Bæjarbót - 04.12.1987, Blaðsíða 1
Öháð fréttablað
6. árgangur - 4. desember 1987 - 11. tölublað
Göngum í Kaupfélagið og vinnum
saman, því Samvinnuhreyfingin
sýnir mátt hinna mörgu.
Kaupfélag Suðurnesja
20 skip seld burt af svœðinu:
Brottseldur kvóti nemur
alls um 16.300 tonnum
— stofnun Eldeyjar stórhuga tilraun til að snúa öfug-
þróuninni við
Vikublaðið Fiskifréttir gerði
nýlega könnun á sölu fiskiskipa
frá Suðurnesjum sl. 5 ár
(1982-1987). Bæjarbót birtir hér
upplýsingar sem fram komu í
könnuninni.
Á ofangreindu tímabili voru
20 skip seld burt af Suðurnesj-
um og núverandi botnfiskkvóti
þessara skipa er tæp 18,000
tonn, í þorskígildum. Að auki
voru 2 loðnubátar seldir burt.
Hvað kom svo í staðinn? Þrjú
skip. Harpa GK, Hafdís ÍS og
Sigurborg AK. Kvóti þeirra er
samtals tæp 1,700 tonn. Brott-
seldur kvóti er því um 16,300
tonn!
Brottseldu skipin eru: Gunn-
jón GK, Dagstjarnan KE, Þór-
katla IIGK, Gautur GK, Fjölnir
GK, Erlingur GK, Heimir KE,
Sveinborg GK, Helgi S. KE,
Haffari GK, Pétur Ingi KE,
Ólafur Ingi KE, Binni í Gröf
KE, Hafrenningur GK, Jarl KE,
Happasæll GK, Guðsteinn GK,
Ingólfur GK, Gissur hvíti KE,
Sandfell GK, auk loðnuskip-
anna Guðmundar VE og Gígju
VE. Kvóti þessara botnfisk-
veiðiskipa samsvarar tæpum
18,000 tonnum þorskígilda í
aflamarki.
Það er m.a. í Ijósi þessara
staðreynda sem aðilar í útgerð-
inni og vinnslunni hér syðra ýttu
hugmyndinni að Eldey hf. úr
vör. Stóru og stæðilegu fyrir-
tæki sem hefði bolmagn til að
kaupa skip og gera þau út — frá
Suðurnesjum.
Straumhvörf í útgerðarmálum
Suðurnesjamanna:
Með stofnun
Eldeyjar er vörn
snúið i sókn
þó þarf enn aukið hlutafé til stórátaka
Frá stofnfundi Eldeyjar hf. Jón Norðfjörð flytur skýrslu
undirbúningsnefndarinnar.
Formlegur stofnfundur Eld-
eyjar hf. var haldinn í Glaum-
bergi í Keflavík sl. sunnudag að
viðstöddum miklum fjölda
fólks. M.a. voru þar þingmenn
kjördæmisins, en þeir hafa lýst
fullum stuðningi við félagið.
Jón Norðfjörð rakti í stuttu
máli aðdragandann að stofnun
félagsins. Hann gat þess að víða
væri mikið talað, t.d. um nauð-
syn stofnunar Eldeyjar hf., en
herslumun vanti oft þegar á
hólminn væri komið. Hvatti
hann menn til enn frekari dáða.
Kjartan Jóhannsson alþingis-
maður talaði fyrir hönd þing-
manna kjördæmisins. Hann
sagðist ekki sjá neina betri lausn
á vanda sjávarútvegs á svæðinu
en stofnun Eldeyjar hf. Þing-
menn fögnuðu framtakinu og
styddu með ráðum og dáð.
Að lokinni kynningu á stofn-
samningi og samþykktum fél-
agsins var tilkynnt að á fund-
inum hefðu verið staðfest hluta-
fjárloforð fyrir 45,7 milljónir og
að í farvatninu væru miklar
fjárhæðir sem kæmu síðar.
Upphaflega var stefnt að 100
milljóna króna hlutafé, en í
fundarlok upplýsti Eiríkur
Tómasson að stefnt yrði að 150
milljónum.
Innlegg Óla Kr. Sigurðssonar,
forstjóra Olís, vakti mikla
athygli. Hann kvað sín fyrirtæki
reiðubúin að leggja fram 5%
hlutafjárins. Hann sagðist hafa
óbilandi trú á vilja og getu
Suðurnesjamanna í þessu máli,
því legði hann í púkkið.
Fyrsta stjórn Eldeyjar hf. var
kjörin á fundinum. Hana skipa
Jón Norðfjörð, Eiríkur Tómas-
son, Sigurður Garðarsson, Guð-
mundur Ingvarsson og Viðar
Halldórsson. Varamenn eru
Birgir Guðnason og Sigurbjörn
Björnsson. Endurskoðendur eru
Logi Þormóðsson og Karl
Njálsson.
Kaupfélagið
byggir
0 bls. 2
Gengu of
langt!
0 bls. 3
Neita að
greiða vexti
0 bls. 4
Fyrsta Gjald-
heimtan
0 bls. 5
Reykjanesið
örfoka?
0 bls. 6
Varði meist-
aratitilinn
0 bls. 7
„Á tíma-
mótum“
0 bls. 8
Nýr Skúmur
0 bls. 9
Stærri
markaður
0 bls. 10
„Atvinnu-
málin
merkust“
0 bls. 11
A