Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 7
LÍF&STARF
Í síðasta þætti var ögn byrjað á birtingu afmælisvísna. Afmælisvísur hafa verið ortar lengi, misjafnlega nærfærnar eftir
því hver aldurinn er eða sá er kveðjuna fær.
Á síðustu öld tíðkaðist að semja og flytja
afmælisbörnum löng ljóð og jafnvel mikið
í þau lagt. Þessi þáttur verður helgaður
afmælisvísum. Páll Ásgeir Ásgeirsson, mágur
minn, flutti mér útúrsnúinn skírnarsálm á
síðasta afmælisdegi mínum, sem jafnframt
var staðfestingarstund á hinu tilkomumikla
millinafni mínu:
Ó blíði Jesú blessa þú
bónina sem þú heyrir nú:
Vesaling þennan vantar nafn
svo verði hann loksins öðrum jafn.
Ef því á hér að öðlast líf
útvegaðu því stál og hníf
svo geti það fiskinn feitan stýft
og flotinu þar við ekki hlíft.
Ó gef það vaxi í visku og náð,
vænkist þess hagur og auraráð,
og nú verði Geirhjörtur nafnið þitt
notadrýgra og betra en hitt.
Og Páll flutti söngbróður sínum úr karla-
kórnum Fóstbræðrum, Jóni Þorsteini
Gunnarssyni, svofellda afmæliskveðju 65 ára:
Aldur hækkar, virðing vex
og verður fært í letur,
að tórt þú hefur tugi í sex
og tel þó hálfum betur.
Ellimerki engin vel
ennþá sjást á kappanum.
Nýtur sín um næturþel
og nær úr flösku tappanum.
Óli heitinn á Gunnarsstöðum sendi
sveitunga sínum, Eggerti í Laxárdal, þessa
einstöku afmælisósk:
Nær þér elli ekki í var
að þó svelli í hylnum.
Haltu velli hetjunnar
að hinsta fellibylnum.
Ein af íburðarmeiri afmæliskveðjum er eftir
Rósberg G. Snædal, send Birni á Kotá sextugum:
Nú skal syngja Birni brag,
byrja hringhenduna.
Húnvetninginn hylla í dag,
harma þvinga úr muna.
Yfir brot og ótal sker
alltaf flotið glaður.
Björn á Kotá ekki er
ellilotinn maður.
Vandist skælur aldrei á
eða þvælingshætti,
berð því hæla heila frá
heimsins þrælasætti.
Laus við flysjung, fals og dár,
fengið misjafnt gaman.
Þraukað í tvisvar þrjátíu ár,
þér er ei fisjað saman.
Jafnan haldið horfinu,
hitt fyrir kalda strengi,
alltaf valdið orfinu,
aldrei tjaldað lengi.
Aldrei vikið undan blæ,
aldrei hik í neinu.
Heims í kviku hefurðu’æ
haldið striki beinu.
Vörður hlaðið, vegi rutt,
verkahraður, traustur.
Yfir vaðið veikan stutt,
vörðinn staðið hraustur.
Best þinn glæði gæfan hag,
gagnleg fræði lestu.
Nóttu bæði og nýtan dag
njóttu gæða bestu.
Þú, sem dáir dagsins glóð,
draumabláar vökur,
þiggðu frá mér þetta ljóð,
þessar fáu stökur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
522
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Mynd / Hörður Kristjánsson.
Hljómsveitin Æfing frá Flateyri fagnaði 50 ára afmæli sínu í Bæjarbíói í Hafnarfirði:
Fínn kall kellingin hans
– Púki að vestan, Kemur eftir rétt strax, og Allabúð voru meðal laga sem trylltu vel stálpaða áheyrendur
Hljómsveitin Æfing frá Flateyri fagnaði 50
ára afmæli sínu með lokadagstónleikum í
Bæjarbíói, Hafnarfirði laugardaginn 11.
maí síðastliðinn. Uppselt var á tónleikana
og greinilegt að núverandi Flateyringar og
brotttfluttir ætluðu ekki að láta þennan
viðburð fram hjá sér fara.
Það var velt til fundið að halda tónleikana
á lokadag vetrarvertíðar 11. maí, en allir eiga
meðlimir hljómsveitarinnar með einum eða
öðrum hætti rætur í sjómennsku, beitningu,
fiskvinnlu eða öðrum tengdum athöfnum.
Segja má að gleðin hafi skinið úr hverju andliti
á tónleikunum. Ekki var laust við að þarna væri
í bland stemning eins og hún gerðist best á
veitingastaðnum Vagninum á Flateyri á árum
áður og eins og best gerist á góðu ættarmóti.
Fyrsta „giggið“ á fundi Skjaldar á Flateyri
Í stuttu máli má segja að saga sveitarinnar sé
rakin til 27. desember 1968 þegar hljómsveitin
Æfing á Flateyri kom fram í fyrsta sinn á fundi
Verkalýðsfélagsins Skjaldar í Samkomuhúsinu
á Flateyri. Í hljómsveitinni voru: Árni
Benediktsson, Kristján J. Jóhannesson, Sigmar
Ólafsson, Eiríkur Mikkaelsson og Gunnlaugur
Mikkaelsson.
Hljómsveitin Æfing starfaði á tveimur
tímaskeiðum, þ.e. á Flateyri frá 1968 og fram
yfir 1980 og lék þá á dansleikjum um alla
Vestfirði og reyndar víðar um land. Meðlimir
Æfingar á þessu tímabili voru allmargir en
Árni Benediktsson og Kristján J. Jóhannesson
voru með alla tíð.
Seinna tímabilið er frá 1990 og þá bæði á
samkomum sem Önfirðingafélagið í Reykjavík
kom að með einum eða öðrum hætti og við
önnur sérstök tækifæri, s.s. afmæli, brúðkaup
og útgáfutónleika.
Í hljómsveitinni Æfingu á þessu tímabili
hafa verið:
Árni Benediktsson, Kristján J. Jóhannesson,
Sigurður Björnsson, Jón Ingiberg
Guðmundsson, Ásbjörn Björgvinsson, Halldór
Gunnar Pálsson, Önundur Hafsteinn Pálsson
auk Óskars Þormarssonar og Magnúsar
Magnússonar.
Gömlu góðu lögin slá enn í gegn
Árið 2013 ákváðu félagarnir í Æfingu að taka
upp plötu eða geisladisk sem fékk nafnið:
Æfing – fyrstu 45 árin. Meðal laga á þessum
diski Æfingar eru: Fínn kall kellingin hans,
Kem eftir rétt strax, Allabúð, Púki að Vestan
og Heima er best.
Sá sem á gríðarlega mikið í tilurð texta og
laga hljómsveitarinnar er Guðbjartur Jónsson
sem lengi rak veitingastaðinn Vagninn á
Flateyri og var þá oftast titlaður Vagnstjóri.
Hann á ótal marga óborganlega frasa sem
urðu tilefni að mörgum af bestu lagatextum
sveitarinnar. Á Guðbjartur mikinn heiður skilið
fyrir sín skemmtilegu orðatiltæki sem hafa
verið sem yndislegt krydd í tilveruna fyrir
marga.
Brandarinn sem varð
að veruleika
Siggi Björns greindi frá því
á tónleikunum að þegar
Flateyringurinn Björn Ingi
Bjarnason, sem nú býr
á Eyrarbakka, kom með
hugmyndina að plötuútgáfu
sveitarinnar hafi þeir allir
skellihlegið og litið á
það sem afbragðsgóðan
brandara. Björn gaf sig
ekki og geisladiskurinn
varð að veruleika. Reyndar
er Björn ekki vanur því
að gefa sig þegar honum
dettur eitthvað í hug og er
Hrútavinafélagið Örvar
gott dæmi um það. Félagið var stofnað árið
1999. Tilgangur félagsins er að viðhalda og efla
þjóðlega menningararfleifð til sjávar og sveita.
Félagar eru yfir þúsund talsins og að sjálfsögðu
er Björn Ingi Bjarnason formaður í félaginu.
Á tónleikunum í Bæjarbíói lék hljómsveitin
Æfing fyrrnefnd lög, ásamt ýmsum þekktum
slögurum og nokkur fleyri lög sem m.a. hafa
komið út á diskum Sigga Björns.
Áheyrendur voru vel með á nótunum og létu
ekki segja sér það tvisvar að taka hressilega
undir söng félaganna á sviðinu þegar þeir
óskuðu eftir stuðningi.
Meðlimir Æfingar á þessum tímamóta-
tónleikum voru:
Árni Benediktsson - gítar og söngur
Sigurður Björnsson (Siggi Björns)
- gítar og söngur
Ásbjörn Björgvinsson - bassi og söngur
Jón Ingiberg Guðmundsson
- gítar og söngur
Halldór Gunnar Pálsson - gítar og söngur
Óskar Þormarsson - trommur
/HKr.
Mynd / Björn Ingi Bjarnason
Mynd / Björn Ingi Bjarnason
Mynd / Björn Ingi Bjarnason