Gríma - 01.09.1942, Blaðsíða 11
Gríma]
HAMRA-SETTA
9
baka (þ. e. baksins). En hart nær höfði mjaðmarinn-
ar hægra megin leizt þeim ákoma holsett og þykj-
andi meir líkindi mannaverk vera mundi heldur en
rot eður feygingsskapur jarðarinnar“.... „að svo
prófuðu og fyrir oss komnu dæmdum vér Bjarna
bónda og greindan Gvítara skylduga að sverja bókar-
eið þann frekasta þeir mættu þar um bera um sagt
efni, hvern þeir sóru þar strax oss áheyröndum fyrir
Markúsi Jónssyni svolátandi, sem það bréf (inni)
heldur, er hér er með fest. Því dæmdum vér þessa
eiða til lögréttu undir lögmanns skoðan og lögréttu-
manna, hvort afl eða magt þeir hefðu hér upp á, því
leizt það oss og sýslumanninum ekki upp beranda
réttilega, utan þeir hefði þann eið svarið, að það væri
fullkomlega mannaverk fortakslaust, er hann bæri á
sínum líkama".1) Þennan dóm samþykkti Markús
sýslumaður, og var dómsbréfið skrifað í Vallanesi
þrem dögum síðar, eða 6. júní. Vottar að „bókareiði“
þeirra Bjarna og Gvítara voru þrír lögréttumenn,
sem einnig voru í dóminum, og komast þeir þannig að
orði í vottorðinu: . . . .„að það sanna helsár, sem
Steingrímur heitinn Böðvarsson bar á sínum líkama
upp gröfnum í Vallanesi, sex mánuðum eftir hans
dauðadægri, þótti þeim (þ. e. Bjarna og Gvítara)
meiri líkindi mannaverk vera mundu heldur en af
roti eða feygingsskap jarðarinnar og ekki af sínum
grafartólum orðið hafa“.2)
í þessu vottorði, sem var bréfað í Vallanesi 3.3) júní,
*) ísl. Fbrs. X., bls. 527—528.
2) ísl. Fbrs. X., bls. 528—529.
s) Dagsetning þessara bréfa, nr. 239 og 240, er ekki rétt í
Fornbréfasafninu. En samkvæmt upplýsingum frá dr. Guð-
brandi Jónssyni er þetta leiðrétt hér.