Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Page 2
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
4. TÖLUBLAÐ
3. ÁRGANGUR 1990
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Setning, útlit og umbrot:
Guðmundur Einarsson
Prentun:
Prentsmiðjan
Gutenberg h.f.
Ljósmynd á forsíðu:
Gísli Ragnar Gíslason
FRÁ RITSTJÓRA
Fréttabréf Öryrkjabandalags Islands kemur nú út í tólfta sinn
og þó margt megi eflaust misj afnt um það segja, þá mun hitt sanni
nær að allmiklu líkara er það orðið tímariti en fréttabréfi.
Það hefur ævinlega verið reynt að hafa efnisval hæfilega
blandað, svo allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, svo sem unnt
er.
Þetta tölublað er með þeim sérstaka blæ, sem eðlilegur hlýtur
að teljast eftir góðan aðalfund og velheppnaða og fjölmenna
ráðstefnu, þar sem gnótt góðs efnis kom fram.
Ritstjóra þykir rétt og skylt að gefa félögum mynd af því sem
þarna fór fram, þó erindi um sama viðfangsefni og skýrslugerð
um starfsemina séu máske ekki skemmtilegasta lesning, sem
maður fær. En hún er jafngóð og gagnleg fyrir því.
Ritstjóri vill þá benda á það að oft er spurt tíðinda af vettvangi
Öryrkjabandalags Islands og mættu menn gjarnan minnast þess
nú. Engu að síður ber þetta tölublað einnig merki þess, að hátíð
allra hátíða fer í hönd og ekki er gamanmálum með öllu gefið frí.
En hins vegar er ótrúlegt, hversu erfitt er að afla efnis, sem kæmi
sem víðast af vettvangi hins daglegalífs, sem ætti í raun uppsprettu
annars staðaren íkolli aumingjaritstjórans. Áenginn virkilega
erindi við okkur í þessu tæknivædda tímaleysi nemaþá símleiðis!
Hefur enginn þörf fyrir að finna að, benda á brautir, leggja til
lausnir, eða bara að vera með einhver skemmtilegheit?
Nýtt ár færir vonandi nýja vakning til fólks, en hvað sem því
líður þá er þörf þess að gera Fréttabréfið að lifandi vettvangi
baráttunnar hafin yfir allan efa.
Með þeim orðum endar ritstjóri raus sitt, en biður öllum
lesendum blessunar ábjartri hátíð ljóss og líknar, árnar þeim allra
heilla á árinu sem heilsar brátt og færir öllum velunnurum og
öðrum lesendum þakkir fyrir allt gott á genginni tíð.
H.S.
EFNISYFIRLIT
Atvinnumálaráðstefnan................3
Tvö þingmál..........................4
Skýrsla Hússjóðs.....................5
Aðalfundur Ö.B.Í.....................6
Matur er mannsins megin..............9
Lungnavemd er umhverfismál..........10
Að hleypa heimdraganum..............12
Mitt faðirvor.......................13
Bréfaskólinn 50 ára.................14
Jólasaga............................15
Starfsþjálfun fatlaðra..............16
Ævintýri............................17
Það er aldrei of seint..............18
Hornsteinn lagður...................19
Frá atvinnumálaráðstefnu............20
Vemdaðir vinnustaðir................22
Viðhorf mitt til vinnunnar...........23
Fræðslurit MS........................23
Framtíð verndaðra vinnustaða.........24
Ljóð.................................26
Hlerað í hornum................26 og 31
Af stjómarvettvangi..................27
Atvinnumál fatlaðra á Austurlandi....28
Frá sjónarhóli stjórnenda............30
Vinnustofur Ö.B.Í....................32
Ofurlítið jólaspjall.................33
Umbrotsljóð..........................35
Jólasveinninn var ekki til...........36
Punktar..............................37
í brennidepli........................38
Af vettvangi gigtsjúkra..............40
2