Þjóðólfur - 31.08.1942, Page 1
Útgefandi: MUNINN h. f.
Afgreiðsla og auglýsingar:
Laufásvegi 4, sími 2923.
Þjóðólfur kemur út á hverjum
mánudegi og aukablöð eftir þörf-
um. Verð kr. 6.00 á misaeri. í
lausasölu 25 aurar. Áskriftargjöld
greiðist fyrirfram.
Víkingsprent h. f.
Styrjöldin.
Á Austurvígstöðvunum haía
Þjóðverjar haldið uppi stöðugri
sókn í Kákasus alla síðastliðna
viku. Nálgast þeir óðum olíulinda-
svæðið hjá Grosny og virðist
Rússum hvergi hafa tekízt að
stöðva sókn þeirra í Kákasus.
— Hjá Stalingrad hafa Þjóð-
verjar sótt stöðugt á og telja
Rússar að mjög óvænlega horfi
um vörn borgarinnar. Á Reshev-
svæðinu hafa Rússar hinsvegar
hafið gagnsókn og orðið talsvert
ágengt.
— Á Kyrrahafsvígstöðvunum
hafa Bandarík j amenn náð fót-
festu á Salomonseyjum en Japan-
ar hafa haldið áfram landsetn-
ingu liðs á Nýju Guineu, án þess
að unnt reyndist að hindra það.
— Kínverjum virðist hafa orðið
nokkuð ágengt í tveim héruðum
í Kína.
Stalingrad.
Þýzki herinn leggur bersýni-
lega feikna áherzlu að ná borg-
inni Stalingrad á vald sitt, enda
ekki undarlegt. Borgin stendur
við Volgu og er því mikilsverð
samgöngumiðstöð. Ef Þjóðverjar
ná henni á vald sitt, geta þeir
hindrað samgöngur milli suður-
og norðurherja Rússa og stöðvað
alla olíuflutninga frá Kákasus til
norðurherjanna, er verja Moskvu
og Leningrad. En auk þessa er
Stalingrad mikilsverð iðnaðar-
borg, því að þar eru aðalstöðvar
skriðdrekaframleiðslu Rússa.Yrði
þeim því ómetanlegt tjón í missi
borgarinnar. Brezka blaðið Man-
chester Guardian lætur svo um
mælt, að fall Stalingrad væri
jafnmikill sigur fyrir Þjóðverja
nú og fall Moskvu hefði verið í
fyrra sumar, og það jafnvel þótt
Leningrad hefði fallið samtímis.
Skipatjónið
er enn sem fyrr éitt helzta á-
hyggjuefni Bandamanna. Sam-
kvæmt frétt frá amerísku sendi-
sveitinni til blaðanna í Reykja-
vík hafa Bandaríkjamenn í
hyggju að gera stórfellda tilraun
til flutninga í lofti. Hyggst fram-
leiðslunefnd Bandaríkjanna að
byggja 500 risaflugbáta af Marz-
gerðinni til flutninga og enn-
fremur að gera tilraun með 200
smálesta flugbáta, er hafi tvö-
faldan skrokk. — í London er
minna rætt um skipatjónið opin-
berlega en gert hefur verið. En
enska blaðið Timcs skýrir frá því,
að þetta vandamál sé nú mjög
rætt á lokuðum fúndum í enska
þinginu. Sé það ráð upp tekið í
því skyni, að óvinunum berist
ekki fregnir af ráðagerðum Breta
hér að lútandi. Blaðið lætur um
mælt m. a. á þessa leið; „Eins
og öllum mun Ijóst vera, tapast
þetta stríð eða vinnst á Atlants-
hafsvígstöðvunum. Það er ekki
nóg að byggja skip í stað þeirra,
sem sökkt er. Það verður að taka
alveg fyrir það, að skipum sé
sökkt". — Blaðið vekur athygli á
því, að Bretar standi nú stórum
verr að vígi í þessum efnum en
í fyrri heimsstyrjöld. í byrjun
þessa stríðs hafi þeír haft færri
skip til umráða en 1914. Nú séu
Fnunhmld i 4. siðnL
II. árg.
Mánudagurinn 31. ágúst 1942.
31. tölublað.
Nauðsynlegar varúðarráðstafanir
I | M nokkurt skeið hafa þýzkar flugvélar verið dag-
^ legir gestir yfir íslandi að heita má. Þó að þessar
flugvélar muni vera sendar til njósna en ekki til árása,
þá gefa hinar tíðu heimsóknir þeirra fyllilega til kynna,
að herseta Bandamanna á íslandi verði ekki látin af-
skiptalaus af hinum stríðsaðilanum.
Menn geta sér þess og ósjaldan til, að lokaþáttur Evrópu-
stríðsins verði háður í norðurhöfum, og þá fyrst og fremst um
ísland. Styrjaldarhorfurnar í Rússlandi gefa og tilefni til að
ætla, að á næsta sumri kunni það að verða á valdi þýzka hers-
ins að stofna til „nýrra vigstöðva“, hvar svo sem hann kynni
að velja sér stað til þess.
„Ólíkt höfumst
við^að“
En hitt er víst: íslendingum
þarf ekki að koma á óvart þótt
bæir þeirra yrðu fyrir árásum
— og jafnvel ekki, þótt land
þeirra yrði stríðsvettvangur.
Það hafa gerzt óvæntari atburð-
ir í þessari styrjöld.
Öryggi borgaranna.
En hvað hefur þá verið gert
til þess að tryggja öryggi borg-
aranna, ef til slíkra tíðinda
kynni að draga? Ekkert — alls
ekkert. Loftvarnakerfi hefur að
vísu verið komið upp í Reykja-
vík og öðrum stærstu bæjum
landsins. En það er í sjálfu sér
nálega gagnslaus ráðstöfun, ef
landið yrði orustuvöllur. Undir
slíkum kringumstæðum kæmu
engar aðrar ráðstafanir að haldi
en þær, að flytja borgarana
brott úr Reykjavík og frá þeim
stöðum öðrum, sem átökin
mundu fyrst og fremst snúast
um.
Sjálfsagðasta
ráðstöfunin.
Sjálfsagðasta öi-yggisráðstöf-
unin var að reisa steinsteypt
bráðabirgðaskýli fyrir megin-
þorra af íbúum Reykjavíkur á
tiltölulega öruggum stað sem
næst bænum, og hafa þar jafnan
til staðar nokkrar birgðir mat-
væla. Síðan bar að leggja til
þessa staðar sérstakan veg, er
tryggt væri að ekki yrði tekinn
til hernaðarþarfa.
Komi til átaka um landið,
verður nágrenni Reykjavíkur
samfeildur orustuvöllur. Vegir
út úr bænum yrðu tepptir vegna
hernaðaraðgerða. Fjallgarðar
og öræfi skilja milli bæjarins
og þeirra staða, þar sem helzt
væri öryggis að vænta. Það er
því augljóst, að af eigin ram-
leik geta borgararnir ekki leit-
að sér undankomu.
Nú er það að vísu látið í veðri
vaka, að hafinn mundi verða
skipulagður brottflutningur
fólks úr bænum, ef til átaka
kæmi, a. m. k. hefur eigendum
og umráðamönnum bifreiða ver-
ið gert skylt að mæta með bif-
reiðar sínar á tilteknum stöðum
í þessu skyni. En hvert á að
flytja fólkið? Er nokkur svo
blindur, að honum detti í hug,
að unnt yrði að hýsa meginþorra
Reykvíkinga í skólahúsum og á
sveitaheimilum á Suðurláglend-
inu? Og mundu matvælabirgðir
verða til staðar, þótt unnt yrði
að flytja fólkið úr bænum?
Það má einskis
láta ófreistað.
Mönnum kann að vaxa í aug-
um kostnaður við slíkar ráð-
< stáfanir, sem hér hefur verið
bent á. En hafa menn gefið
Framh. á 4. síðu.
Á myndinni sjást ungar amerískar stúlkur, cr vinna nauðsynleg störf
í þágu ættjarðarinnar á örlagastund þjóðarinnar. — Er ekki þessi mynd
umhugsunarefni fyrir íslendinga? ísland á'að visu ekki í ófriði, en þjóðin
á við margháttaða örðugleika að etja af völdum ófriðarins. Er þarflaust
að rekja þá hér. Eitt helzta vandamál þjóðarinnar er skortur á vinnu-
afli, síðan er herveldin tóku sér hér bólfestu. Matvælaframleiðsla lands-
manna dregst saman, enda þótt þjóðinni sé ekki brýnni nauðsyn á neinu
öðru en því að framleiða eins mikið af matvælum í landinu sjálfu og
unnt er. — Sjálfsagðasta stríðsráðstöfun íslendinga var sú að láta koma
til framkvæmda ákvæði stjórnarskrárinnar um landvarnaskyldu, skrá-
setja allt vinnufært fólk og ráðstafa vinnuafli þjóðarinnar á skipulegan
og skynsamlegan hátt. En þetta var ekki gert. Þessvegna má sjá hér
í höfuðstað landsins stúlkur, er hafa það eitt „starf“ að veita erlendum
liermönnum af ríkidæmi „blíðu“ sinnar, enda þótt tilfinnanlegur skortur
sé á fólki til lífsnauðsynlegra starfa fyrir þjóðarheildina, á sama tíma og
konur nágrannaþjóðanna ganga fram til starfs þar sem þörfin er mest.
Heímur sfáls og sfyrjar
Átökin á austurvígstöðvunum
AMERISKUR blaðamaður, C. L. Súlsberger,
dvaldist í Rússlandi um sex mánaða skeið á veg-
um „New York Times“. Hann var einn hinna fáu
amerísku fréttamanna, er fékk leyfi til að dveljast á
vígstöðvunum. Nýlega hefir birzt eftir hann ítarleg
grein í amerísku vikublaði um átökin á Austurvígstöðv-
unum. Hér fer á eftir lausleg þýðing á nokkrum hluta
þessarar greinar.
STÓRKOSTLEG-
AST A styrjöld
hernaðarsögunnar
er nú háð milli Þýzkalands og
Sovétríkjanna. Á hinni 2000
mílna löngu víglínu, er skilur
milli stærstu herja veraldarinn-
ar, hafa fleiri menn látið lífið,
lemstrazt eða orðið sjúkdómum
að bráð, en hægt er að gera sér
í hugarlund. Meiri eyðilegging
hefur átt sér stað en orð fá lýst.
Fleiri heimili hafa verið lögð í
rústir og meira akurlendi breytt
í auðn en dæmi eru til áður.
Hinn eyðandi eldur styrjaldar-
innar hefur leikið um land-
flæmi, sem er, viðlíka á stærð og
öll Bandaríki Norður-Ameríku.
St'ærri herjum hefur verið ger-
eytt en Bandaríkin og Bretland
eru enn íær um að senda út
á vígvellina. Þegar von Bock
hershöfðingi sótti að Moskvu á
siðastliðnu hausti, tefldi hann
fram fleiri vélahersveitum en
notaðar voru í öllum bardögun-
um í Hollandi, Belgíu og Frakk-
landi.
Ekkert annað ríki en það, er
að stærð og mannfjölda jafnast
á við Rússland, gæti haldið uppi
vélahernaði í stórum stíl eftir að
hafa beðið það feikna afhroða í
missi landa, manna og hergagna
er Rússar hafa orðið að þola.
Tjón Öxulherjanna er auðvitað
gífurlegt, en Rússar hafa a. m. k.
orðið fyrir jafnmiklu tjóni í
missi manna og hertækja, auk
missis kornforðabúra sinna,
mikilsverða borga og iðnaðar-
svæða.
1
ÞESSARI grimmi-
legu viðureign er
lítt griða beðist,
enda í litlum mæli veitt. Það er
að vísu erfitt að „hafa það, er
sannara reynist11 mitt í blekk-
ingamoldviðri áróðursins. En
vélahersveitir Þjóðverja, sem
fara fyrir meginhernum, hirða
ekki um að taka fanga, enda er
slóð þeirra blóði drifin. Ég hef
i heyrt rússneska hermenn segja
frá því, að félagar þeirra, er
fallið hefðu í hendur óvinanna,
hefðu verið bundnir við skrið-
dreka og tættir í sundur. Og það
hefur ekki staðið upp á Rússa
um að taka upp „algert stríð“.
Þeir hafa t. d. varpað niður að
baki víglínu Þjóðverja líkum
þýzkra hermanna sem tákn-
rænni viðvörun þess, hvað biði
óvina Rússlands.
Framh. á 4. síðu
i