sérstaklega sem heilsu-
gæslustöð á jarðhæð og var það
eina húsnæðið sem féll vel að
starfsemi heilsugæslustöðva.
Nefndin átti ítarlegar viðræð-
ur við lækni og starfsfólk
Heilsugæslustöðvar Þorláks-
hafnar. Heilsugæslustöð Þor-
lákshafnar fluttist í nýtt bráða-
birgða húsnæði á annari hæð.
Það var samdóma álit læknis og
starfsfólks þar að húsnæði á
annari hæð væri afar óhentugt
fyrir starfsemi heilsugæslu-
stöðva. Einnig kom fram í við-
ræðum við formann Heilsu-
gæslunefndar Þorlákshafnar að
ákveðið væri að byggja nýja
heilsugæslustöð á jarðhæð, eftir
svo nefndri Vopnafjarðarteikn-
ingu.
Hann kvað menn frá þeim
hafa farið skoðunarferð um
landið og kynnt sér rekstur og
byggingar heilsugæslustöðva.
Hann kvað niðurstöðu þeirrar
ferðar hafa verið að bygging
heilsugæslustöðvar eftir Vopna-
fjarðarteikningunni væri hag-
kvæmust þar sem bygging þessi
væri ódýrust í byggingu og mjög
hagkvæm að öllu innra skipu-
lagi fyrir starfsemi heilsugæslu-
stöðva.
Nefndin hefur skoðað þann
valkost að byggja heilsugæslu-
stöð á annari hæð að Víkur-
braut 62. Nefndin er sammála
um að valkostur þessi sé frekar
óheppilegur.
A. Þar sem húsnæði þetta er
ekki teiknað sérstaklega sem
heilsugæslustöð má gera ráð
fyrir að það verði mun dýrara í
byggingu en húsnæði sem
hannað er sérstaklega sem
heilsugæslustöð og byggt frá
grunni á jarðhæð.
C. Nefndin hefur fengið þær
upplýsingar hjá iðnaðarmönn-
um, sem skoðað hafa teikningar
af húsnæðinu að Víkurbraut 62,
að umtalsverðra breytinga sé
þörf á skolp og vatnslögnum
hússins ef heilsugæsla á að rísa
þar. Og reikna megi með að slík-
ar breytingar séu mjög kostnað-
arsamar. Sem dæmi nefna menn
þessir að reikna megi með að
rífa þurfi niður úr nær öllum
loftum neðri hæðar hússins þar
sem heilsugæslan á að vera.
D. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem nefndin hefur
um fyrirhugað húsnæði að Vík-
urbraut 62 verður það ein helsta
þjónustumiðstöð bæjarins. Þar
sem þar verða verslanir og banki
á neðri hæð og heilsugæsla,
bæjarskrifstofur og bókasafn á
efri.hæð. Við slíka, þjónustu-
miðstöð verður væntanlega
mikil umferð bifreiða og gang-
andi fólks. Reikna má því með
að erfitt verði að koma sjúkra-
bifreiðaakstri að slíkri þjónustu-
miðstöð án þess að af því hljót-
ist ekki stór hætta fyrir vegfar-
endur.
Sjá framhald
á blaðsíðu 2.
Heitur pottur
• bls. 2
Knattspyrna
• bls. 3
Heilsugæslu-
bygging
• bls. 4
Fjarskipta-
markaður
• bls. 5
20% sóknar-
minnkun
• bls. 6
„Góð byrjun“
• bls. 7
Bæjarbót
í Glasgow
• bls. $
Sumarvinna
barna
• bls. 9
Bæjarmálin
• bls. 10
Allt í ólestri?
• bls. 11
Ekkert verð-
jöfnunargjald!
• bls. 12
Sjö milljóna
hækkun
• bls. 13
Matarhornið
• bls. 14
Frá Penistone
• bls. 15