Þjóðólfur - 04.05.1942, Qupperneq 4
M'il’ðlfUR
Draugnr enn í spilinu
Framhald af 2. síðu
skemmdarverk á húsum, merkja-
steinum, girðingum, jafnvel slysa-
vamatækjum við sjó. Krakkar
stökkva yfir garða og girðingar,
upp um húsþök, kasta snjókúlum
inn í íbúðir manna, krota utan
húsveggi, kalla allskonar vitleysu
til ókunnugra manna og flangsast
eins og kjánar utan í fólk.
Nýlega kölluðu tvær ungar
stúlkur, á að gizka 15—16 ára,
« í byggingameistara nokkum hér í
bænum, sem fór fram hjá þeim:
,,Halló, mannandskoti”, hrópuðu
þær. Þessi sómamaður tók þær
tali og urðu þær þá sneipulegar.
Allskonar slík vitleysisköll eru
vanaleg hjá krökkum hér í bæ.
Þá kannast margir við fram-
komu krakkanna í strætisvögnun-
um. Allt þetta ber heimilum og
þjóðaruppeldi slæman vitnisburð,
og sýnir nokkurnveginn hið al-
menna menningarlega tíðarfar hjá
okkur. Nú er það vitað, að erf-
itt er fyrir eitt og eitt heimili
að hamla upp á móti straumn-
um. Þess vegna þarf þjóðin að
vera samtaka um viðreisnarstarf-
ið. Hið menningarlega og uppeld-
islega tíðarfar þarf að breytast,
til þess að komið geti sólbjart
vor, hlýindi og fagur gróður. 111
þess að ná slíku takmarki, þarf
kristilega, siðferðilega og þjóð-
lega vaknirigu. Ekki þýðir að
einblína á eitthvað eitt, eins og
mönnum oft hættir til, þar sem
einn hrópar: skipulag, annar trú
og hinn þriðji fræðslu. Það er
ekkert eitt, sem dugar, heldur
margt saman. Eg veit það, að
sumum „rétttrúnaðarmönnum”
hættir til að staðhæfa, að eitt
fæði annað af sér, en þetta er
ekki nema hálfur sannleikur. Sag-
an sannar það, að trú hefur ekki
alltaf fætt af sér réttlátt og á-
kjósanlegt skipulag, og að ekk-
ert sérstakt skipulag nægir til
þess að gera menn réttláta og
góða, og fræðslan ein nægir ekki
heldur, en hvað með öðru er
þetta allt gott.
Mest af því sem varpar skugga
á þjóðarsæmd okkar, svo sem
kæruleysið, ólöghlýðnin, ókurteis-
in, drabbarahátturinn, hálfvelgj-
an og hinn siðferðilegi slappleiki
stafar af því, að kynslóðin á í
rauninni ekki til neinn skýran og
ákveðinn siðferðismælikvarða ekki
neina algilda reglu fyrir breytni
og framkomu manna. Þefcta er
óskaplegt tjón og úr því þarf að
bæta. En haldgóður mælikvarði
á breytni og hegðun manna verð-
ur helzt ekki til nema þá, er
þjóðir lifa siðbóta- eða vakninga-
tímabil. Þeir verða helzt til á
dögum spámanna og mikilla and-
legra leiðtoga. Þá ýmist uppgötva
menn hinar algildu reglur eða
hverfa aftur að þeim. Þetta er
okkar mikla þörf. Þess vegna
endurtek ég staðhæfingu mina,
við þurfum að hefjast handa um
kristilega, siðferðilega og þjóð-
lega vakningu, ganga saman í
sterka fylkingu til þess að koma
henni í framkvæmd. Það er hægt
Mánudaginn 4. maí 1942.
Bækur og rít
Framhald af 2. síöu
semdaleiðslu sinni. En það er
þarflaust að draga dul á það.
að greinar þessar eru bráð-
skemmtilegar aflestrar og ýmis-
legt á þeim að græða, hvað sem
höfuðkenningunum líður, því að
margt er þar skarplega athugað.
Mun það ekki orka tvímælis, að
Barði sé meðal hinna frumleg-
ustu og hugmyndaríkustu ís-
lenzkra fræðimanna, þótt liér
verði ekki dæmt um það, nema
hugarflug harts geti á stundum
fremur átt samleið með skáld-
skap en vísindum.
Á annað athyglisveit og ágætt
efni, sem birzt hefur í þessum
tveim fyrstu heftum Helgafells
skal drepið með örfáum orðum.
Magnús Ásgeirsson hefur birt
þar fágaða þýðingu á hinu stór-
brotna kvæði Kiplings, Ef....
Tómas Guðmundss. á þar snilld-
arkvæði, Bréf til látins manns og
Steinn Steinar nokkur ágæt ljóð.
Yfirbragðsmikil ferðalýsing eftir
Gunnar Gunnarsson, Eldhnöttur-
inn og eldfjallið er í fyrsta heft-
inu. Þar á einnig Sverrir Kristj-
ánson mjög skýra og vel ritaða
Aldarininningu um Brandes. —
1 síðara heftinu er m. a. smásaga
eftir Guðm. G. Hagalín og mjög
athyglisverð grein eftir Jóhann
Sæmundsson lækni um Sumar-
notkun hitaveitunnar, sem síðar
verður vikið að hér í blaðinu.
Þar er og gullfallegt kvæði eftir
Stefán frá Hvítadal, Fornar
dyggðsr, sem mun vera síðasta
ljóð skáldsins, ásamt mynd hans
og rithandársýnishorni.
Helgafell ei’ vandað að ytra
frágangi, prentað á góðan pappír
og prýtt myndum og teikningum.
Útgáfa þess er djarfasta tilraun
sem hér hefur verið gerð til að
skapa vettvang til umræðu um
bókmenntir og önnur menningar-
mál. Er þess að vænta, að vel
megi takast.
^^0
og það er skemmtilegt verk, og
fyrir það munum við hljóta bless-
un komandi kynslóða. Nú þarf
að kveikja eld í brjósti æskunnar
og vígja þann heiiaga eld áhug-
ans í þjónustu lífsins, en ekki
dauðans, eins og sum stórveldi
hafa gert í seinni tíð.
Slíka nýsköpun skulum við
hefja og hræðast hvergi, þó.ft ein-
hver hrópi: Nazismi! Fasismi!
Slíkt er aðeins gamall galdra-
brennuhugsunarháttur og mun
hann fá sinn dóm þegar aftur
birtir.
Jjj
SHIPAUTCERÐ
ESJA
austur um til Seyðisfjarðar í byrj-
un þessarar viku. Vörumóttaka í
dag. Pantaðir farseðlar óskast
sóttir fyrir hádegi.. Frá Seyðis-
firði fer skipið beint til Reykja-
víkur með viðkomu í Vestmanna-
eyjum, og er ætlast til að skipið
fari aftur um miðjan mánuðinn
venjulega strandferð austur um til
Siglufjarðar og komi þá einungis
við á aðalhöfnunum sunnan
Seyðisfjarðar í austurleiðinni.
Stríðsstjórn eða
upplausnarástand
Framhald af 1. síöu.
oddvitar þessara flokka efast um,
að kjósendurnir, sem greiddu
þeirfl atkvæði við síðustu kosn-
ingar, hafi snúið við þeim baki.
Ur herbúðum þessara flokka
hafa oftar en einu sinni heyrzt
raddir um það, að unnt mundi að
stjórna landinu án tilstyrks AI-
þýðuflokksins. Þeir munu í hví-
vetna hafa litið á hann sem lítinn
bróður í leik stjórnmálanna. Hin-
ar ófullkomnu breytingartillögur
Alþýðuflokksins á stjórnskipun
landsins eru dægurflugur, fram
bornar í því einu skyni að skapa
vanda í sambúð núverandi stjórn-
arflokka. Eru þær því ekki til
þess fallnar að orka neinu um,
það, hversu hin þýðingarmestu
mál ráðast á þeim alvarlegu tím-
um, er nú standa yfir. Og Al-
þýðuflokkurinn þarf ekki að ætla
sér þá dul, að mark verði tekið á
kröfum hans um kösningar nú,
eftir að hafa átt hlut að hinni ger-
ræðisfullu kosningafrestun á síð-
asta ári.
Afstaða Þjóðólfs til
„stríðsstjórnar“
Ábyrgrar ríkisstjórnar á ís-
landi bíða önnur verkefni en þau,
að kasta sér út í hjaðningavíg ill-
vígrar kosningabaráttu. Þörfin
krefur að unnið sé í þágu þjóðar-
innar af metri einbeittni og dugn-
aði en nokkru sinni áður. Ef það
verður ekki tryggt, að allar starfs-
fæ.rar hendur á íslandi vinni og
vinnuaflinu sé á skipulegan hátt
beint að þjóðnýtum og aðkallandi
störfum, kalla stjórnarvöld lands-
ins mikla ógæfu yfír þjóðina.
Þeim tveim flokkum, sem nú
fara með stjórn landsins yrði um
megn að þvo hendur sínar af
þeirri ábyrgð. Ur því, sem nú er
komið, er ekki um annað að ræða
en að fresta kosningum meðan
stríðið stendur. Skorist Alþýðu-
flokkurinn undan stjórnarstörf-
um, verða núverandi stjórnar-
Varðveitið fatnaðinn
frá tílraunum með léleg
þvottaefni, nú þegar FLIK«
FLAK fæst í hverri búð.
Silhisokhar, hínir fínustu
dúhar og undirföt eru örugg
fyrír shemmdum, þegar þér
notíð FLIK-FLAK í þvott-
ínn.
FLII
r F/Ík.
F/ak
FLIK-PLAK ER BEZTA ÞVOTTAKONAN.
Dregíd verdur í 3. fl. ll. maí
402 vínníngar.
Samtals 87700 krónur.
Enlinúli scn illra tiral!
flokkar að fara með stjórn eimr.
Þeir geta ekki varpað frá sér á-
byrgð á raunhæfum stjórnarstörf-
um án þess að auka drjúgum í þá
syndabyrði, sem þegar mun vera
orðin nægilega þung. Um afstöðu
Þjóðólfs til slíkrar „stríðsstjórn-
ar“, hvort sem hún væri skipuð
fulltrúum þriggja flokka eða
tveggja, er það að segja, að hann
mundi vilja veita henni það að-
hald réttmætrar gagnrýni, sem
áður er nefnt, en unna henni í
hvívetna sannmælis og láta hana
.hljóta dóm samkvæmt verkum
sínum,