Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Page 6
Aðalfundur Oryrkja-
bandalags Islands
Fimmtudaginn 11. okt. sl. var
aðalfundur Öryrkjabandalags
Islands haldinn í Borgartúni 6,
Reykjavík.
Rétt til fundarsetu áttu þrír fulltrúar
frá hverju aðildarfélagi bandalagsins,
stjórnarmenn, fulltrúar samtakanna í
svæðisstjórnum og stjórnamefnd og
starfsfólk bandalagsins.
Samkvæmt lögum bandalagsins,
er samþykkt voru á síðasta aðalfundi
þess, er stjórn kjörin til tveggja ára í
senn og því var ekki um neinar kosn-
ingar að ræða á þessum fundi, sem
raunar má eins kalla fulltrúaráðsfund,
sem fer með æðsta vald í málefnum
bandalagsins milli hinna eiginlegu
aðalfunda. Fundurinn var settur kl.
rúmlega 16 og voru þá mættir til fundar
rúmlega 50 manns.
Formaður setti aðalfundinn og
bauð fólk velkomið til fundar.
Minnzt var í upphafi látinna for-
göngumanna, en þeirra hefur
allra verið minnzt hér í Fréttabréfinu:
Odds Ólafssonar heiðursformanns
Ö.B.Í., Andrésar Kristjánssonar
stjórnarmanns í Ö.B.Í., Sigursveins
D. Kristinssonar, eins stofnandaÖ.B.Í.
og Trausta Sigurlaugssonar í
fulltrúaráði Ö.B.Í. Hann minntist
frumherjans og forystumannsins
farsæla, Odds Ólafssonar sérstaklega,
enda sannast sagna, að með fráfalli
hans urðu ákveðin tímamót í öllu starfi
bandalagsins svo og Hússjóðs Ö.B.Í.
Fundarmenn risu úr sætum og
vottuðu hinum látnu virðingu sína.
Þá var Ólöf Ríkarðsdóttir kjörin
fundarstjóri og fundarritarar þau Helgi
Hróðmarsson og Þórey Ólafsdóttir.
Stýrði Ólöf nú fundi og gaf
formanni orðið um skýrslu stjómar,
sem þau höfðu gengið frá myndarlega
mjög, Asgerður og hann. Skýrslan var
bæði ítarleg og greinargóð og verður
tæpt ánokkrum atriðum, en velflestum
atriðum hennar hafa jafnharðan verið
gerð skil í Fréttabréfinu.
Stjómarfundir voru 6, en fram-
kvæmdaráðsfundir 11 á starfsárinu.
Fyrstræddi Amþórinnri skipulagsmál
og þá það helzt, að nú liggja fyrir
starfslýsingaralls starfsfólks hjáÖ.B.Í.
svo og Hússjóði Ö.B.Í. Helzta breyting
frá sl. ári er sú, að Einar Aðalsteinsson
var ráðinn framkvæmdastjóri
vinnustofanna og rekstur þeirra skilinn
frá rekstri bandalagsins og Hússjóðs.
á vék hann að erlendum sam-
skiptum, en þau voru vaxandi á
árinu.
Þau erlendu samtök, sem hér er
um að ræða eru: Rehabilitation
Intemational — alþjóðleg endurhæf-
ingarsamtök, þar sem Arnþór
Helgason er nú stjórnarmaður;
Mobility Intemational, en það eru
alþjóðleg samtök sem stuðla að
samskiptum ungs, fatlaðs fólks og
hefur Helgi Hróðmarsson verið þar
tengiliður, en aðild var samþykkt á
starfsárinu; Nordisk forening for
rehabilitening — norræn samtök um
endurhæfingu og svo að norrænu
endurhæfingarnefndinni í raun, sem
starfar innan Norðurlandaráðs.
Greindi formaður frá þátttöku sinni
og annarra í þessu starfi öllu, en nú
síðast hvarf hann á vit Kínverja til að
sækja þing R.I.
Þá fór hópur fólks á Evrópuþing
R.I. á liðnu vori undir fory stu Ásgerðar
Ingimarsdóttur, sem er tengiliður
samtakanna hér á landi. Mun hún
greina frá ferð þeirri hér í Fréttabréfinu.
Greint var frá málaleitunum
Öryrkjabandalagsins til áherð-
ingar kröfum Félags heymarlausra vítt
á vettvangi Þeir aðilar sem knúið hefur
verið á eru: Tryggingastofnun ríkisins
varðandi táknmálstúlka, sem greiða
ætti fyrir á sambærilegan hátt og
hjálpartæki og eins var knúið á
menntamálaráðherra um úrbætur
varðandi táknmálsfréttir í sjónvarpi
og ekki hvað sízt um Samskipta-
miðstöð. Þá ræddi formaður þá
breytingu að í stað útgáfu Frétta-
bréfsins á táknmáli væri ákveðið að
veita félaginu styrk til útgáfu tímarits
á táknmáli með því skilyrði að hluti
þess yrði helgaður efni úr Fréttabréfi
Öryrkjabandalagsins.
Formaður rakti ályktun stjómar
Ö.B .í. frá 12. des. á sl. ári um skattlagn-
ingu tryggingabóta og þá sér í lagi
benzínpeninga, en sú ályktun var birt
í Fréttabréfi þessa árs í 1. tbl.
Óhjákvæmilegt er að taka þessi mál
upp nú, samfara virðisaukaskattlagn-
ingu hjálpartækja.
6