Þjóðólfur - 01.06.1942, Síða 1
íþt Á BAUGI
MVDtiniR
II. árg.
Reykjavík. mánudagur 1. júni 1942
16. tölublað
Hernám og hervernd fslands
FYRIR tveim árum tók brezkt herlið hús á Reykvíking-
um að næturlagi. Lögðu þeir undir sig ýmsar opinber-
ar byggingar og lýstu yfir hernámí sínu á íslandi. Fór því
fram um rúmlega eins árs skeið, en þá varð að ráði að
ríkisstjórn Islands bað um hervernd Bandaríkja Norður-
Ameríku. Var hún veitt og tók amerískur herafli land á
íslandi. Hann var þó undir brezkri yfirherstjórn þar til
fyrir stuttu síðan, er Bandaríkjamenn tóku við yfirher-
stjórn Bandamanna á íslandi og ábyrgð á hervörnum
Iandsins.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
VALDIMAR JÓHANNSSON
Skrifstofa:
Laufásv. 4. Sími 2923. Pósth. 76].
Viðtalstími ritstjórans kl. 1—2 alla
daga nema laugardaga.
Þjóðólfur kemur út á hverjum
mánudegi. Misserisverð er kr. 6.00
og greiðist fyrirfram, í Iausasöíu
25 aura.
Víkingsprent h. f.
8{st Á BAUGI
KJORDÆMAMALIÐ.
Blöð stjóriunálaflokkanna ræða
allmikið uxn breytingar þær, sem
nú hafa verið samþykktar á
kosningalögum landsins. — Menn
niunu yfirleitt sammála um það,
að forráðamönnum Framsóknar-
flokksins undanskildum, að breyt-
ingar þessar séu skref í rétta
átt til þess að jafna atkvæðisrétt-
inn í landinu. Hitt virðist mörg-
um, að heppilegri leiðir hefðimátt
marka um kjördæmaskipun og
kosningafyrirkomulag, en um það
verður ekki sakazt úr því sem
komið er.
En það orkar ekki tvímælis,
að stjórnarhættir ríkisins þarfn-
ast gagngerðra endurbóta, þrátt
fyrir þetta. Er það eitt af brýn-
vstu verkefnum þjóðarinnar að
semja sér þá stjórnskipun, er
meti meira hæfan .úrskurð x
hverju máli en stigameimsku
flokksræðisins,
IIUGSJÖNIR
S J ÁLFSTÆÐISM ANN A.
Hinir mörgu fylgjendur Sjálí-
stæðisflokksins hafa skipað sér
í eina sveit tii þess að standa
vörð nm persónulegt frelsi, al-
menn mánnréttindi og jafnrétti
þjóðfélagsþegnaxma. Þessar hug-
sjónir hefur Sjálfstæðisflokkuriim
svikið síðan hann var lagðitr und-
ir Kveldúlf, En það er þörf að
lialda þessu merki á loft eigi síð-
ur uú en áður, Þessvegna hljóta
hinir mörgu vonsviknu fylgis-
menn Sjálfstæðisflokks að skipa
sér í nýja sveit, þar sem þeir
geta öðlazt aðstöðu til að vinna
fyrir hugsjónir sínar.
SKYLDUR
SJÁLFSTÆÐISMANNA.
Morgunblaðið telur, að sigur
réttlætismálsins sé tryggður, ef
Sjálfstæðismenn geri skyldu sína
á kjördegi. En samkvæmt áliti
Morgunblaðsins er það skylda
þeirra að fylgja Kveldúlfí fremur
en flokkshugsjón sinni, elta ólaf
Thors inn í herbúðir Jónasar frá
Hriflu og stuðla að því, að txö
lítið vinsæl fyrirtæki, S, I. S, og
Kveldúlfur, nál óskoruðu alræð-
isvaldi í þjóðfélaginu.
Hinsvegar mun mega fullyrða,
að margur Sjálfstæðismaðurinn
telji sér bera meiri skyldu til að
stuðla að því, að persónúlegt
fi'elsi verði í heiðri haft, að þjóð-
félagsþegnarnir njóti jafnréttis
og einstökum iyrirtækjum og
fjölskyldum sé ekki selt sjálf-
dæmi um tiltektir sínar í þjóð-
íélaginu. Og slikir menn eiga
ekki samleið með þeim flokki,
sem nú hefur verið lagður undir
Kveldúlf. Þeir mnnu taka upp
störf fyrir hugsjónir sínar á öðr-
um vettvangi.
Hernám Breta fór mjög
friösamlega fram, Mikill fjöldi
íslendinga tók hernum á
næsta einkennilegan hátt. Svo
var aö sjá, sem konum og
körlum þætti mikill ljóröi
stafa af hinum mosalita fatn-
aöi hermannanna. Umkomu-
leysi og kotungsháttur ýmissa
Islendinga lýsti sér í því, að
þeim virtist vera sérstök
nautn i því aö umgangast
hermennina, tigna og ótigna,
og seilast eftir sem nánustum
samskiptum viö þá.
Hinsvegar var öllum greind-
ari mönnum og þjóðræknari
I hernámiö mjög á móti skapi.
Þeir gátu ekki fallizt á þær
röksemdir hernámsaöilans, aö
Islandi stafaði sérstök hætta
frá hinum stríðsaðilanum. Öll
rök virtust benda gegn því,
aö Þjóðverjar sæju sér fært
að taka ísland á vald sitt.
Enda þótt slíkt ævintýri kynni
aö heppnast í svip, voru engar
líkur til aö þeir fengju haldið
landinu meðan brezki flotinn
væri ósigraöur úti fyrir strönd-
um þess. Landið hlaut einnig
aö einangrast. Engin tök gátu
verið á því, aö halda uppi
sambandi viö þann þýzkan
her, sem kunnað hefði aö ná
hér fótfestu. Hin gífurlega
langa strandlengja hlyti aö
hafa veriö óvarin gegn árás-
um af sjó.
Þannig mæltu öll rök gegn
því aö ísland væri í yfirvofandi
hættu um aö sogast inn í
hringiöu styrjaldarinnar fyrir
tilverknaö Þýzkalands. ViÖ-
búnaöur hinnar brezku her-
stjórnar á íslandi leit auk
þess ekki þann veg út í aug-
um borgaranna, að mikilla
átaka væri vænzt, Þeim virt-
ist sem dvöl hinna brezku her-
sveita og „vígbúnaður“ þeirra
á íslandi væri betur til þess
•fallinn aö kalla hættuna yfir
þjóðina. en vernda hana fyrir
ógnum styrjaldarinnar.
Ýmisleg ráðabreytni hinnar
brezku herstjórnar var og illa
tii þess íallin að sætta hinn
þjóðræknari hluta Islendinga
við hernámiö. Herstjórnin tók
sumar af menntastofnunum
þjóðarinnar til hemaðarþarfa
og lét hvað eftir annað undir
höfuö leggjast aó efna marg-
gefin loforð um aö láta þær
aí hendi. Þannig veröur þjóöin
enn aö búa viö þá smán, að
hús menntaskólans í Reykja-
vík og Stúdentagarðurinn er
á valdi hernaðaraöila, sem
hefur tekiö sér húsbóndarétt
yfir landinu í óþökk þjóðar-
innar. Brezkur her hefur enn
á valdi sínu nokkuö af íbúö-
arhúsnæöi höfuöstaöarbúa,
enda þótt neyöarástand ríki
i bænum vegna húsnæöiseklu.
Brezka herstjórnin sýndi ís-
lendingum slíkt tillitsleysi, aö
höfuðborg þeirra var gerð að
brezkum herbúöum. Á nálega
hverjum óbyggöum bletti í
bænum voru reistir hinir óá-
sjálegu kumbaldar brezka
hersins, sem þannig var feng-
ið aösetur viö húsveggi borg-
aranna, Hernaðarfiugvöllur
var settur niöur við hjarta
höfuöborgarinnar og flugvélar
látnar sveima milli reykháfa
íbúöarhúsanna í bænum nótt
og dag. Hin óeölilega og á-
stæðulausa búseta hersins
iimi í höfuðborginni og í
menntastofnunum var ekki
aðeins til margvíslegra óþæg-
inda, vanvirðu og tjóns, held-
ur var hún einnig til þess
íallin aö kalla háskann yfir
höfuðborgina á svo ótvíræöan
hátt, aö ekki varö um villzt.
Brezka herstjörnm bannaði
íslenzkt blaö og flutti starfs-
menn þess í fangelsi til Eng-
lands, þrátt fyrir yfirlýsingar
sínar um aö viröa borgaraleg
lög og rétt á íslandi. Ráöa
menn hinna brezku hersveita
á íslandi voru svo gersneydd-
ir anda prentfrelsisins, aö al-
gerlega • áreitnislaus grein í
garð brezka hersins, sem birt-
ist, hér í blaöinu, gaf tilefni
til óvægilegrar og ósæmilegr-
ar yfirheyrslu yfir ritstjóra
blaösms.
Brezki herinn þrengdi að
borgurum landsins á alger-
lega óþolandi hátt. Skemmti-
staöir höfuöstaöarins voru að
verulegu leyti lokaöir fyrir
bæjarbúum af því aö stríös-
menn Breta, háir og lágir,
skipuðu þar nálega hvert
sæti. Samgöngutæki bæjarins
voru í þjónustu þeirra. Jafn-
vel á götum úti áttu fótgang-
andi vegfarendur erfitt með
aö komast leiöar sinnar vegna
hms mikla átroðnings af
hálfu hermanna inni í bæn-
. _. .
Þó aó herstjórn Breta hér
væri þannig meö þeim hætti,
að illa var til þess falliö að
skapa vinsamlega sambúð við
herinn, varö sambúðin mjög
árekstralítil, Framkoma hinna
óbreyttu hermanna var yfir-
leitt með þeim hætti, að ekki
vaiö á betra kosiö, Og þeir
fáu árekstrar, sem attu sér
staö, munu ekki síður haía
verið sök þeirra manna x hópi
Islendinga, sem ekki kunna
að haga framkomu sinni að
hætti siðaöra manna.
íslendingar munu því lengst
minnast hins brezka hernáms
fyrir tvennt. Annarsvegar fyr-
ir lítið vinsamlega afstööu
hernaöaryfirvaldanna gagn-
vart íslenzkum borgurum.
Kins vegar fyrir alveg sér-
staka óáreitni og prúðmann-
legu framkomu hinna ó-
breyttu liösmanna.
■ ❖ **
Yfirherstjórn Bandarikj-
anna sýnir fulian skilning og
vilja á því, aö firra borgarana
óþægindum og vandræöum
vegna hersetunnar, Hún leyfir
ekki amerískum hermönnum
aö sækja kvikmyndahús borg-
aranna. Þeim er bannaö aö
nota almenningsvagna á
þeim tímum, sem þeir
gera ekki betur en að full-
nægja þörfum borgaranna.
Hermönnunum er ekki leyft
aó vera á ferli í bænum á síö-
kvöldum. Herstjórnin hefur
gert ráöstafanir til þess að
eignaréttur borgaranna veröi
virtur og ekki unnin spjöll
meö yfirgangi, s. .s ágangi á
varplönd, drápi friðlýstra
fugla og heimldarlausum af-
notum af veiövötnum.
Þaö ætti aö mega vænta
þess, að borgararnir gæfu
ekki á neinn hátt tilefni til
sinnaskipta herstjórnarinnar
í þessum efnum. Þaö er ai-
veg fullvíst. aö hún er líkleg
til aö líta meó skilningi og
velvild á öll okkar mál. Má
án efa losna viö ýmis óþæg-
indi, sem enn elda eftir af
hernámi Breta, ef rétt er aö
farið. Því skal t. d. ekki van-
treyst, aö herstjórnin verði
við þeim kröfum almennings,
aö allar herbúöir séu fluttar
brott úr bænum, og umferð
hermanna um bæinn takmörk-
uö eftir fremsta megni,
Framh. á 4, síðu
Nú líður að kosningum, enda
hefur borgarstjórinn tekiÓ upp
hugmynd Þjóðólfs í bygginga-
málum hœjarins og er byrjað-
ur að hyggja — á pappírnum.
— Fiskirœkf í ám og vötnum
er framfaramáh sem ber að
sinna.
-2™ \ FIRLIT ÞJÖÐÖLFS _______
BORGARSTJÖRINN hefur
skýrt bæjarstjorn frá þvi,
ao hann naíi temo rogg á sig og
genö verKiræömgum bæjarms íyr
rnnæii um aö gera upparætti ao
samöyggoum nusum meo tvegja
og pnggja heraergja íbúoum.
bKuii pau veroa reist viö Hring-
braut, sunnan KirKjugarosms og
rjoruciu íDuoir veioa tnounar inn-
an sKamms. raerur petta verið
birt sem „evangenum'' i flestum
dagbiöoum og pyKir goit tii af-
spuinar svona rett fyrir kosning-
ar. Á hitt er
Framkvæmdir síöur minnzt,
í byggmgamálum ? hvað hinn
óafsakanlegi
dráttur á jákvæðum framkvæmd-
um í bygingamálum höíuðstaöar-
ins er buinn að kosta. Undanfar-
in misseri hefur ríkt hér fullkom-
ið neyöarástand í húsnæðismálum,
án þess aö nokkuð væri aöhafst
af opinberri hálfu. Jaínframt hef-
ur bygingarefnið verið notað til
margra annarra hluta en þeirra,
sem nauðsyniegastar voru á slík-
urn tímum. Bjarni borgarsfjóri
byggði staurapóla, meðan hann
gat fengiö byggingarefni. Þegar
hann loks læzt ætla að byggja
viðunandi hús til að bæta úr
vandræðunum, stöðvast sennilega
allar framkvæmdir fyrir efnivöru-
skort, Þessi ráðsmennska þykir
ekki góð utan herbúða Kveldúlfs.
Annars er það að segja um
ráðsmennsku þeirra manna, sem
alltaf eru að byggja „á pappírn-
um”, hvort sem það nú er hita-
vetia eða, íbúðarhús, að þjóðin er
orðin löngu leið á henni. Al-
, menningur vill, að trúnaðarstöð-
urnar í þjóðfélaginu séu skipaðar
mönnum, sem minna tala og
minna ráðgera en framkvæma
meira en flestir þeir, sem þær
skipa nú. Og það þykir yfirleitt
ekki þakkarvert, þótt langvarandi
neyðarástand og vandræði knýi
þessa trúnaðarmenn fólksins til
að sýna lit á að leysa verkefni,
sem löngu áttu að vera leyst. Ö-
dugnaður og framtaksleysi bæjar-
stjórnarmeirihlutans er búinn að
kosta meira en svo, að honum
verði gleymt fyrir fjörutíu íbúðir
„á pappírnum”.
II ú fara laxveiðimennirn-
ir að telja dagana þangað
til þeir geta „farið í” einhverja
Ixveiðána. Laxveiðin er þeirra
hálfa líf, eftir því sem manni
skilst, þegar þeir eru að segja
af sér veiðisögurnar. Og víst er
um það, að ekki er amalegt að
fá lax á diskinn sinn. Það vildu
Framh. á 4. síðu.