Þjóðólfur - 13.10.1942, Blaðsíða 4
NlNLfUR
Þriöjudagurinn 13. okt. 1942.
Framhald af V sídu
fitvarpsræða Árna Jónssonar frá Múla
Framh. af 1. síðu.
allra þjóða, sem nú þallar mest
aÖ.
Hið gamla og úrelta skipulag.
hefur sitt gildi, fyrst og fremst
af því, að á því eru svo margir
gallar til að benda á sem víti til
varnaðar.
Fyrir kosningarnar í vor gaf
flokkur Þjóðveldismanna út á-
varp til kjósenda. Helztu verk-
efnin, sem fram undan eru, voru
talin upp í fáum dráttum. En
grundvöllurinn að starfsemi
flokksins var lagður með þess-
um orðum:
,,Aþ hafizt verÓi þegar han'da
um óhlutdrœga og alhliÓa athug-
un á stjórnarháttum annarra
þjóða, og ný stjórnsþipulög
sett á grundvelli þeirrar reynslu,
sem fengizt hefur, og í samrœmi
við k.röfur íslenzk/a lands- og
þjóðarhátta".
Ég spyr þig, kjósandi góður,
heldur þú að þú rækir skyldu
þína betur með því að ganga í
slóð gömlu flok.kar,na> sem hver
um sig telur, að hans leið sé sú
eina rétta, en að segjast í sveit
með þeim eina flokki, sem vill
hlýða kath hins nýja tíma ?
Bent á leiðir.
Ejnn af frambjóðendum E-list-
ans, Halldór Jónasson, hefur ný-
lega ritað bók, þar sem bent er
á ákveðnar leiðir til þess að gera
þjóðina sjálfa að æðsta dómara í
málefnum sínum í stað þess að
eiga velferð sína undir geðþótta
ráðríkra, oft á tíðum óhlut-
vtindra og skammsýnna flokks-
foringja, sem tekizt hefur með
einhverjum ráðum, að ná valai
yfir flokki sínum. Hér er gerð til-
raun til að skapa þjóðinni nýtt
skipulag, sníða nýjan stakk, sem
gefur þegnunum betri tök á, að
ráða sjálfir málum sínum en nú
er í stað þess að láta sér nægja
að skella við og við nýrri bót á
gamalt fat-, sem alltaf sýnir sig
betur og betur að ekki er við
hæfi.
Markmið Þjóðveldis-
manna.
A grundvelli skipulags, sem
byggt sé á kröfum nýja tímans
vill Þjóðveldisflokkurinn gangast
fyrir því, meðal annars:
að hnekkja flokksræðinu,
að gera stjórnkerfi ríkisins
einfaldara og kostnaðarminna.
að gerðar verði öruggar ráð-
stafanir til þess að útrýma at-
vinnuleysi í framtíðinni.
að einkaframtakið njóti stuðn-
ings og verndár ríkisvaldsins,
eftir því sem samrýmist alþjóð-
arheill.
að gerðar verði víðtækar ráð-
stafanir til að tryggja atvinnu-
vegi landsins gegn áföllum mis-
jafns árferðis.
Loks vill flokkurinn gangast
fyrir því að koma á sættum í
þjóðfélaginu, og auka þegnskap
einstaklinganna.
Ég hef hér í stuttu máli sýnt
fram á að tilvera hinna gömlu
flokka hangír í þræði, sem bráð-
um slitnar, bæði vegna þess að
allir hafa þeir með einhverjum
hætti unnið sér til fullrar óhelgi,
og ekki síður vegna hins, að
straumur tímans er að skola
burt því sem úrelt er í stjórnar-
háttum okkar og allra annarra
þjóða.
Óviðurkvæmllegt
framferði.
Á síðastliðnum tólf mánuðum
höfum við hegðað okkur svo
glannalega, að við erum á góð-
um vegi með að gera okkur að
veraldar-viðundri. Þótt allir
flokkar þykist ástunda frið og
sættir, hefur allt logað í verkföll-
um síðan um nýár. Tvennar al-
mennar kosningar, fyrst til bæj-
arstjórnar, síðan til Alþingis,
hafa þegar. farið fram og þær
þriðju verða um næstu helgi. Al-
þjóð manna hefur hlustað á fyrr-
verandi og núverandi forsætis-
ráðherra kastast á þeim kveðj-
um, að minnt gæti á samsæris-
höfðingja í óaldarflokki, sem
staðnir hefðu verið að verki og
handteknir, en reyndu síðan að
koma skömminni hvor á annan.
Halda menn að slík framkoma
æðstu manna þjóðarinnar sé okk-
ur til vegsauka í augum þeirra,
sem hafa okkur „undir smá-
sjánni ?“
Svo mikið er ábyrgðarleysið,
að jafnvel sjálfstæði þjóðarinn-
ar hefur verið dregið inn í kosn-
ingabaráttuna á hinn óviður-
kvœmtlegasta hátt. Það er meira
að segj'a engu líkara en að sum-
ir af fróðustu mönnum okkar séu
búnir að gleyma því, að við öðl-
uðumst fulla viðurkenningu á
sjálfstæði okkar fyrir 24 árum.
Það er jafn rangt að fjargviðrast
yfir neinum ósigri í sjálfstœðis-
málinu, eins og það er fánýtt að
hreykja ^amfei yfir neinum unn-
um sigri.
Tillögu vísað á bug,
I gömlu flokkunum ólgar óá-
nægjan.
Fyrir rúmu misserí benti ég á
það, hver hætta þjóðinni stafaði
af því að leggja út í harðvítuga
baráttu á þéssum örlagaríku tím-
um, þegar aðkallandi vandamál
steðjuðu að á hverri stundu. Ég
lagði til, að hafið væri nýtt sam-
starf um stjórn landsins og allir
flokkar gerðir ábyrgir.
Undirtektirnar voru þær, að ég
fékk bullandi skammir í Tíman-
um, skæting í Alþýðublaðinu,
slettur í Morgunblaðinu. Forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins litu
mig óhýru auga fyrir að bera
fram svona óguðlega uppá-
stungu. Kommúnistar vísuðu
málinu ekki alveg á bug, en
flýttu sér hinsvegar að bera fram
allskonar skilmála, sem þeir
vissu að ekki yrði gengið að.
Nú er svo komið að Framsókn
og Sjálfstæðisflokkurinn eru dag-
lega að berjast fyrir samvinnu
allra flokka. Enda er öllum ljóst,
að dýrtíðarmálunum hefði verið
öðruvísi komið, ef þessu ráði
hefði verið fylgt. En sá bpggull
íylgir. skammrifi, að samstarf
allra flokka er óhugsandi, éf
þeir Jónas og Olafur, annárhvor
eða báðir eiga að vera í stjórn-
inni. En sameiginleg valdastreita
þessara tveggja flokksforingja er
svo hamslaus, að ég er sann-
færður um að þeir létu heldur
allt samstarf fara forgörðum, en
láta af þeim fyrirætlunum sín-
um, að ná saman að afloknum
kosningum, ef þeir hefðu áfram
óskorað vald á flokkum sínum.
Stuðningur Þjóðólfs.
Eina röddin, sem heyrðist til
stuðnings tillögu minni kom fram
í Þjóðólfi, blaði Þjóðveldis-
manna. Þetta varð meðal annars
til þess, að mér varð ljóst, að ég
átti í mörgu samleið með þessum
nýju flokksmönnum mínum, þótt
það sannaðist betur síðar. En
gömlu flokkarnir réðu auðvitað
úrslitum málsins.
*
Með því að halda flokkunum
undir. vopnum misserum saman,
eru leiðtogarnir á íslandi að
leika sama leikinn sem herkon-
ungar hafa kunnað frá því sögur
hófust: leggja í styrjöld við aðra
þegar óánægjan hefur magnazt
svo, að við uppreist liggur.
Óánægjan í gömlu flokk-
unum.
I öllum gömlu flokkunum ólg-
ar óánægjan undir niðri. Komm-
únistar hafa lifað á því að vera í
harðvítugri andstöðu við mis-
vitra stjórnendur landsins,
skammsýna menn og miður rétt-
láta. Valdhafarnir og slíkar mál-
pípur þeirra sem Jónas Jónsson
hafa Verið sannnefndir styrktar-
félagar kommúnismans, með því
að leggja honum daglega Vopn i
hendur til áróðurs í innanlands-
málum. Af þessum sökum hefur
kommúnistum tekizt að , .hlaupa
fyrir horn“, án þess að fylgið
slitnaði frá þeim. En hver vill á
örlagastundum þjóðar sinnar
eiga undir mönnum, sem búnir
eru að sýna, að þeir hoppa eins
og spýtna-dvergar á brúðuleik-
sviði, eftir því sem kippt er í
spotta austur í einræðisvígi föður
Stalins.
Alþýðuflokkurinn var búinn
að fá meira en nóg af Stefáni Jó-
hanni. Róttækari menn flokks-
ins litu til Jóns Blöndals. Hann
er settur út úr leiknum. Sigurjón
Olafsson, eini maðurinn af for-
ustuliði flokksins, sem almenn-
ingur lei,t á sem ,,einn af oss“
er sendur undir fallexi. Með því
héfur flokkurinn endanlega af-
klæðzt ,, vinnugallanum * *.
Frarnsóknarflokkurinn er
löngu dáuðuppgefinn á kúgun
Jónasar Jónssonar. Fyrirætlanir
hans eru álíka vél séðar þar í
sveit, og fyrirætlanir mótspilar-
ans í Sjálfstæðisflokknum.
Sjálfstæðisflokkinn þekki ég
bezt. Mönnum hrýs hugur við
dagvaxandi yfirlæti og ófstopa
Olafs Thors og nánustu fylgis-
manna hans. Hin upphaflegá
kjölfesta flokksins er Öll úr skorð-
um gengin, gætnin og fyrirhyggj-
an. í því rúmi siglir flokkurinn
nú með Kveldúlfsfélagið í lest-
inni. Ekki lasburða, fyrirtæki,
sem bárðist af miklum hetjuskap
gegn öfsóknum fjandmanna
sinna. heldur voldugt og auðugt
ríki í ríkinu, sem virðist gæti
haft að kjörorði: Þúð er aldrei
nóg!
Ef ykkur hrýs hugur við
spillingunui —
Þeir sem viljá lýsa andúð
sinni á mistökum þjóðstjórnar-
flokkanna, þurfa ekki lengur að
fara til kommúnista. Þeir, sem
stutt hafa kommúnista, en nú
eru fullsaddir á loddaraskap
þeirra og ósjálfstæði, geta nú
látið andúð sína í ljósi án þess
að styðja þjóðstjórnarflokkana.
Góðir kjósendur!
Ef ykkur hrýs hugur við ó-
þrifunum og spillingunni, lodd-
araskapnum og áhyrgðarle'ysinu.
Ef þið óskið að framtíðin
Verði gifturíkari en fortíðin.
Ef þið viljið að þjóðin húi sig
undir að taka °ið bœttum úr-
lausnum hins nýja tíma — eig-
ið þið að. snúa haki við fortíð-
inni, neita að kjósa gömlu flokk-
ana — en lyosa í þess stað unga
flokkinn, flokk kins nýja tíma,
flokk framtíðarinnar, Þjóðveldis-
flokk'nn —
E-listann.
Beztu bókakaupin
gerið þið hjá okkur.
Bókabúðin, Klapparstíg 17
(milli Hverfisg. og Lindargötu).
Kosnlngaskrlfstofa ÞJóðvoIdismanna
Laufásvegí 4. Opín frá 9 f. h. fíl 7 e. h.
Stmar:
497S
2923
Látið skrífsfofuna yifa iim það fólk, sem fer úr
basnum fyrir kjðrdag,
Kjósíð hjá lögmanní í Afþingíshúsínu. Opíð
kL 10-12 L h, og i—5 e, h.
E-ltstlnn er ltstl Þjððveldlsmanna