Bæjarbót - 01.09.1987, Blaðsíða 6
6 Bæjarbót, óháð fréttablað
Ýsa
Árið 1986 var ýsuaflinn tæp
50 þús. tonn og er gert ráð fyrir
að aflinn árið 1987 verði svipað-
ur. Veiðistofninn þ.e. fjögurra
ára og eldri ýsa er nú áætlaður
175 þús. tonn og hrygningar-
stofninn rúm 105 þús. tonn.
Þetta eru svipaðar niðurstöður
og fengust við síðustu úttekt á
ástandi ýsustofnsins árið 1986.
Mat á árgangastærð fjögurra
ára ýsu og eldri hefur þannig
breyst lítið, en öðru máli gegnir
um árganginn frá 1985. Sá ár-
gangur hefur nú verið endur-
metinn og er talinn mjög sterk-
ur. Ennfremur er árgangurinn
frá 1984 allsterkur en árgangur
frá 1985 er sá langstærsti, sem
fram hefur komið í tæp 30 ár.
Framreikningar á stærð ýsu-
stofnsins fyrir árin 1988 til 1990
sýna að ýsustofninn mun vaxa
mjög ört á næstu árum, sérstak-
lega eftir árið 1988. Hafrann-
sóknarstofnunin leggur því til
að að aflahámark árið 1988
verði 60 þús. tonn og 70 þús.
tonn árið 1989.
Karfi
Karfi sem veiðist á Austur-
Grænlandsmiðum, við ísland
og Færeyjar, er talinn vera úr
sama stofninum. Karfastofnin-
um hefur hnignað á undanförn-
um árum en nú virðist sem þessi
þróun hafi stöðvast í bili. Nokk-
ur samdráttur varð í karfaafla
íslendinga árið 1986 sem stafar
af minni sókn í karfa. Á árinu
1987 er gert ráð fyrir að karfa-
afli verði svipaður og árið 1986
(85 þús. tonn), nema til komi
meiri háttar breytingar á sókn.
Niðurstöður úr nýju stofn-
mati á karfa eru mjög áþekkar
og í síðustu úttekt (1986) en ekki
tókst að gera úttekt á djúpkarfa
frekar en áður. í framreikn-
ingum á þróun karfastofnsins
næstu árin mun veiðistofn
minnka lítillega við 80 þús.
tonna ársafla árið 1988. Sé mið-
að við 60 þús. tonna afla mundi
bæði veiði- og hrygningarstofn
stækka Iítillega.
Mælt er með að afli á djúp-
karfa verði ekki aukinn umfram
það sem veitt hefur verið nokkur
undanfarin ár. Þar sem hlutur
djúpkarfa íslendinga hefur
minnkað, leggur Hafrann-
sóknastofnunin til að áfram
verði dregið úr sókn og að há-
marksafli á íslandsmiðum árið
1988 verði 75 þús. tonn af
báðum karfategundunum.
Grálúða
Gert er ráð fyrir að grálúðu-
afli árið 1987 verði 35 þús. tonn.
Við nýja úttekt á ástandi grá-
lúðustofnsins kemur í ljós að ný-
liðun er hærri og stofninn
stærri, sem byggist á endurskoð-
uðu sóknarmynstri eftir aldri í
stofninum. Við 20 þús. tonna
afla mun stofninn vaxa nokkuð
og við 30 þús. tonna afla mun
stofninn vaxa lítillega en við 30
þús. tonna afla 1988 minnkar
gráðlúðustofninn. Hafrannsókn-
arstofnunin leggur því til að leyfi-
legur hámarksafli íslendinga verði
30 þús. tonn árið 1988 og 1989.
Síld
Síldaraflinn árið 1986 var rúm
65 þús. tonn. Sumargotssíldar-
stofninn var mældur í janúar
árið 1987. Miklu minnamældist
af yngri árgöngum veiðistofns-
ins heldur en búist var við miðað
við fyrri mælingar á stærð
stofnsins. Ástæðurnar fyrir van-
mati á stærð yngri árganganna
felast fyrst og fremst í óvenju-
legri útbreiðslu síldarstofnsins
árið 1987. Síldin var nú miklu
meira uppi í fjörum en áður og
kom þess vegna illa til skila á
dýptarmælum rannsókna-
skipsins. Vegna augljóss mis-
ræmis milli síðustu bergmáls-
mælinga og fyrri mælinga á
stærð síldarstofnsins var ákveð-
ið að notast ekki við síðustu
mælingar að þessu sinni. Stofn-
stærð í ársbyrjun 1987 var
fundin með því að framreikna
hana frá ársbyrjun 1986 og taka
tillit til sildaraflans á vertíðinni
1986. Samkvæmt þessum fram-
reikningum á stofnstærð leggur
Hafrannsóknarstofnunin til að
síldaraflinn á haustvertíð 1987
fari ekki yfir 70 þús. tonn.
Ufsi
Ufsaaflinn árið 1986 var rúm-
lega 66 þús. tonn, en gert er ráð
fyrir að árið 1987 verði aflinn 70
þús. tonn. Athyglisvert er að
talsvert veiddist af þriggja ára
ufsaí botnvörpu og gæti það bent
til þess að hér væri um stóran ár-
gang að ræða. í nýju stofnmati
er gert ráð fyrir áþekkri stofn-
stærð í ársbyrjun 1987 og fram
kom við síðustu úttekt haustið
1986. Ennfremur er gert ráð
fyrir að árgangur 1983 sé stór.
Miðað við þessar forsendur mun
bæði veiðistofn og hrygningar-
stofn ufsa fara vaxandi á næstu
árum. Hafrannsóknarstofnunin
leggur til að sókn í ufsastofninn
verði ekki aukin frekar og að
aflahámark árið 1988 verði 75
þús. tonn og 80 þús. tonn árið
1989.
Loðna
Heildaraflinn á loðnuvertíð
1986-1987 var 1.332 þús. tonn,
en í janúar 1987 kom í ljós,
þegar kynþroska hluti stofnsins
var mældur aftur við betri skil-
yrði en um haustið að óhætt
myndi að auka loðnukvótann
frá því sem verið hafði fyrir.
Bergmálsmæling á ókynþroska
loðnu af árgöngum 1984 og
1985 fór fram í janúar/febrúar
1987. Allmikið var um rekís á
ytri hluta útbreiðslusvæðisins og
þess vegna er árgangurinn frá
1985 talinn verulega vanmetinn.
Þar sem veiðarnar á vertíð
1987/1988 munu að mestu
byggjast á þessum árgangi var
leitað annarra leiða til þess að
meta stærð hans. Til þess að
framreikna stærð 1985 árgangs-
ins í byrjun sumarvertíðar 1987
var gerður samanburður á stærð
loðnuárganga eins og þeir hafa
mælst sem eins árs fiskur í ágúst
og október og síðar þegar sömu
árgangar voru tveggja, þriggja
og fjögurra ára gamlir. í sam-
ræmi við þessar niðurstöður er
lagt til að leyfilegur hámarksafli
á tímabilinu júlí - nóvember
1987 verði 500 þús. tonn. Stærð
veiðistofns loðnu verður mæld
aftur í október 1987 eins og
venja hefur verið á undanförn-
um árum. Að þeim loknum
verða settar fram tillögur um há-
marksafla fyrir seinni hluta 1987
-1988 vertíðarinnar. Ekki eru
gerðar tillögur um hámarksafla
á sumarvertíð 1988.
Rækja
Rækjuafli hefur farið ört vax-
andi undanfarin ár sérstaklega
eftir að veiðar á djúpslóð hófust
fyrir alvöru. Heildaraflinn árið
1986 var tæplega 36 þús. tonn en
var 26 þús. tonn árið 1985. Sam-
dráttur var í rækjuafla á grunn-
slóð árið 1986 um 25% eða sem
nemur 2.200 tonnum. Aukning
rækjuafla á djúpslóð árið 1986
stafaði af stækkun veiðisveiða
en auk þess fundust ný mið út af
NA-landi og má rekja aflaaukn-
ingu að 2/3 hluta til þessa. Auk
þess hefur sóknin farið vaxandi.
Árið 1987 er fyrirsjáanleg mikil
sókn í úthafsrækju. Gert er ráð
fyrir að hámarksafli á rækju á
grunnslóð verði svipaður og var
á árinu 1986.
Humar
Humarveiðarnar gengu mjög
vel 1986 og varð afli á sóknar-
einingu sá mesti síðan 1966. Alls
veiddust 2.540 tonn. Gert er ráð
fyrir að aflinn árið 1987 verði
2.750 tonn en allt bendir til þess
að meðalafli 1987 verði svipaður
og 1985, þe. nokkru minni en
1986. Hafrannsóknarstofnunin
leggur til að sókn í humar verði
áfram miðuð við kjörsókn og
leyfilegur hámarksafli árið 1988
miðist við 2.600 tonn.
Skýrsla Hafrannsóknarstofnunar um ástand
nytjastofna og horfur framundan:
Leggur til 20% sóknar-
minnkun í þorskstofninn
—þorskárgangurinn frá 1986 talinn mjög lítill
Ástand umhverfisþátta í sjón-
um við ísland er einkum metið
af gögnum sem safnað er allt
umhverfis landið að vorlagi ár
hvert. í heild sýndu niðurstöður
vorleiðangurs 1987 framhald á
því góða árferði sem verið hefur
í sjónum við landið síðan í árs-
lok 1983. Mikill gróður mældist
í hlýsjónum vestanlands og út af
Vestfjörðum. Fyrir Norðurlandi
gætti áhrifa hlýsjávar austur að
Langanesi, nema djúpt út af
Húnaflóa, en þar gætti áhrifa
pólsjávar samfara rekís. Fyrir
Norðurlandi var átumagnið
sambærilegt við það sem mæld-
ist 1985 og meira en bæði 1984
og 1986. Lítil áhrif ferskvatns-
flæðis við Suður- og Vesturland
og áhrif rekíss og pólsjávar við
vestanvert Norðurland kunna
hinsvegar að hefta árangur
klaks við Suðvesturland og rek
seiða inn á norðurmið seinna í
sumar.
Þorskur
Fyrstu fimm mánuði ársins
1987 voru gæftir betri en sömu
mánuði 1986. Hins vegar var
þorskafli bæði árin mjög svip-
aður. Búist er við að afli árið
1987 verði um 360 þús. tonn. í
veiðinni mun árgangurinn frá
árinu 1983 vera allt að helming-
ur aflans í fjölda. Meðalþyngd
þorsks á þessu ári og kynþroska-
hlutfall eftir aldri er mjög svipað
og 1986.
Nýliðun í þorskstofninum er á
þann veg að árgangar 1983 og
1984 eru allsterkir, árgangur
1985 er talinn vera í meðallagi en
árgangur 1986 er hins vegar tal-
inn mjög lítill. Ekki varð vart
við neinar göngur þorsks frá
Grænlandsmiðum og ekki er
gert ráð fyrir neinum göngum
þaðan í allra nánustu framtíð,
enda þorskstofnar þar í mikilli
lægð.
Samkvæmt nýrri úttekt er
ástand þorskstofnsins svipað og
kom fram í síðustu skýrslu Haf-
rannsóknarstofnunarinnar frá
september 1986. Veiðistofn í
ársbyrjun 1988 er áætlaður
1.160 þús. tonn og hrygningar-
stofn 360 þús. tonn.
Ef veidd verða 400 þús. tonn á
árinu 1988 og 1989 minnkar
þorskstofninn um 200 þús. tonn
fram til ársins 1990, en hrygn-
ingarstofn stendur í stað. Við
350 þús. tonna afla mun veiði-
stofn haldast óbreyttur 1988 og
1989 en minnka um 10% árið
1990. Hrygningarstofn mun þó
vaxa lítillega. Við 300 þús.
tonna veiði vex stofninn lítið eitt
á næstu árum. Hrygningarstofn
mun hins vegar vaxa örar og
verða um 500 þús. tonn árið
1990, þá munu veiðidánarstuðl-
ar lækka verulega á næstu
árum. Til þess að ná þessu marki
þarf sóknin í þorskstofninn að
minnka um 20% á ári næstu tvö
árin. Ef stefnt skal að því að
stofninn stækki telur Hafrann-
sóknarstofnunin æskilegt að afli
verði takmarkaður við 300 þús.
tonn árið 1988 og 1989.