Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Page 5
Skýrsla Hússjóðs
Öryrkj abandalagsins 1990
• • /
Flutt af Tómasi Helgasyni formanni Hússjóðs á aðalfundi O.B.I.
Skömmu eftir að núverandi stjórn
Hússjóðs tók við, lést aðalhvata-
maður að stofnun hans og formaður í
nærfellt aldarfjórðung, Oddur
Ólafsson, fyrrum yfirlæknir að
Reykjalundi og síðar alþingismaður.
Fyrir elju hans og bjartsýni hefur
Hússjóður orðið að því stórfyrirtæki
sem hann er í dag. Sumir núverandi
stjómarmanna sjóðsins og starfsmenn
hans hafa verið svo lánsamir að njóta
uppeldis og leiðsagnar Odds, þannig
að vonir standa til að stjórn sjóðsins
fylgi áfram þeirri stefnu sem hann
markaði. Meðlimir Öryrkjabandalags
íslands og þjóðin öll stendur í mikilli
þakkarskuld við þennan látna
forystumann.
Tilgangur Hússjóðs er að eiga og
reka íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja. I
samræmi við þetta hefur sjóðurinn
reynt að eignast íbúðir sem hæfa
öryrkjum. Hann á nú 379 íbúðir víðs
vegar á landinu, þar af300 í Reykjavík.
Fyrir tilkomu lottós hafði sjóðurinn
eignast 285 íbúðir en 36 þeirra eru
leigðar ríkisspítölunum fyrir
öldrunardeild.
Nú eru íbúðir í eigu Hússjóðs í
öllum kjördæmum utan Vestur-
lands. Síðan lottóið kom til hafa verið
keyptar 94 eignir. Af þeim eru 5
einbýlishús sem hafa verið keypt og
leigð svæðisstjómum undir sambýli.
Það sem af er þessu ári hafa verið
keyptar 20 eignir og unnið er að
undirbúningi á frekari kaupum.
11 eru í Reykjavík og 9 utan
Reykjavíkur. Enn er meirhluti íbúða
Hússjóðs í Hátúni 10 og er mikil ásókn
í þær íbúðir. Nú um langt árabil hafa
verið keyptar einstaka íbúðir á víð og
dreif um landið í samræmi við ríkjandi
stefnu að öryrkjar búi við svipaðar
aðstæður og almennt gerist. Jafnframt
þessu hefur orðið æ almennara að
öryrkjar búi með fjölskyldum sínum
Tómas Helgason.
og séu ekki á stofnunum. Þetta skapar
nýjar þarfir sem Hússjóður þarf að
reyna að mæta.
Mest af íbúðum sjóðsins nú eru
einstaklingsíbúðir eða litlar hjóna-
fbúðir. Nú er hins vegar aukin þörf
fyrir stærri íbúðir fyrir fjölskyldur þar
sem einhver fjölskyldumeðlimur er
fatlaður en aðrir ófatlaðir. Slíkar
fjölskylduaðstæður kalla oft á aðstoð
og fyrirgreiðslu að því er varðar
húsnæði. Til þess að mæta þörfum að
nokkru er nú í undirbúningi hús-
bygging við Sléttuveg þar sem
Reykjavíkurborg hefur úthlutað
Hússjóði mjög góðri lóð. Þarerætlunin
að hafa íbúðir af mismunandi stærðum
til þess að mæta nýjum þörfum þar
sem saman geti búið fatlaðir og
ófatlaðir. Auk þess er ætlunin að hafa
þama sérstakar gestaíbúðir sem MS-
félaginu verða leigðar en það ætlar að
koma upp dagvist og endurhæfingar-
aðstöðu í tengslum við þessa
byggingu.
Húsin í Hátúni eru nú orðin það
gömul að verulegt viðhald hefur verið
nauðsynlegt. Utanhússviðgerðir hafa
farið fram á síðustu þremur árum.
Jafnframt hefur verið komið upp
eldvamarkerfi, sem nýtt hitastýrikerfi,
gólfteppi endurnýjuð og gangar
málaðir á yfirstandandi ári.
I mars á þessu ári var ákveðið að
hlutur Hússjóðs í arði Öryrkja-
bandalags íslands af starfsemi
íslenskrar getspár lækkaði í 75% og
að það hlutfall héldist í 5 ár. Þrátt fyrir
það að Hússjóðurinn er orðinn stærsti
eða næststærsti eigandi leiguíbúða í
landinu vantar mikið á að þörfum
öryrkja fyrir íbúðir sé fullnægt sem
sjá má af þ ví að nú em 290 umsækjend-
ur á biðlista. Það þarf því að halda vel
á spöðunum á næstu árum.
Framkvæmdastjóri Hússjóðs er
Anna Ingvarsdóttir. í stjórn sjóðsins
eru nú Hafliði Hjartarson, vara-
formaður, Ingimundur Magnússon,
Jóna S veinsdóttir, ritari, Skúli Johnsen
og undirritaður, formaður.
Tómas Helgason,
Anna Ingvarsdóttir.
Aðeins til viðbótar þessari skýrslu
þeirra skal vísað í umræður frá
aðalfundi um stefnumörkun í íbúða-
kaupum og byggingum. Meginhug-
myndir þær sem Tómas Helgason kom
inn á vörðuðu það að heppilegast og
hollast væri að hafa sveigjanlega
stefnu sem tæki tillit til bæði sam-
þjöppunar að vissu marki m.t.t.
þjónustu og öryggis og hins vegar
eðlilegrar dreifingar.
Einnig ræddi Tómas þær hug-
myndir sem uppi væru í félags-
málaráðuney tinu að Hússjóður Ö.B .í.
yrði framkvæmdaðili við félagslegar
íbúðir ætlaðar öryrkjum til viðbótar
því, sem þegar er.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5