Þjóðólfur - 17.10.1942, Blaðsíða 1
Árni Jónsson,
ritstjóri.
Bjarni Bjarnason,
lögfræðingur.
KOSNINGAÚRSLITA í höfuðstað landsins hefur
aldrei verið beðið með þvílíkri eftirvæntingu
sem nú. Framboð Þjóðveldismanna er kall
hins nýja tíma til kjósenda í Reykjavík. Myrkraöflin
í íslenzkum stjórnmálum leggja á það ofurkapp að
spilla fylgi þeirra lista, er þau telja réttilega stefnt
gegn sér.
Hinar einræðissinnuðu klík-
ur umhverfis Jónas & Ólaf
húast til að taka höndum sam
an að kosningunum afstöðn-
um. Þær telja sig hafa umboð
til þess, ef úrslit kosninganna
verður með líkum hætti og
fyrr. Ef það kemur ekki greini
lega fram í þessum kosning-
um, að þjóðin sé að vakna til
vitundar um það, að henni
beri að krefjast nýrra stjóm-
hátta, munu ofríkismennimir
halda uppteknum hætti um
kúgun, ofbeldi og ójöfnuð.
Náttmyrkur rangsnúinna þjóð
félagshátta mun þá haldast
yfir Islandi.
Hvarvetna í heiminum ryð-
ur sér til rúms sú skoðun, að
nýr tími fari í hönd. Úrelt
þjóðfélagsform, rangsnúnir
skipulagshættir, ójöfnuður,
ofríki og forréttindi lifa nú
sitt síðasta. Beggja megin við
þá miklu víglínu, sem nær
inn heim allan, er það álit
manna, að komandi ár séu
stund hinna miklu reiknings-
skila í stjómarfarslegum efn-
um.
I
Á Islandi er lögð á það meg.
in áherzla að drepa á dreif
þessum sannindum. Hin mið-
aldaættuðu kúgunaröfl, er hér
vilja hafa hvers manns ráð í
hendi sér, berjast nú fyrir lífi
sinu. Þau telja fyrir öllu, að
úrslitum þessara kosninga
sjáist engin merki um vakn-
andi skilning íslenzkra kjós-
enda á því, hverju fram vind-
ur í heiminum. Þau vilja ó-
trufluð af vilja kjósendanna
öölast aðstoðu til að stíg*
lokaskrefið í valdabaráttm
sinni á íslendi, rnynda súim
eigin ríkisstjóm að loknunt
þessum kosningum í því sky»i
að standa aldrei framarreik*-
ingsskap ráðsmennsku sinnar
frammi fyrir kjósenduml
Reykvískir kjósendur!
Gefið gaum að mikilvægi
þeirra athafnar, sem þér nú
eruð kvaddir til. Leitist eigi vW
að skjóta yður undan þeirri
ábyrgð, sem lögð er á herðar
yðar. Kastið ekki atkvæði yS.
ar á glæ með því að fleygja
því fyrir náttröllin, sem haf*
dagað uppi í rás tímans.
Gangið til djarfmannlegrar
viðurkenningar á því, að nýir
tímar fara í hönd. Gerið eklri
kosningaathöfnina að mark-
leysu með því að Ijá dauða-
dæmdum .flokkum atkvæði
yðar. Kjósið þá, sem vilja
hlýða kalli tímans. Segið yður
í sveit með þeim, sem eiga
framtíðina fyrir sér. Fylldð
yður um lista Þjóðveldis-
manna. Kjósið E-listann!
Jakob Jónasson,
verzlunarmaður.
Halldór Jónasson,
hagstofuritari.
Kristín Norðmann, frú
Árni Friðriksson,
fiskifræðingur.
Páll Magnússon,
lögfræðingur.
Gretar Fells,
rithöfundur.
Magnús Jochumsson,
póstfulltrúi.
Jón Ólafsson,
lögfræðingur. **
Ótsefandl: MXJNINN h.í. Afgreiðsla og auglýsmgar: Laufásvegi 4, sími 2923. Þjóðólfur kemur át á hverjum ■rónudegi og aukablöð efUr þörfum. Verð kr. 2.00 á mán- uði. f lausasölu 30 aurar. Áskriftargjöld greiðist fyrirfram. _ Þ n 111 111 ii 1 ii R
Víkingsprent h.f. L árg. Laugardagimnn 17. okt. 1942. 46. tölublað.
Árni Jðnsson frá Húla
Suar lll Bjarna
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR-
INN ætlaði að þegja E-
listann í hel. Auðvitað brast
hann skapfestu í þeirri fyrir-
ætlun sinni, eins og öllum
■Öðrum. Eftir að Morgunblað-
ið hafði verið múlbundið í
f jórar vikur treystandi því, að
Þjóðveldisflokkurinn væri svo
fylgislaus, að ekki væri eyð-
andi á hann púðri, vaknar
það á elleftu stimdu við þann
vonda draum, að fylgi E-list-
ans sé orðið svo öflugt, að
hætta sé á ferðum.
Bjami Benediktsson fer á
stúfana í Morgunblaðinu í
dag. Af skiljanlegum ástæð-
um, er ekki tækifæri til að
kryfja grein hans til mergjar
eins og þörf væri. En það sem
fyrir Bjama vakir, er að sýna
íram á, hvað hann sé óeigin-
gjarn og fómfús. Af þeim sök-
um taki hann að sér að vera
þingmaöur, ofan á borgar-
stjórnarstarfið. — Og gæti
hann sagt — væri ekki ófáan-
legur til að bæta einu litlu
ráðherraembætti ofan á!
ÞÓ menn vitaskuld dáist
að svona fórnfýsi, er f jöldi
nianna hér í bænum þeirrar
skoðunar, að hagsmunum
bæjarins gæti verið allvel borg
ið á þingi, þótt borgarstjórinn
sjálfur eigi þar ekki sæti. Nú
þegar þingmönnum bæjarins
er fjölgað, eykst íhlutun bæj-
arbúa á landsmál að sama
skapi.
Og það er rétt að menn fái
að heyra það — úr því að
borgarstjórinn hefur látið sig
hafa það, að ganga á tveggja
manna tal í grein sinni — að
það er ekki Bjarna Benedikts-
syni að þakka að Reykjavík
fær þessa þingmanna-aukn-
ingu.
Eysteinn Jónsson sagði á
framboðsfundi í Suður-
Múlasýslu í sumar, að Ólaf-
tu- Thors, hefði lofað að
hreyfa kjördæmamálinu
ekki á vetrarþinginu. Her-
mann Jónasson hefur árétt-
að þetta með öðm orðalagi.
Og Ölafur Thors viðurkennir,
að Hermann hefði réttmæta
ástæðu til að líta svo á málið.
Bjarni . Benediktsson
streyttist gegn því í flokkn-
um með Ölafi, að kjördæma
málið yrði tekið upp.
EF þeir Ólafur og Bjarni
hefðu ráðið, hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn gengið til
Framhald á 4. eíðu.
Frambjóðendnr
E-listans